blaðið - 20.06.2005, Síða 26
mánudagur, 20. júní 2005 I blaðið
26 kvikmy
war-Oi/oRios smnmA bíó
INNRÁSIN HlfSI 29.|ÚNi SIMI564 0000 ^^GsaBU srúRT
Biia om fm laiuiu iamr uk
FÓNDA LÖPEZ
Eru aliir klárir i ævintýralega fyndið ferðalag?
Það sem getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis!
Frábær gamanmynd fyrfr alla fjölskylduna
sem fór beint á toppinn i USA f
Síminn
Sýndkl. 5,8 og 10
Sýnd í Lúxus kl. 5 B.i. 10 ára
Sýndkf. 3.50 m/ísl. tali
ii •
0ÍÓ.IS - aill & einum stað
Sýndkl. 5.45,8 og 10.15
Sýndkl. 5.30,8 og 10.30
Sýnd í Lúxus kl. 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Sýndkl. 4,6 og 8
■■ ■■■■■■■■■ ■■ ■■ mm >a*j^
; 400 kr. í bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu 5
Sýnd kL 6,8 og 10
www.laugarasbio.is
Bubbi
Ást og í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís
magnus@vbl.is
Það sem vakti athygli mína þeg-
ar ég hlustaði fyrst á tvær nýj-
ustu plötur Bubba Morthens, í
6 skrefa garlægð frá Paradís og
Ást, er fjölbreytni þeirra. Það er
líklega orsákabreytan sem gerir
Bubba að vinsælasta dægurlaga-
söngvara þjóðarinnar - hann
einskorðast hvorki við stefnur
né strauma, hvert lag hefur sína
sérstöðu og því geta allir fundið
eitthvað við sitt hæfi á plötun-
um. Þær bera báðar sama keim
en þó er Ást mun hvassari og
sterkari en í 6 skrefa fjarlægð
frá Paradís, sem er mun þyngri
en rólegri í hlustun. Þær mynda
því mótvægi hvor við aðra og
þannig yfirvegaða heild sem er
önnur ástæðan fyrir því að ég
mun dæma þær saman - hin er
sú að þær komu út á sama tíma.
Barði Jóhannsson stjómar
upptökum beggja platnanna en
útsetningin ber með sér þéttara
og dýpra yfirbragð en fyrri plöt-
ur Bubba, þrátt fyrir að ekki sé
hægt að segja að neitt einkenni
Bubbaplötur annað en fjölbreytt
lagasmíð og opnir textar - hann
leitar sífellt á ný mið.
Bubbi er ennþá skemmtilega
góður gítarleikari. Hann leikur
á hljóðfærið án þess aó votti fyr-
ir yfirdrifni eða stöðnuðum gítar-
sólóum þar sem tónskalar eru
klifraðir upp og niður án afláts
og nokkurrar tilfinningar - eitt-
hvað sem einkennir of marga
íslenska tónlistarmenn. í stað
þess heldur hann sig við einfald-
leika og tæra hljóma. Lagið JÞú
sem ert mér íjær", af í 6 skrefa
fjarlægð frá Paradís, er líklega
besta dæmið um þetta - nótur
sem flestir geta slegið en bæði
hæfni og hæfileika þarf til að
gera einfaldleikann einstakan.
Textar plötunnar rista ekki
djúpt, frekar en fyrri textar
skáldsins. Til að geta gleymt sér
algerlega í textum Megasar er
t.d. ákjósanlegt að hafa nokkuð
góða sagnfræði-, heimspeki- og
samfélagslega yfirsýn. Einfald-
leiki Bubba gerir það hins vegar
að verkum að hver sem er getur
ferðast í huganum með þeim
kenndum sem lögin vekja - það
eina sem þarf til er að hafa upp-
lifað sterkar tilfinningar. Því
ættu t.d. allir að geta fundið
innri tengingu við lagið „Vonin
blíð“, sem setur hlustandann
í spor örvæntingar, vonar og
æðruleysis, eins og svo oft áður
í lögum Bubba.
Lagið „Ástin mín“ af plötunni
Ást er með bestu lögum sem ég
hef heyrt frá Bubba. Það sýnir
og sannar að Bubbi getur fengist
við hvaða tónlistarstefhu sem
er, t.d. reggí, ska eða blús, og í
þessu tilfelli blöndu af fusíon-
tónlist 8. úratugarins og megin-
landsstraumum evrópskra popp-
raftónlistarbanda á borð við Áir
og Bang Gang.
