blaðið - 20.06.2005, Síða 6
mánudagur, 20. júní
2005 I blaðið
Náttúruvernd-
arsinni beitt-
ur harðræði?
Náttúruverndarsinninn, Paul Gill,
sem ásamt tveimur íslendingum
sletti skyri sínu á fulltrúa sem sátu
ráðstefnu alþjóðlegra iðnfyrirtækja
á Nordica Hóteli í síðustu viku, var
sleppt úr gæsluvarðhaldi á laugar-
dag eftir að hafa setið í haldi frá því
á þriðjudag. Hann var heldur þrekað-
ur eftir fangavistina.
Frá handtöku Gill á þríðjudag
Vilja að allir hljóti sömu með-
ferð
Örnu Ösp Magnúsardóttur og Ólafi
Páli Sigurðssyni, sem einnig tóku
þátt í aðgerðinni, var sleppt eftir
sólarhringsvarðhald. í fréttatilkynn-
ingu, sem þau sendu frá sér fyrir
skemmstu, er meðferð málsins harð-
lega gagnrýnd. Þar segir: „Telji þeir
sem að rannsókn málsins standa að
þörf sé á gæsluvarðhaldi yfir þeim
sem koma mótmælum sínum á fram-
færi með þeim aðferðum sem við beitt-
um (á meðan mönnum sem grunaóir
eru um aðild að bamaklámhringjum
er sleppt að lokinni yfirheyrslu) er
rökrétt að við hljótum einnig sömu
meðferð og Paul Gill og verðum úr-
skurðuð í frekara gæsluvarðhald."
Gill fylgir sérstöku mataræði sem
ekki samræmist hefðbundinni ís-
lenskri matargerð og því gat hann
lítið borðað í fangelsinu. Vinir hans
reyndu að koma til hans mat en
Arna segir þeim hafa verið meinað
að hjálpa honum. Hann hafi fengið
eina fulla máltíð alla fimm dagana
sem hann var í haldi.
Paul er í farbanni til 1. júlí og þarf
tvisvar á dag að hitta fulltrúa lögregl-
unnar til að láta vita af sér.
MBO
Nýr Hlemmur
Kynning á nýju deiliskipulagi og fyr-
irhuguðum framkvæmdum í næsta
nágrenni Hlemms, fer fram í stræt-
óskýlinu á Hlemmi í dag.
Dagskráin hefst með því að Dag-
ur B. Eggertsson, formaður Skipu-
lagsráðs Reykjavíkur, kynnir helstu
áherslur deiliskipulagsins og fyrir-
hugaðra framkvæmda. Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt flytur erindi um
sögu svæðisins, auk þess sem staða
nýja skipulagsins og nýtt leiðakerfi
strætisvagna verður kynnt.
Einnig verður umfjöllun um ein-
staka deiliskipulagsreiti; Einholt/
Þverholt, Ármannsreit og Höfðatorg.
Þá munu fulltrúar samtakanna Lifi
Norðurmýrin, lögreglunnar og Klink
ogBank tjá sig um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir.
Fundurinn er öllum opinn en
aðstandendur hans hvetja íbúa á
svæðinu og aðra, sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta, sérstaklega til
að mæta og kynna sér fyrirhugaðar
framkvæmdir. ■
Hreyfing lækki lyfja-
og aðgerðakostnað
Ætla má að samanlagður kostnað-
| ur við meðferð á sjúkdómum tengdum
offitu hlaupi á hundruðum milljóna,
eða jafhvel milljörðum króna, fyrir ís-
lenska heilbrigðiskerfið. „Margir sem
þjást af offitu hafa til dæmis þurft að
fara í liðskiptiaðgerðir, bara mjaðma-
aðgerð kostar milljón," segir Ásta
RagnheiðurJóhannesdóttir,þingmað-
| ur Samfylkingarinnar.
Margir sjúkdómar í kjölfar
offitu
„Þróun í mataræði samfélagsins er
; rosalegur kostnaður fyrir heilbrigðis-
kerfið. Það eru ekki bara
offituaðgerðir því offita hef-
ur svo marga sjúkdóma í
för með sér sem og kvilla,"
segir Ásta. Þeir sjúkdóm-
ar sem rekja má til lélegs
mataræðis eru meðal ann-
ars hjarta- og æðasjúkdóm-
ar, beinþynning, sykursýki
og krabbamein. Auk þessa
eiga þeir sem þjást af of-
fitu einnig við ýmis kon-
ar félagsleg vandamál
að stríða. Þar má nefna
einelti, einangrun og alls
konar aðrar hliðarverk-
anir sem koma að þessu.
„Ef við grípum ekki inn í
þetta núna, áður en fólk
verður svona feitt, má
búast við því að heilbrigð-
iskerfið standi frammi
fyrir óskaplega stórum
vanda í framtíðinni.
