blaðið - 20.06.2005, Side 29
blaóið ! mánudagur, 20. júní 2005
§
Fjölmiðlar
Listin að vera fugl
Ég sá brot úr breskum myndaflokki um
skaðlega skyndibita. Sá myndbútur
vakti ekki mikla lukku á heimili þar sem
Kentucky Fried kjúklingur er borðaður
með bestu lyst. Svo hef ég ekki gaman
af myndum þar sem manni er sagt hvern-
ig maður eigi að haga lífi sinu. Maður
borðar það sem manni finnst gott, elskar
þá sem maður vill elska og vinnur við
það starf sem gerir mann hamingjusam-
an. Og maður á að ákveða þetta allt
sjálfur.
Ég entist ekki til að horfa á þessa mynd
en í hugann kom minning um aðra mynd
sem var sýnd á RÚV fyrir skömmu. Það
var franska heimildarmynd-
in Heimur farfuglanna.
Ég horfði heilluð á hana.
í 100 mínútur fannst mér
ekkert í það varið lengur að
vera manneskja. Ég þráði
ekkert heitara en að fá að
breytast í fugl, geta lyft mér
til himins, flogið og kvakað.
Kannski dálítið einhæf iðja
svona til lengdar en þetta
kvöld vildi ég fremur vera
fugl en manneskja.
Manninum brá fyrir í þess-
ari mynd, var þá á þílum
og traktorum, upptekinn
við að raska náttúrunni
með tilheyrandi hávaða.
Svo sást hann vitanlega
skemmta sér við að skjóta
fugla. Svo sem ekki við
öðru að búast úr þeirri átt.
Fuglarnir féllu eins og hrá-
viði til jarðar meðan ég sat
skelfingu lostin í sófanum
- og fannst mannkynið
vera ömurlegt sköpunar-
verk. Svo birtist gömul,
góð bóndakona, alveg
eins og úr ævintýri, og gaf
fuglum að borða. Kannski
raunsönn mynd af veruleik-
anum: Karlarnir að skjóta
og eyðileggja og konurnar
að hugga og hjúkra.
Þarna voru fuglar af öllum gerðum og
með ólíkan karakter. Ég heillaðist af
þeim öllum. Nema mörgæsunum sem
virðast vera hugmyndasnauðar hópsálir.
Ég hafði einna mest gaman af einstak-
lingshyggjufuglunum sem höguðu sér
eins og Drottinn hefði skapað umhverfið
sem skraut í kringum þá. Maður á sjálfur
til þannig fas og það var áhugavert að
sjá að það er líka til í fuglaríkinu.
Fram að þessu hef ég vanmetið fugla og
talið að þeir væru helst nýtilegir á mat-
borðið. En þarna sá ég þá sem skapandi
og listræna. Stórmerkilegt sköpunarverk.
kolbrun@vbl.is
21.15 Lögreglustjórinn 23.05
22.00 Tíufréttir 23.20
22.25 Lífsháski (12:23) 23.45
(Lost)
Meðal leikenda eru Naveen Andrews,
Emilie de Ravin, Matthew Fox, Jorge
Garcia, Maggie Grace, Dominic Mo-
naghan og Josh Holloway.
21.10 Naked Twist 1 (Jamie Oliver) (Kokkur án klæða) 21.35 The Guardian (15:22) (Vinur litla mannsins 3) 22.20 Extreme Sex (3:3) (Ýkt kynlif) 23.05 OneTrueThing (Fjölskyldugildi) Ellen flytur aftur til foreldra sinna til þess að hafa umsjá með dauðvona móður sinni. Hún kynnist miðaldra foreldrum sínum að nýju og sér líf sitt í nýju Ijósi. Hjartnæm mynd með stórleikurum. Aðalhlutverk: Meryl Streep, William Hurt, Reneé Zellwe- ger. Leikstjóri er Carl Franklin. 1998. Leyfð öllum aldurshópum. 01.10 Shield (8:13) (Sérsveitin 4) 01.55 Las Vegas 2 (22:24) (Letters, Lawyers And Loose Women) 02.40 Darkness Falls (Dimmufossar) 04:00 Fréttir og ísland í dag Fréttir og ísland í dag endursýnt frá því fyrr í kvöld. 05:20 Tónlistarmyndbönd frá Popp- TíVí
21.00 The Contender 22.00 Dead Like Me 22.45 Jay Leno Jay Leno tekur á móti gestum af öllum gerðum í sjónvarpssal og má með sanni segja að fína og fræga fólkið sé í áskrift að kaffisopa í sett- inu þegar mikið liggur við. 23.30 Da Vinci’s Inquest (e) 00.15 Cheers (e) 00.40 Boston Public 01.20 John Doe Þegar John kemur frá listasýningu Karenar kemst hann fyrir sprengju- hótun frá hópi sem hefur verið að þrýsta á John til þess að klófesta Karen. 02.05 Óstöðvandi tónlist
21.30 Aflraunir Arnolds (Arnold Schwarzenegger Classic) 22.00 Olíssport 22.30 David Letterman 23.15 Landsbankadeildin (Umferðir 1-6) 00.15 Álfukeppnin (Mexíkó-Brasílía) 01.55 US Champions Tour 2005 (Allianz Championship)
22.00 Tangled (Flækjur) Spennumynd. 00.00 American Outlaws (Útlagar) 02.00 The Fourth Angel (Fjórði engillinn) Stranglega bönnuð börnum. 04.00 Tangled (Flækjur) Spennumynd. Stranglega bönnuð börnum.
21.00 Kenny vs. Spenny 21.30 íslenski popplistinn (e) Alla fimmtudaga fer Ásgeir Kolbeins yfir stöðu mðla á 20 vinsælustu lög- um dagsins í dag.
Nnples: Slúnfca, pepperone, sveppir.
Komdu og taktu með,
boiðaðu á staðnum
eða fáðu sent heim
Víð sendum hefcn:
109,110,111,112,113
5777000
Hvaða stöð horfirðu mest á?
Björk Ólafsdóttir
„Skjá einn, hann
er mest aðlað-
andi fyrir mig.“
Kjartan Sveinbjörnsson
„Skjá einn. Mér
finnst besta dag-
skráin þar.“
Eiríkur Stefán Einarsson
„Skjá einn,
skemmtilegir þætt-
ir þar.“
Einar Logi Einarsson
„RÚV, enda eina
stöðin sem ég
kemst í vegna að-
Gylfi Þór Þórsson
„Það er skemmti-
legasta efnið á
Skjá einum.“
Jón Gunnarsson
„Skjá einn.“