„Fallegi dagur“ er snilldarlag,
sem sýnir að Bubbi er framar öll-
um íslenskum tónlistarmönnum í
gerð popplaga. Textinn er einlæg-
ur, lagið hressandi og er ágætt í
hlustun, hvemig sem viðrar í sál-
arlífi hlustandans. „Verður að
sleppa" minnir helst á Leonard
Cohen seint á 9. áratugnum þótt
Bubbi hafi ekki tæmar þar sem
hann hefur hælana í textasmíð.
Líklega er ekkert erfiðara en
að dæma Bubbaplötu því flestir
sem á annað borð hlusta mikið
á Bubba hafa sínar eigin vænt-
ingar til plötunnar. Ég er löngu
hættur að hlusta á plötur Bubba
og get ekki sagt að ég sé einlæg-
ur aðdáandi. Þrátt fyrir það
bliknar mörg sú tónlist sem ég
hlusta á í dag í samanburði við
mörg lög plötunnar.
Ég gef Bubba fjórar stjömur
- fyrir að hafa engu gleymt og
lært eitthvað nýtt í leiðinni.
Daniel Radcliff
verður munaðarleysingi
Daniel Radcliff, sem er löngu orðinn
heimsfrægur sem galdrastrákurinn
Harry Potter, hefur skrifað undir
samning við framleiðendur myndar-
innar December Boys.
Þetta verður fyrsta myndin sem
hann leikur í sem snýst ekki um sög-
ur J.K. Rowling, en hún segir sögu
fjögurra munaðarleysingja á sjöunda
áratugnum í Ástralíu. Myndin bygg-
ist á samnefndri skáldsögu Michaels
Noonan og Rod Hardy mun leikstýra,
en hann gerði meðal annars sjón-
varpsseríuna The Practice sem hefur
slegið í gegn um allan heim. Tökur á
December Boys eiga að hefjast í Ástr-
alíu í nóvember, stuttu eftir að íjórða
Potter-myndin, Harry Potter And
The Goblet of Fire, verður frumsýnd.
Radcliffe hefur leikið Potter frá árinu
2001 og hefur skrifað undir samning
fimmtu myndarinnar, Harry Potter
And The Order Of The Phoenix, sem
er væntanleg árið 2007.
Moore
skipuleggur
kvikmyndahátíð
Leikstjórinn Michael Moore stendur
nú í stórræðum við að skipuleggja
kvikmyndahátíð í heimabæ sínum,
Michigan, en þetta kemur fram í
frétt The Guardian. Hátíðin á að vera
haldin í næsta mánuði en hefur vak-
ið áhyggjur hjá mörgum íbúum bæjar-
ins. Það voru ekki allir jafnkátir með
að heyra fréttimar og eru margir
hræddir um að myndimar sem sýnd-
ar verði muni vera mjög pólitískar og
geti skapað illindi. Heimildarmyndir
Moores, Bowling for Columbine, Ro-
ger & Me og Fahrenheit/911, hafa
vakið misjöfn viðbrögð í Bandaríkjun-
um en Moore segir þó að það sé eng-
in pólitísk ástæða á bak við hátíðina
sem eigi þvert á móti að vera mjög
fjölskylduvæn og sýna um 30 klass-
ískar myndir eins og Casablanca,
Jaws og Rebel Without a Cause, auk
sjálfstæðra erlendra mynda. Moore
vonast til þess að hátíðin verði árleg-
ur viðburður og sýni að Bandaríkja-
menn hafi áhuga á góðum og vönduð-
um kvikmyndum.
Sole,
Pedestrian og
Telephone
Jim Jesus
Á Grand Rokk 22. júní
Telephone Jim Jesus er einn af þremur
hip hop tónlistarmönnunum sem spila á
Grand Rokk 22. júni.
Hingað til lands eru væntanlegir þrír
bandarískir hip hop tónlistarmenn
sem spila á Grand Rokk 22. júní.
Þetta eru þeir Sole, Pedestrian og Tel-
ephone Jim Jesus en þeir hafa unnið
hjá hinni merku og framsæknu hip
hop útgáfu, Anticon, sem hefur alla
sína tíð gefið út framsækið og óhefð-
bundið hip hop. Þeir eru núna á tón-
leikaferðalagi sem kallast War On
Self og bættist ísland skyndilega
inn í planið. Þegar þremenningamir
koma hingað til landsins verða þeir
meðal annars búnir að spila í Vín,
Miinchen, Berlín, Amsterdam og
London. Miðasala er hafin í Smekk-
leysu Plötubúð, og Bent og 7Berg
munu sjá um upphitun.