Nógu stór er hann fyrir.“
Ef við gríp-
um ekki
inn í lendir
heilbrigð-
iskerfið
í vanda í
framtíð-
inni.
Offitutengdir sjúkdómar kosta
skattborgara offjár.
Læknar
ávísi hreyfingu
Ásta lagði fram þingsálykt-
unartillögu í vetur um að
læknar geti ávísað á hreyf-
ingu og ráðleggingar um
hollara mataræði í stað
þess að grípa alltaf til lyfja
og læknisaðgerða. Þetta
þekkist á Norðurlöndun-
um og hefur skilað góðum
árangri á þeim fimm árum
sem það hefur verið við lýði.
Ásta segir ætlunina vera
að minnka lyfjakostnað og
kostnað á læknisaðgerðum
og koma í veg fyrir ýmsa
sjúkdóma sem hljótast af
offitu. Þingsályktunin var
ekki afgreidd fyrir vorið en
Ásta segist ætla að taka hana fyrir aft-
ur í haust. Hún nýtur stuðnings frá
þingmönnum allra flokka þannig að
hún stefnir að ná henni í nefnd. „Við
erum að berjast í því á öllum vígstöðv-
um að sporna við þeirri þróun á offitu
sem er að verða í samfélaginu."
Skiptar skoðanir um virði hlutabréfa
Skiptar skoðanir eru um virði hluta-
bréfa íslenskra fyrirtækja. Atli B.
Guðmundsson, sérfræðingur hjá
greiningardeild íslandsbanka, seg-
ir að hlutabréfaverð ráðist alltaf
af væntingum fjárfesta. „Þær eru í
ágætu samræmi við það sem verið
hefur síðustu misseri. Okkur þykir
því að rekstur fyrirtækjanna standi
ágætlega undir verðinu á hlutabréf-
unum. í því sambandi bendum við á
að í langflestum tilfellum eru stærstu
félögin mjög nálægt verðmati okkar,"
segir Atli.
Hátt verðlagður markaður
Edda Rós Karlsdóttir hjá greining-
ardeild Landsbankans er á því að
markaðurinn sé frekar hátt verðlagð-
ur. „Algengt viðmið er að skoða virði
fyrirtækjanna á markaði og deila í
með hagnaði. Það hlutfall er frekar
hátt þannig að markaðurinn er frek-
ar hátt verðlagður," sagði hún. Að-
spurð um hvort markaðurinn sé of
hátt verðlagður segist Edda vilja bíða
fram á þriðjudag [á morgunj með að
segja til um það þar sem þá gefur
greiningardeild bankans út ársfjórð-
ungsspá sína. „Við leggjum áherslu
á það að leggja aðeins mat á hluti
sem eru í hendi. Þegar við segjum
fyrir um vöxt og slíkt tökum við mið
af markaðsrannsóknum. Það er eins
og markaðurinn geri ráð fyrir að geta
stækkað meira, sem hefur síðan sýnt
sig að vera rétt í mörgum tilfellum."
Hækka á næstunni
Þau Edda Rós og Atli eru sammála
í því að á næstunni muni verð hluta-
bréfa hækka. Edda Rós segir að hún
eigi von á hóflegum hækkunum. Þá
sveiflist hlutabréfaverð í eðli sínu.
Atli segir að á næstu misserum sjái
greining íslandsbanka forsendur fyr-
ir því að hlutabréf hækki í verði en
að hækkunin verði langtum minni en
hún hefur verið síðustu tvö til þrjú
árin.
Súrmjólkurmótmæli
Spilla fyrir náttúru-
verndarsinnum
Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, segist harma mjög
þær aðferðir sem náttúru-
vemdarsinnar beittu fyrir
utan álráðstefnuna á Nord-
ica Hóteli í síðustu viku.
Hún segir það að sletta
súrmjólk séu aðgerðir sem
séu ekki til neins annars
en að spilla fyrir þeim
sem virkilega eru nátt-
úruvemdarsinnar í hjarta
sínu. Valgerður tekur illa
í athugasemdir þeirra
sem segja að þama hafi
einungis eyðilagst nokkur
jakkaföt þeirra sem vilja
eyðileggja íslenska nátt-
úru. Gmndvallarmunur
sé að þeir sem byggja álver fari eftir
lögum, ólíkt þeim sem súrmjólkinni
slettu. „Ég held að almennt séð séu ís-
lendingar óánægðir með svona fram-
komu og hún bætir ekki
málstaðinn."
Valgerður segist bera
virðingu fyrir ólíkum skoð-
unum fólks á stóriðju og að
það sé ekkert óeðlilegt að
menn velti henni fyrir sér.
„Með því að vinna ramma-
áætlun um nýtingu jarð-
varma og vatnsfalls erum
við að átta okkur betur á
því hvaða virkjanakostir
eru æskilegastir út frá
svo mörgum sjónarhólum.
