Harpan - 01.02.1937, Qupperneq 16
H_______A_______R P ■ A N
Afreksverk áfengissalanna.
Eítirfarandi erindi bregða upp
sk5rrri og átakanlegri mynd af
bölvun áfengisins og því, nversu
göfugt starf áfengissalanna er.
Hugsið ykkur konuna með barn
sitt deyjandi í fanginu. Horfið
í huga ykkar á litlu stúlkuna,
par sem. hún er að reyna að fá
pabba sinn heim með sér úr
kránni. Horfið á litla drenginn í
faðmi móður sinnar, þar sem
hann biður um að fá að kyssa
pabba sinn, áður en hann deyr,
en pabbi hans situr viö drykkju
inni . í knæpu. Hugsið ykkur
móðurina, þar sem hún situr í
kuldanum yfir drengnum sínuin
dánum. Við getum lika litast um
í stofunni, en finnum þar fátt
þæginda. Jafnvel eldurinn er
dauður, kolin líldega búin, og af
vistum harla lítið eða ekki neitt.
Brennivínsflaskan hefir gleypt
allt — líklega líf drengsins líka.
Hve lengi eiga slíkir glæpir sem
þessi, að vera lögverndaðir og
hver ber ábyrgð á þeim?
Barnið við dyrnar á knacpunni-
„ó, pabbi minn kæri, æ komdu nú með mér heim,
sko, klukkan er senn orðin eitt.
Þú lofaðir í morgun að koma snemma í kvöld,
á knæpunni að tefja’ekki neitt.
Nú er eldurinn dauður og allt er orðið kalt
og enn bíður mamma eftir þér;
hún situr með hann Villa litla, sjúkur er hann
og sárlítil hjálp er að mér.
Ö, pabbi minn kæri, æ komdu með mér heim,
sko, klukkan slær tvö; fylgdu mér.
Það kólnar; og hann Villi litli er veikari en fyr,
hann var þó að spyrja eftir þér;
Og það segir hún mamma mín, ef þyngi honum enn,
að þá muni hann deyja í nótt,
og þessar fréttir bað hún mig að bera til þín,
ae, blessaður lcomdu nú fljótt,
14