blaðið - 20.06.2005, Síða 14
mánudagur, 20. júní 2005 ! blaðið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri:
Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar:
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á fréttadeild: 510-
3701. Símbréf á auglýslngadelld: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is,
auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Hvenær er nóg komið?
Ein stærsta umferðarhelgi ársins er að baki. Gleðistundir
sumra eru sorgarstundir annarra. Umferð helgarinnar kostaði
þrjú mannslíf - tveir liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi eftir
slys á þjóðvegum. Þetta er sorglegur endir á þessari miklu
ferðahelgi. Fregnir af þessum hörmulegu slysum virðast lítil
áhrif hafa. Ökumenn halda áfram að aka eins og brjálæðingar.
Það er nánast undantekning ef löglegur hámarkshraði er virt-
ur úti á vegum. Þeir sem aka á löglegum hraða eru hreinlega
skildir eftir í kappakstri íslenskra þjóðvega. Oftar en ekki er
flautað á þá sem aka á löglegum hraða og þeir sakaðir um að
te§a fyrir eðlilegri umferð. Því miður telst það til undantekn-
inga að sjá lögreglu stöðva og sekta ökumenn sem aka of hratt.
Þannig er eftirlit á þjóðvegum í molum og þorri manna gengur
á lagið. Slysum fjölgar og framúrakstur verður æ glæfralegri.
Það er athyglisvert að á einum vegarkafla kjósa flestir öku-
menn að hægja verulega á sér - það er á þjóðvegi 1 í kringum
Blönduós. Lögreglan þar í bæ hefur tekið upp virkt umferðar-
eftirlit og er löngu orðin landsþekkt fyrir aðgerðir sínar gegn
ökufóntum. Þetta hefur leitt til þess að hraði í umferðinni
hefur minnkað verulega í kringiun bæinn. Þetta segir okkur
aðeins eitt - að virkt eftirlit skilar sér í minni hraða og færri
slysum.
Því miður hafa önnur lögregluembætti ekki tekið sér Blöndu-
ósbúa til fyrirmyndar. Að hætta sér út í íslenska þjóðvegaum-
ferð í kringum stórhátíðir er eins og að taka þátt í rússneskri
rúllettu. Allri skynsemi er fórnað til að vinna sér inn nokkrar
sekúndur eða mínútur. íslenskir ökufantar hætta lífi sínu og
annarra á hveijum degi án þess að nokkuð sé að gert.
Nú er það auðvitað svo að það er ekki nóg að skamma lögregl-
una fyrir framgöngu hennar. Ábyrgðin liggur fyrst og fremst
hjá ökumönnunum sjálfum. Óþolinmæði og sjálfselska ein-
kennir þjóðarsálina og það smitar út frá sér. íslendingar virð-
ast oft eiga erfitt með að læra, eiga erfitt með að taka tillit til
annarra og eiga erfitt með að sætta sig við lög og reglur. Þann-
ig endurspeglast þjóðarsálin í umferðinni. Meðan ekkert er að
gert Qölgar slysunum og tala látinna í umferðinni hækkar sí-
fellt. Skiltið á Hellisheiði, sem minnir okkur á fjölda látinna,
hættir að hafa tilætluð áhrif. Það er miklu skemmtilegra að
kitla bensínpinnann aðeins betur - þannig höldum við beint
inn í eilífðina.
Tvíþætt kreppa ESB
eftir Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og formann Evrópunefndar.
Vandræðin innan Evrópusambands-
ins (ESB) minnkuðu ekki heldur
mögnuðust á leiðtogafundi þess í
Brussel 16. og 17. júní. Kreppan inn-
an ESB er tvíþætt. Hún snýst annars
vegar um eftirleik þjóðaratkvæða-
greiðslnanna í Frakklandi og Hol-
landi, þar sem stjórnarskrársáttmála
ESB var hafnað. Hins vegar er krepp-
an vegna deilna um fjárlög ESB fyrir
árin 2007-2013.
Að loknum leiðtogafundinum í síð-
ustu viku er meðal annars dregin sú
ályktun af vandræðunum, sem þar
ríktu, að innan ESB takist á talsmenn
tveggjameg-
insjónar-
miða. Það er
þeirra, sem
vilja meiri
samruna í
átt til sam-
bandsríkis
Evrópu, og
hinna, sem
vilja að sam-
vinnan snú-
ist um frjáls
viðskiptiinn-
anríkjasam-
bands. Frakkar og Þjóðverjar, auk
Lúxemborgara sem nú eru að láta af
pólitísku forsæti ESB, eru taldir mál-
svarar sambandsríkis, en Bretar eru
í forystu þeirra sem halda fram mál-
stað ríkjasambands.