Bæði hvað er hagkvæmt
og líka hvað hefur mesta
náttúmverndargildið. Ég
tek alveg undir að nauð-
synlegt sé að fara með
skynsemi í hlutina," sagði
hún.
Aðspurð segir Valgerður ekki
ætlunina vera að stóriðjuvæða allt
landið, eins og mörgum finnst út-
lit fyrir. „Þetta er bara ekki svona,
ég hef sjálf verið með varnaðarorð í
þessu sambandi og gerði það þegar
ég ávarpaði ráðstefnuna. Þar sagði
ég að okkur væru takmörk sett, m.a.
vegna náttúrunnar. Þegar við erum
komin með upp undir milljón tonn af
áli á ári þá er það orðinn það ríkur
þáttur í útflutningstekjum okkar að
við þurfum virkilega að hugsa okkur
um hvort við viljum ganga lengra á
þeirri braut."
Valgerður
Sverrisdótt-
ir harmar
súrmjólk-
uraðgerðir
náttúruvemd-
arsinna.
M---------
Almennt
séð eru
íslendingar
óánægðir
með svona
framkomu
og hún
bætir ekki
málstað-
inn.
20% barna of þung
í ársskýrslu Sigurðar Guðmunds-
sonar landlæknis kemur fram að of-
þyngd og offita sé vaxandi í velferðar-
samfélaginu. Nú sé svo komið að um
20% íslenskra barna eru of þung og
um 5% of feit. Eru íslendingar á svip-
uðu stigi og nálægar þjóðir í Evrópu
og eiga með sama framhaldi fimm til
tíu ár í að ná Bandaríkjamönnum.
Þá segir að offita sé sennilega, ásamt
tóbaksreykingum, eitt af alvarleg-
ustu heilbrigðisvandamálum sem við
okkur blasa. Ókeypis máltíðir í öllum
skólum og leikskólum, fjölgun íþrótta
eða hreyfingartíma í skólum og aðstoð
við foreldra vegna aðildar barna að
íþróttafélögum, myndu vega þungt í
baráttunni við offitu. Auk þess væru
það skýr skilaboð til samfélagsins
um að litið sé á offitu sem alvarlegan
vanda sem tekið yrði á. ■
Minni veiði
Heildarafli íslenskra fiskiskipa í maí
var rúm 135.000 tonn, sem er tölu-
vert minni afli en á sama tíma í fyrra,
en þá var hann rúm 155.000 tonn.
Þetta kemur fram í hálffímmfréttum
KB banka. Ástæðan er aðallega mik-
ill samdráttur í kolmunnaveiðum, en
kolmunnaaflinn minnkaði um 20.500
tonn á milli ára. Einnig var nokkur
samdráttur í síldar- og rækjuafla.
Ef litið er til aflaverðmætis þá
jókst það um 1,4% í maí, miðað við
sama mánuð árið 2004.
Þrátt fyrir samdrátt í maímánuði
er heildarafli íslenskra skipa, það
sem af er árinu, rúm milljón tonn en
það er rúmum 126.000 tonnum meira
en veiddist á sama tíma í fyrra. Þar
munar mest um aukingu á loðnuveið-
um, en loðnuaflinn hefur aukist um
115.000 tonn. Þá hefur kolmunnaafl-
inn aukist um 10.600 tonn, auk þess
sem ríflega 20.700 tonna aukning
varð í botnfiskafla. ■
Slagsmál
í Súðavík
Til átaka kom eftir dansleik í
Súðavík í fyrrinótt. Nokkur fjöldi
manna safnaðist þá saman og kom
til orðaskaks sem endaði með því að
slagsmál brutust út. Kalla þurfti á
lögreglu frá ísafirði sem notaði svo-
kallaðan mace-úða til að kæla menn
niður. Einn var handtekinn og gisti
hann fangageymslur á ísafirði. Ekki
er vitað hvort einhver eftirmál verða
af þessu.
Aukin framleiðni
Framleiðni á vinnustund hefur vaxið
hratt undanfarin misseri. Á síðasta
ári jókst hún um 5,1%. Þetta kemur
fram í Morgunkorni íslandsbanka.
Framleiðnivöxturinn er langt umfiram
meðaltal síðustu ára og umfram það
sem við sjáum í flestum öðrum hag-
kerfum um þessar mundir. íslands-
banki bendir á að á tímabilinu 1994-
2003 hafi framleiðni á vinnustund hér
á landi aukist um 2,1% árlega en um
1,4% árlega á tímabilinu 1985-2003.
fslenska hagkerfið er því ekki leng-
ur eftirbátur annarra hagkerfa hvað
framleiðni varðar heldur stöndum við
okkur betur hvað þetta varðar. ■
DRAGTADAGAR
Mánudag - laugardags
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi
Sími 554 4433
Opnunartími
mán - föst. 10-18
laugardaga 10-16