blaðið - 20.06.2005, Side 1
Veldu ódýrt bensín #
^5^+ avinnmg!
vr
*%v\
\ \\ \v
Kvittun fyigir ávinningur!
ó)eGO
Meira fyrir peninginn
Gróöurinn
/ X
b/s
icS
svo flottur
Svo er hann líka
Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700
bladid@vbl.is
Bræður
berjast
- bls. 2
Fyrirtæki forsætisráðherra:
Skortir á sam-
félagslega
ábyrgð
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
kallaði eftir samfélagslegri ábyrgð
fyrirtækja í hátíðarræðu sinni 17.
júní og sagði ábyrgð þeirra gagnvart
starfsmönnum mikla og að þeim bæri
að nýta hagnað til uppbyggingar,
m.a. á sviði menningar og velferðar.
Nokkuð hefur verið fjallað um
tengsl Halldórs við útgerðarfyrirtæk-
ið Skinney-Þinganes. Það fyrirtæki
hefur nú í hyggju að loka fiskvinnslu
sinni á Reyðarfirði en við það missa
um 20 starfsmenn vinnuna.
Að sögn Kristjáns L. Möller alþing-
ismanns eru orð forsætisráðherra
nokkuð sérkennileg í ljósi þessa.
„Það er ansi sérkennilegt að á
sama tíma skuli Skinney-Þinganes
líta þannig á að félagsleg ábyrgð
þeirra á Reyðarfirði sé búin. Ég spyr
einnig eftir samfélagslegri ábyrgð
Framsóknar, sem búin er að vera í yf-
ir 10 ár í ríkisstjóm, en kjör hópa svo
sem aldraðra og öryrkja, eru alls ekki
nógu góð núna.“
Eins og áður sagði missa um 20 ein-
staklingar vinnuna þegar Skinney-
Þinganesi verður lokað á Reyðarfirði í
næsta mánuði. Lars Olsen, formaður
Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar, segir
að flestir starfsmenn fyrirtækisins
séu konur. Hluti af þeim séu komnar
á aldur og hætta því ó vinnumarkaði.
Hjá öðrum sé framtíðin óljós.
„Það er ekkert bjart fram undan
fyrir þessar konur. Það er í raun
mjög þagalegt að þetta skuli gerast
núna því þótt það sé uppgangstími
fram undan þá eru tvö ár í að ólver-
ið hér hefji starfsemi og því í lítið að
sækja fyrir þessar konur nú.“
Lars segir að þegar álver hefji
starfsemi skapist atvinnutækifæri
fyrir konur, bæði í ólverinu sjálfu og
einnig í þjónustu við álverið og starfs-
menn þess.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, for-
maður stéttarfélagsins Vökuls á Suð-
Austurlandi segist ekki hafa orðið
vör við neinn sérstakan félagslegan
stuðning frá Skinney-Þinganesi.
„Sem dæmi þó var það þannig
þegar ég hóf störf hér að Kaupfélag-
ið var ráðandi á staðnum. Þá voru
not fyrir allar vinnandi hendur og
þótt einstaklingar skiluðu kannski
ekki 100% afköstum höfðu þeir engu
að síður vinnu. Þetta hefur verið að
breytast, meðal annars hjá Skinney-
Þinganesi," sagði Hjördís að lokum.
igærkvöldi
2000 konur á
Þingvöllum
- bls. 2
Þungur straumur til
Bleikar styttur
bæjarins
- bls. 2
Blaðið/Gúndi
Kennarar skila
einkunnum seint
- bls. 6
Sömu laun fyrir
sömu vinnu
- bls. 4
Getur eitthvaö
stöðvaö FH?
Gríðarleg umferð var um allt land nú
um helgina, enda nýttu margir tæki-
færið og notuðu þessa þriggja daga
helgi til ferðalaga. Mikið var um um-
ferðaróhöpp og umferðarslys og fórust
þrír um helgina af þeim sökum.
Banaslys í Reykjavík
í gær lést rúmlega fertugur maður
í Reykjavík er bíll sem hann ók lenti
á stólpa undir brúnni á Miklubraut
þar sem hún liggur yfir Reykjanes-
brautina. Slysið átti sér stað um tíu-
leytið í gærmorgun en tildrög þess
eru óljós. Eftir slysið var maðurinn
fluttur alvarlega slasaður ó sjúkra-
hús, þar sem hann lést síðar. Hann
var einn í bílnum.
Tveir létust í Öxnadalnum
Alvarlegt umferðarslys varð í Öxna-
dalnum á fimmtudagskvöldið þegar
tveir unglingspiltar biðu bana eftir
að bifreið þeirra lenti utan vegar. Fé-
lagi þeirra liggur nú þungt haldinn á
gjörgæsludeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss en fjórði maðurinn sem
í bílnum var slapp með minni háttar
áverka. Tildrög slyssins eru óljós en
þau eru til rannsóknar hjá lögregl-
unni á Akureyri.
Bílvelta, ákeyrsla og árekstur
Að kvöldi þjóðhátíðardagsins, 17.
júní, valt pallbifreið við bæinn Varma-
læk í Borgarfirðinum. Maðurinn, sem
í bílnum var, slasaðist alvarlega og
var fluttur ó Landspítala-háskóla-
sjúkrahús þar sem hann gekkst und-
ir aðgerð á laugardaginn. Þar fengust
þær upplýsingar að maðurinn væri al-
varlega slasaður en ekki í lífshættu.
Á Akureyri var ekið á gangandi
vegfaranda að kvöldi laugardags.
Maðurinn var á leið yfir Glerórgöt-
una er slysið átti sér stað en hann
fótbrotnaði við slysið.
Þriggja bíla árekstur varð í Breið-
dalslegg Vestfjarðarganganna á
fimmta tímanum á laugardaginn.
Engin slys urðu á fólki við óhappið en
talsvert eignatjón.
Mikið var að gera hjá lögreglunni
víða um land, enda virðist sem svo að
margir hafi verið að flýta sér óþarf-
lega mikið í helgarumferðinni. Þann-
ig var á sjöunda tug manna tekinn
fyrir of hraðan akstur á Akureyri um
helgina, og má gera ráð fyrir að sekt-
arupphæð vegna brota þeirra sé sam-
tals um 1,5 milljónir króna. Bíladagar
voru haldnir á Akureyri um helgina
og áhugasamir aðilar um kraftmikla
bfla fjölmennir á staðnum.
Mikil umferð í gær
Gríðarleg umferð var inn í borgina
seinnipartinn í gær og í gærkvöldi. Þó
hjálpaði rigningin sunnanlands eitt-
hvað til því lögreglan ó Selfossi taldi
að margir hefðu lagt fyrr af stað en
ella vegna hennar og umferðarólagið
því dreifst.
Blaðið hafði samband við lögreglu-
menn um land allt seinnipartinn í
gær. Það var einróma ólit þeirra að
umferðin væri mikil en hún gengi
vel fyrir sig. Þó væru ennþá nokk-
ur dæmi um hraðakstur, þrátt fyrir
þessa miklu umferð.
Þrír létu lífið í
umferðinni um helgina
Karlmaður um fertugt lést á gjörgæslu í gær