Harpan - 01.02.1937, Qupperneq 6
Merkisviðburður má það teljast i sögu kórsöngsins hér á landi,
er Drengjakór Reykjavíkur var stofnaður, en það var 4. febr- 1936.
Söngsveit |)essi söng í fyrsta sinn í Gamla Bíó í aprílmánuði í
fyrra, fyrir fullu húsí áheyrenda og við ágætar viðtökur. Kórinn
var skipaður 38 drengjum á aldrinum 11—13 ára. Sungin voru 15
lög, prírödduð, mörg peirra varð að endurtaka.
Það er ekki vandalaust verk að stjórna söngsveit sem pessari,
svo vel fari, peir vita bezt, sem reynt hafa. Því gleðilegra er þess
að minnast, hve góður árangur náðist í fyrstu, en pað er mest að
pakka stofnanda kórsins, hr. Jóni ísleifssyni söngstjóra, sem af
sínum alkunna dugnaði og smekkvísi hefir sýnt hér, sem oftar,
hvað gera má, sé vilja og eindrægni til að dreifa. Gaman verður
að heyra til kórsins næst, er hann syngur opinberlega.
Ástæða er til að ætla, að önnur héruð fari að dæmi Reykjavíkur
og komi upp hjá sér svipuðum söngflokkí sem pessum.
F. B.
DRENGJAKÓR
REYKJA VÍKUR
4