Klassísk deila
Deilan um ríkjasamband eða sam-
bandsríki er klassísk á evrópskum
vettvangi. Hið nýja er að nú tvinnast
hún inn í umræður um stjórnskipu-
lag og fjárlög - grunnþætti alls form-
legs pólitísks samstarfs, hvort heldur
innan ríkja eða milli þeirra.
Öllum íslendingum væri ljóst að
eitthvað mikið væri að ef innan rík-
isstjórnarinnar logaði allt í illdeilum
vegna ágreinings um stjórnarskrá
og fjárlagagerð. Ráðherrar væru að
glíma við vanda sem stafaði af því
að stjórnarskrárbreytingar nytu ekki
almenns stuðnings, og af því að þeir
gætu ekki sameinast um grundvallar-
þætti við fjárlagagejý.
Ef slíkt ástand ríkti hér eða í ein-
hverju öðru lýðræðisríki væri enginn
í vafa um hvað ætti að kalla það: Al-
varlega stjórnarkreppu. Næsta sem
við blasti væri að ríkisstjórn segði
af sér, af því að hún hefði ekki burði
til að leysa brýnustu verk-
efni sín.
Enginn kallaður til
ábyrgðar
í ESB er ekki unnt að
kalla neinn til ábyrgðar á
sama hátt og gert er í þing-
ræðisríkjum, þar sem rík-
isstjórn getur ekki komið
málum fram án stuðnings
meirihluta þingmanna.
Framkvæmdastjórn ESB
býr ekki við neitt slíkt
aðhald og pólitísk forysta
innan ESB færist frá einu
ríki til annars - um næstu
mánaðamót frá Lúxem-
borg til Bretlands.
Þróunin hefur verið á
þann veg að ráðherrar og ríkisstjórnir
ESB-ríkja láta sér vel lynda og stuðla
jafnvel að því að málefni, sem þeir
vita að eru erfið úrlausnar vegna and-
stöðu á þingi heima fyrir, séu gerð að
ESB-málum og hrundið í framkvæmd
án þingræðislegs aðhalds. Uppsöfnuð
óánægja með slíka framgöngu átti
sinn þátt í sigri nei-manna í Frakk-
landi og Hollandi á dögunum - fólki
er nóg boðið, jafnvel Frökkum.
Vandinn innan ESB núna er vegna
þess að Brussel-valdið er ekki ótak-
markað. Embættismönnunum er
stundum sú leið ein fær að taka tillit
til sjónarmiða almennings í aðildar-
löndunum. Frakkar og Hollendingar
hafa fellt stjórnarskrársáttmálann
og ákveðið hefur verið að öðrum þjóð-
um verði gefið ráðrúm fram á næsta
ár til að ákveða, hvernig þær taka á
málinu. í þessari ákvörðun leiðtog-
anna í Brussel 16. júm' felst að þeir
sem líta á stjórnarskrársáttmálann
sem dauðan bókstaf í orðsins fyllstu
merkingu, hafa sigrað - útgáfu dán-
arvottorðsins er frestað.
Embættismenn leysa ekki
deiluna
Deilan um fjárlögin byggist að öðrum
þræði á óánægju með það sem marg-
ir telja fjáraustur vegna landbúnað-
arstefnu ESB, og að hinu leytinu á
kröfu um að Bretar njóti ekki lengur
rúmlega fjögurra milljarðra evra af-
sláttar á gjöldum til sameiginlegra
ESB-sjóða.
Margaret Thatcher
samdi um afsláttinn í
þágu Breta fyrir um það
bil tveimur áratugum.
Nú jafngilti það pólitísku
sjálfsmorði ef Tony Blair,
forsætisráðherra Breta,
félli frá kröfunni um af-
sláttinn. Blairfinnstheppi-
legt að binda andstöðu
sína við að samþykkja
breytingu á afslættinum
við nýskipan landbúnað-
armála og minni útgjöld
til þeirra. Samdráttur í
landbúnaðarstyrkjum er
fleinn í holdi Jacques Chir-
acs Frakklandsforseta.
Embættismenn í Brus-
sel eða þingmenn á Evrópusambands-
þinginu leysa ekki kreppuna innan
ESB. Hún verður ekki leyst nema
með samkomulagi leiðtoga stærstu
ríkjanna innan sambandsins og þar
skiptir mestu hvort forystumönnum
Breta, Frakka og Þjóðveija tekst að
semja sín á milli.
