Harpan - 01.02.1937, Page 30

Harpan - 01.02.1937, Page 30
H A R hofðu þau hlotið undur létta og glaða lund. Og þau skildu ekki, hve móður þeirra, sem var ekkja, veittist erfitt að afla þeim naum- ustu nauðsynja. Þau báru hvort um sig litla leirkrukku og áttu að tína í þær jarðarber inni í skóginum. Daginn eftir fór móðir þeirra svo með þau og seldi í borg- inni. A þennan hátt hjálpuðu þau mömmu sinni mikið, því að þau voru dugleg að tína: hnetur í hnetu-tíðinni, jarðarber í jarð- arberja-tíðinni, fjólur á vorin og hjartagras fvrir „Sankti-Hans daginn. Frh. Verkefni. i. a. Hvað voru börnin mikið skyld ? b. Hvert voru pau að i'ara? c. Hvað voru pau með? d. Hverjir smugu gegnum fötin peirra ? e. Hvað fengu pau í vöggugjöf? f. Var pabbi peírra lifandi? g. Hvernig hjálpuðu pau mömmu sinni ? h. Reyndu að endursegja söguna með eigin orðum. II. Settu orðin rétt inn í eyðurnar: svína- stíu, kassa, hesthús, greni, fjárhús, hsensnakofa. Hús hestsins heitir Hús kindanna heitir............ Svinið býr í Kisa sefur í Tófan býr í Hænan býr í............. P = A_________________=_______ N III. Skrifaðu í evðurnar orð gagnstæðrar merkingar: bjartur ólatur ljós ríkur kuldi seinl sléttur mjúkur seinn hvítur góður frjáls Viljið pið vera svo góð og láta mig vita, hvernig ykku r iíka verkefnin. Hvutti, kisumamma og litli kisi. Einu sinni var stór, grá kisu- mamma, sem átti lítinn kettling. Kisumamma lagðist í anddyrið. því að þar var sólskin, og sagði : „Mjá, mja-a-á, komdu hingað, mja-á!“ Litli grái kisi kom og lagðist upp að hlýjum, mjúkum feldi kisumömmu og malaði: „Pörr-r-rj pörr-r-r!“ í sama bili kom stóri, svarti kvutti frá nágrannanum og sagði: „Vó, vó, voff-voff!“ Stóra, gráa kisumamma og Iitli, grái, kisi uröu hrædd og hlupu burtu sem fætur toguðu. Stóra, gráa kisumamma fann að síðustu anzi hlýlegt skot bak við hlöðuna og lagðist þar laf- móð eftir hlaupin og sagði:„ Mjá, mja-á komdu hingað, mjá!“ Litli, grái kisi kom og lagðist þétt upp að mjúka, hlýja feldin- um hennar kisumömmu og mal- aði: „Pörr-r-r, pörr-r-r!“ Þarna 26

x

Harpan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.