blaðið - 20.06.2005, Side 30
mánudagur, 20. júní 2005 1 blaðið
14111/ ...
Dónalegt afgreiðslufólk og
hverfisverslanir!
Ég verð að viðurkenna að ég er
komin með hundleið á dónalegu
afgreiðslufólki. Það er ekki langt
síðan við fengum daglega að sjá
auglýsingu sem snerist um að við-
skiptavinimir ættu að vera kurt-
eisir. Sú auglýsing var góð og gild
en er ekki líka kominn tími á að
fræða afgreiðslufólkið? Ef ég hugsa
aftur þá finnst mér eins og þetta
hafi ekki verið svona fyrir nokkr-
um árum en kannski er ég bara
svona gleymin. Þegar ég geng inn
í búð núna þá heyrir það til undan-
tekninga að ég fái góða þjónustu
og alveg pirrar það mig endalaust
þegar ég versla inn í búð sem til-
heyrir ákveðinni keðju og ég er
spurð hvort ég hafi fundið allt
sem ég þarfnaðist. Auðvitað fann
ég allt sem ég þarfnaðist, annars
hefði ég spurt eftir því - ég kann
nefnilega líka að spyija. Auk þess
dauðvorkenni ég alltaf starfsfólk-
inu að þurfa. að spyrja þessarar
aulalegu spumingar en ég brosi
bara fallega og segi: „Já, þakka
þér fyrir að spyrja,“ enda veit ég að
þessi skilaboð koma frá yfirboður-
um þeirra. En sú keðja má þó eiga
það að starfsfólkið þar er með því
kurteisasta sem ég hef hitt.
Tuidur ofan í bringu
En aftur að hinum keðjunum
og blessuðum dónaskapnum.
Dónaskap er nefnilega hægt að
skilgreina á svo marga vegu. Mér
finnst til dæmis alveg rakinn
dónaskapur þegar afgreiðslufólk-
ið lítur ekki framan í mig heldur
tuldrar góðan daginn og glápir á
vörumar sem það handfjatlar. Ég
vil að mér sé boðið góðan daginn
og litið framan í mig. Er það til of
mikils mælst? Sumir myndu segja
að ástæðan væri sú að afgreiðslu-
fólk verður sífellt yngra. Ég held
að það sé ekkert endilega rétt því
það unga fólk sem ég hef kynnst
er yfirleitt kurteisin uppmáluð.
Það má vitanlega ekki gleymast að
starfsmaður er einungis eins góður
og yfirmaðurinn. Ég held að þetta
sé verslunarstjórunum að kenna
- þeir eiga að sjá um starfsmenn
sína. Er bara ekki búið svo illa að
ungu afgreiðslufólki nú til dags að
það sér lítinn tilgang í að stunda
vinnu sína almennilega? Ef mín-
ar upplýsingar em réttar þá eru
launinlág og krakkamir jafnvel út-
keyrðir. Élestir þessara krakka era
í skóla eða jafnvel annarri vinnu.
Saknaðaróður
Kannski er þessi pistill minn
bara saknaðaróður til gömlu
hverfisverslananna sem fer ört
fækkandi. Þegar ég ólst upp í
Grandunum í Kópavogi var alltaf
verslað í Brekkuvali.Það var sko
alvöra hverfisverslun. Við vinkon-
umar þekktum flesta starfsmenn-
ina með nafni, sem og eigandann,
enda vann hann oft í búðinni. Þá
sem við þekktum ekki með nafni
höfðum við gefið gælunafn, eins
og danska konan. Afgreiðslufólkið
þar var alltaf kurteist, enda þekkt-
ust allir. Þá var líka spjallað um
daginn og veginn við búðarkass-
ann. Enn þann dag í dag sakna ég
Brekkuvals, þótt ég sé nú löngu
flutt úr gamla góða Kópavogi. Ég
sakna kannski ekki beint búðar-
innar heldur frekar stemmningar-
innar, enda er ekki eins að versla í
þessum keðjum og í hverfisverslun-
um. Núna er komin keðja þar sem
gamla Brekkuval var.
