blaðið - 20.06.2005, Page 23
blaðið I mánudagur, 20. júní 2005
...
Birgir Leifur end-
aði í 49.-53. sæti
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG
endaði í 49.-53. sæti á Aa Saint-
Omer mótinu í Frakklandi en það er
hluti af evrópsku mótaröðinni. Birg-
ir náði sér ekki á strik í lokahringn-
um og lék hann á 77 höggum eða
sex yfir pari eftir að hafa verið í
11.-13. sæti fyrir lokahringinn. Birg-
ir lék hringina fjóra á 288 höggum
eða fjórum höggum yfir pari og
var hann alls átta höggum á eftir
efsta manni. Birgir lék frábært golf
á fyrsta degi mótsins er hann var
á þremur undir pari vallarins og
var hann í efsta sætinu eftir fyrsta
daginn ásamt nokkrum öðrum
kylfingum. Birgir lék á 74 höggum
á öðrum degi en á laugardaginn lék
hann gott golf og var á 69 höggum
eða tveimur undir pari. Gærdag-
urinn var hins vegar, eins og fyrr,
segir ekki nógu góður hjá Birgi og
því varð hann að sætta sig við að
enda fyrir neðan miðju eftir að hafa
verið lengi vel við toppbaráttuna.
Þess má til gamans geta að jafn
Birgi í 49.-54. sæti var franski kylf-
ingurinn Jean Van De Velde, sem
er frægastur fyrir að hafa misst
fimm högga forskot niður á síðasta
degi opna breska meistaramótsins
árið 1999. Þar vakti Van De Velde
einnig athygli fyrir uppátæki sín en
undir lok mótsins óð hann meðal
annars út í vatn og ætlaði að slá
boltann sinn þar en hann féll hins
vegar frá þeirri hugmynd.
ísland
tryggði sér
sæti á EM
íslenska karlalandsliðið i handknatt-
leik hefur tryggt sér þátttökurétt á
Evrópumótinu í Sviss, sem fram fer
í janúar á næsta ári. ísland þurfti að
spila tvo leiki gegn Hvít-Rússum
sem báðir unnust, sá fyrri 33-24
í Kaplakrika í síðustu viku, en sá
síðari 31-34 í Minsk á laugar-
daginn. fslenska liðið spilaði sig
bara í gegnum leikinn án teljandi
erfiðleika en staðan í hálfleik var
17-18. Það vantaði baráttugleði og
ákveðni til að rúlla upp heimamönn-
um en sigurinn var þó miklu meira
en nóg en hann var samtals 12
mörk. Einar Hólmgeirsson skoraði
sjö mörk í leiknum og varð marka-
hæstur en Guðjón Valur Sigurðs-
son skoraði fimm. Snorri Steinn
Guðjónsson skoraði fjögur, þar
af tvö úr vítaköstum og Jaliesky
Garcia skoraði einnig fjögur, líkt og
Ólafur Stefánsson og línumaðurinn
Róbert Gunnarsson. Alexander
Pettersson setti þrjú og þeir Dagur
Sigurðsson, Vignir Svavarsson og
Þórir Ólafsson eitt mark hver. Birkir
ívar Guðmundsson varði átta skot
f leiknum, þar af eitt vítakast, og Ro-
land Valur Eradze varði þrjú skot.
Drátturinn í riðlana á EM fer fram í
Sviss um næstu helgi.
Argentína og Þýska-
land í undanúrslit
Álfukeppnin í knattspyrnu er í
fullum gangi i Þýskalandi þessa
dagana. Þýskaland tryggði sér
sæti í undanúrslitum mótsins með
3-0 sigri ÍTúnis á laugardaginn,
þar sem Michael Ballack, Bastian
Schweinsteiger og Mike Hanke
skoruðu mörkin. Argentína tryggði
sér einnig sæti í undanúrslitum I
hinum leik laugardagsins í A-riðlin-
um. Argentlna sigraði Ástralíu 4-2,
þar sem Luciano Figueroa skoraði
þrennu fyrir fyrrnefnda liðið og Ju-
an Roman Riquelme eitt. John Alo-
isi skoraði svo bæði mörk Ástrala.
Á þriðjudag mætast Þjóðverjar og
Argentínumenn og þar kemur I Ijós
hvort þeirra sigrar I A-riðlinum en
þá mætast einnig Ástralía og Túnis.
Þjóðverjar
istarar
enna
Þjóðverjar urðu í gær Evrópumeist-
arar i knattspyrnu kvenna. Þýsku
stelpurnar sigruðu þær norsku 3-1 í
úrslitaleik á mótinu sem fram fór í
Englandi. Þýsku stelpurnar byrjuðu
leikinn á Ewood Park af miklum
krafti og á 21. mínútu skoraði Anja
Mittag með skoti af stuttu færi eftir
hornspyrnu. Aðeins þremur mínút-
um síðar vippaði Renate Lingor yfir
Bente Nordby í marki Norðmanna og
skoraði fallegt mark eftir sendingu
Brittu Carlson. Norsku stelpurnar,
sem tryggðu sér sæti á EM með því
að sigra íslendinga síðastliðið haust,
náðu að minnka muninn rétt fyrir
leikhlé. Dagny Mellgren skoraði þá
eftir sendingu frá Stine Frantzen.
Á 63. mínútu skoraði hinn magnaða
Birgit Prinz þriðja mark Þjóðveija en
það gerði hún með skoti sem hafði við-
komu í Ane Stangeland áður en það
fór í netið. Lokatölur 3-1 og frábær
kveðjuleikur fyrir Tinu Theune-Mey-
er, sem er að fara að hætta sem þjálf-
ari þýska hðsins.
VISA BIKARINN
NÆSTU LEIKIR - 32 liða úrslit í V/5A-bikarkeppni karla
Dagur
Tími
Vollur
18.15
19.15
19.15
Valur
Víkingur R.
Keflavík
Reynir A
Afturelding
Fjölnir
Arskogsvollur
Varmárvöllur
Fjölnisvöllur
Garðsvöllur
Ásvellir
Stjörnuvöllur
20. juni
mánudagur
19.15
19.15
19.15
Vlðir
Haukar
Stjarnar
FH
Þróttur R.
Grindavík
Ný síða, www.visa.is/bikarinn,
og getraunaieikur
Á nýrri síðu, www.visa.is/bikarinn, er hægt að fylgjast með öllu um
VISA-bikarinn. Þar eru m.a. viðtöl við leikmenn, umfjöllun um leiki og
getraunaleikur þar sem spáð er fyrir um úrslit leikja, en í aðalvlnnlng
er utanlandsferð fyrir tvo auk fjölda aukavinninga.