blaðið - 20.06.2005, Qupperneq 17
blaðið i mánudagur, 20. júní 2005
Gróðurinn ánægður með
- ekkert nema gott mál ef rigna fer á næstunni
halldora@vbl.is
rigninguna
Það fór ekki fram hjá mörgum á höf-
uðborgarsvæðinu í gær að skýin svifu
fyrir sólu og rigning gerði vart við
sig. Eftir nokkurra daga sólarblíðu
og rigningarleysi voru margir farnir
að velta því fyrir sér hvernig á þessu
gæti staðið hér á íslandi, þó svo að
flestir hafi nú verið hæstánægðir með
blíðskaparveðrið. Hjá plöntunum er
hins vegar raunin önnur. Plönturíkið
í heild sinni hefur þurft að líða fyrir
eftirsóknarvert veðurfar okkar mann-
fólksins, en mikill hefur verið vatns-
skorturinn hjá gróðrinum.
„Þetta hefur verið alveg hrikalegt
fyrir gróðurinn og ég held að hann sé
almennt ánægður með nokkra dropa.
Hjá þeim er vatn undirstaða alls, rétt
eins og hjá okkur, og því er ekkert
nema gott mál þegar fer að rigna. Það
er reyndar svo að þótt nokkrir dropar
hafi komið frá himni er það alls ekki
nóg - á þeim blómum sem fengu á
sig rigningu var bleytan rétt aðeins
á yfirborðinu en ekki í jarðveginum,"
segir Einar Nielsen, garðyrkjumaður
hjá Gróanda í Mosfellsbæ, en hann
vonast eftir meiri rigningu og þá í
nokkra daga í senn. „í tíðarfari eins
og þessu fær gróðurinn aldrei of mik-
ið af vatni. Þess vegna er líka mjög
mikilvægt að við vökvum gróðurinn
vel og nægilega oft. Þetta er afar
mikilvægt - safaspenna plöntunnar
gerir það að verkum að hún byijar að
hanga við þurrk, auk þess sem hún
fellir blöðin til þess að minnka upp-
gufun.“
Einar segist vilja benda fólki á að
vökva frekar seinni part dagsins, þá
séu meiri líkur á að rakinn síist ofan í
jarðveginn. .fynnars er nú bara mikil-
vægt að fólk vökvi alltaf sé það í vafa,
þá erum við í ágætismálum," segir
hann að lokum, og ítrekar að við eig-
um að vera opin fyrir nokkrum rign-
ingardögum. „Það má sko alveg fara
að koma mikil rigning, þótt við hlökk-
um vissulega alltaf til sólarinnar er
fólk orðið skrælnað og langþreytt á
þurrkinum. Þetta er eiginlega búið
að vera óeðlilegt síðustu daga - heilu
vikurnar sem ekkert rignir, það er
mjög slæmt!"
Uppblásin
tækifærislaug
Fyrir þá sem sjá ekki ástæðu til þess
að hafa pott í garðinum hjá sér allan
ársins hring er nú hægt að nálgast
uppblásna potta, eða eiginlega sund-
laug, í verslunum hér heima sem og
á erlendum heimasíðum. Á heima-
síðunni gadgetstuff.com er að finna
slíka laug en hana er hægt að panta
og fá síðan senda heim að dyrum inn-
an nokkurra vikna. Laugin er afar
auðveld uppsetningar og allnokkr-
ir geta verið í henni í einu, en ekki
er þó gert ráð fyrir því að fólk taki
sprett. Aðallega er þetta hugsað sem
þægileg slökun í góði veðri, nú eða í
partíinu. Þá er þetta einnig sniðug
lausn fyrir þá sem ekki vilja raska
umhverfinu í garðinum með því að
byggja fyrir pott eða gera róttækar
breytingar til lengri tíma. Lauginni
er svo pakkað saman þegar vetra fer
og hún sett inn í bílskúr þar sem hún
bíður síns tíma.
Grillsvuntan góð
í grillveisluna
H v e r
þ a r f
e i 1 t
eldhús,
fullt af
grill-
v ö r -
u m ,
þegar hægt er
að setjauppheilu
grillveisluna með því einu að styðj-
ast við grillið, matinn og svuntuna?
Nú er hægt að fjárfesta í glæsilegri
svuntu en hún er búin öllum þeim
grillgræjum sem til þarf þegar sumar-
vertíðin hefst og grillararnir fara að
láta á sér kræla. Með grillsvuntunni
fylgja helstu áhöld sem nauðsynleg
eru, auk þess sem svuntan er þeim
eiginleikum gædd að hægt er að rúlla
henní saman og er hún því afar hent-
ug í ferðalögin og til geymslu. Þar fyr-
ir utan er sá sem svuntuna ber eins
og sannkallaður fagmaður á þessu
sviði því hún er afar vegleg og vönd-
uð. Þá fylgir einnig grillhanski með
í kaupunum, sem gerir fólki kleift
að töfra fram glæsilegustu máltíð án
þess að ata sig út í olíu eða sósu.
Til í öllum helstu verslunum sem
sérhæfa sig í grill- og heimilsvörum.
Hágæða '>
sláttutæki
Collector 45 sláttuvél
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashirftikassi
Combi 45S sláttuvél með drifi
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashirðikassi
Carden Combi sláttutraktór
12,5 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
170 Itr. grashirðikassi
Estate Pro 22 sláttutraktór
22 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
300 Itr. grashirftikassi
Vetrarsol ehf. Askalind 4 Kopavogi Simi 5641864