Ásakanir á báða bóga
Tony Blair hefur sterkari pólitíska
stöðu en þeir Jacques Chirac, væng-
brotinn eftir þjóðaratvæðagreiðsluna,
og Gerhard Schröder, í stórhættu að
tapa kanslaraembætti Þýskalands.
Bretar undir stjórn Blairs verða í
forsæti ráðherraráðs ESB næstu sex
mánuði, frá 1. júlí. Blair hlaut í síð-
asta mánuði endurnýjað umboð til að
leiða ríkisstjórn Bretlands, og þótt
bakland hans í Verkamannaflokkn-
um sé ekki eins sterkt og áður, er um-
boð hans miklu skýrara en Chiracs
og Schröders.
Tekist er á um innviði og megin-
stefnu Evrópusambandsins og á síð-
asta leiðtogafundi þess breikkaði bilið
milli helstu deiluaðila. Eftir fundinn
geta menn ekki leynt óánægju sinni
hver í garð annars og ásakanir fljúga
á báða bóga. Tvíþætta kreppan er
magnaðri eftir fundinn en fyrir
hann.
«---------
í ESB er
ekki unnt
að kalla
neinn til
ábyrgðará
sama hátt
og gert er í
þingræðis-
ríkjum
loftkœling
Verð frá 49.900 án vsk.
ís-húsid 566 6000
Vegna styttingar á stúdentsprófi og ákvörðun KÍ
Vinnubrögð menntamála-
ráðherra mikil vonbrigði
ókeypistil
Tillögur ráðherra baru þess rík merki að ekki var
hlustað á skólasamfélagið.
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaðió
Sú harkalega ákvörðun Kennarasam-
bands íslands, að draga sig út úr
öllu samstarfi við ráðuneyti mennta-
mála um styttinguna á námstíma
til stúdentsprófs, varpar skýru ljósi
á þau ámæl-
i s v e r ð u
vinnubrögð
semMennta-
málaráðu-
n e y t i ð
ástundar við
tillögur um
styttingu á
námstíma
til stúdents-
prófs. Sam-
fylkingin
hefur ítrek-
að lýst því yfir að forsenda stytting-
ar á námstíma til stúdentsprófs sé
ítarlegt samráð við skóla-
samfélagið þar sem sam-
fella á milli skólastiga er
í forgrunni. Án þess kem-
ur slík breyting ekki til
greina.
Það er ástæða til að
skora á menntamálaráð-
herra að ráðast nú í víð-
tækt samráðsferli í frekari
vinnu við þá meginbreyt-
ingu á menntakerfinu
sem stytting á námstíma
er, t.d. með samtökum
kennara, nemenda, og öðr-
um stjómmálaflokkum í
landinu en fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins. Verði slík
vinnubrögð ekki viðhöfð
er það einboðið að næsta
atrenna ráðherra að stytt-
u—
Ráðherra
hunsaði
skólasam-
félagið í
vinnu við
tillögur um
styttingu á
námstíma
tilstúdents-
prófs.
ingu á námstíma lendi
einnig í ruslakörfu ríkis-
stjórnarinnar, ásamt fyrri
tillögum.
Ráðherrahunsaðiskóla-
samfélagið í vinnu við til-
lögur um styttingu á náms-
tíma til stúdentsprófs
með þeim afleiðingum að
ríkisstjórnin var hrakin
til baka með áður boðað-
ar tillögur á Alþingi í vor
og nú segja samtök kenn-
ara sig formlega frá vinn-
unni vegna lítilsvirðingar
menntamálaráðherra.
Tillögur ráðherra báru
þess rík merki að ekki var
hlustað á skólasamfélag-
ið, enda hefðu þær skert
innihald stúdentsprófsins
verulega og gengisfellt það, hefðu
þær gengið eftir. Framhaldsskólinn
stæði veikari á eftir og fjölbreytnin á
milli skóla og brauta til muna minni
en áður.
Tillögurnar sem Menntamálaráðu-
neytið boðaði í vetur voru með þeim
hætti að framhaldsskólamenntun
hefði versnað. Því er það gott að ráð-
herra menntamála var rekinn til
baka með tillögurnar af skólasamfé-
laginu sjálfu og þeim sem hafa gagn-
rjhnt hvemig staðið var að málum að
hálfu menntamálayfirvalda.
Björgvin G. Sigurðsson alþingis-
maður www.bjorgvin.is