Ráðisbfc
aprio
Kona réðst á Leonardo DiCaprio með
bjórflösku í partíi hjá Rick Salomon,
fyrrverandi kærasta Parisar Hilton.
Leikarinn, sem meðal annars er
þekktur fyrir hlutverk sitt í Titanic
og The Aviator, fékk sár nálægt
eyranu sem þurfti að sauma. Eftir
árásina fluttu vinir DiCaprios hann
á sjúkrahús. Talsmaður DiCaprios
sagði að „leikarinn var í stuttu fríi og
var í Los Angeles. Þegar hann var að
yfirgefa lítið einkapartí réðst kona á
hann sem hafði ítrekað verið beðin um
að yfirgefa samkvæmið. Konan stakk
hann með hlut úr gleri áður en Vitni
yfirbuguðu hana. Hún var sögð vera
að leita að fyrrum ástmanni sem hún
hafði áður ráðist á.“ Það er þó ekki
álitið að árásin muni hafa áhrif á leik
DiCaprios í myndinni The Departed,
sem Martin Scorsese leikstýrir.
Oprah Winfrey ,
varaarfiest
Oprah Winfrey er valdamesta stjama
í heimi og á hæla hennar koma gol-
farinn Tiger Woods og Mel Gibson,
sem var valinn valdamesta stjarnan
í fyrra. Þetta má sjá á nýlegum lista
yfir 100 valdamestu stjömumar vest-
anhafs. Listinn var settur saman af
viðskiptablaðinu Forbes, sem reikn-
aði meðal annars út tekjur og hve oft
viðkomandi birtist í fjölmiðlum. Af
Bretum er sir Elton John efstur en
hann er í níunda sæti með áætlaða
launaveltu um 44 milljónir dala á
síðustu 12 mánuðum. í kjölfar áber-
andi sambands Tom Craise við Katie
Holmes nær Craise tíunda sætinu
með áætlaða launaveltu um 31 millj-
ón dala. Fótboltakappinn David Beck-
ham fellur um fjögur sæti og lendir
í 26. sæti en tekjur hans era áætlað-
ur 32,5 milljónir dala. Listinn sýnir
líka að þrátt fyrir að hætt sé að sýna
„Vini“ er Jennifer Aniston enn vinsæl
en hún er í 37. sæti. Þrátt fyrir að
bæði Courteney Cox og Lisa Kudrow
hafi báðar verið á listanum í fyrra
eru þær fallnar út í ár. Þeirra í stað
má sjá töluvert af nýjum stjömum á
listanum. Þar á meðal era stjömurn-
ar úr „Aðþrengdum eiginkonum",
þær Teri Hatcher og Marcia Cross.
Auk þeirra eru Paris Hilton, Jessica
og Ashlee Simpson, Mary-Kate og
Ashley Olsen nýjar á listanum. Það
sem vekur athygli er að hvorki Tom
Hanks né Jim Carrey eru á listanum,
þrátt fyrir að vera með launahæstu
leikuram í Hollywood.
rætur
Hi
Kevin Federline er augljóslega yfir
sig ástfanginn af konu sinni, Britn-
ey Spears, og lýsti hann því yfir fyrir
framan myndavélar nýlega. í loka-
þætti raunveruleikaþáttar um parið
lýsti Kevin yfir óst sinni á Britney
með tárin í augunum og tónlist í bak-
granninum. „Mig langaði til að setja
þetta saman til þess eins að sýna þér,
elskan, hve annt mér er um þig. Ég
elska þig meira en lífið sjálft og ég
geri hvað sem er fyrir þig. Hún er
engillinn minn - allt sem ég óskaði
mér í einni persónu." Kevin sagði að
Britney væri mjög gefandi persóna
og hún lýsti upp allt sem hún snerti.
„Hún kann virkilega að snúa hlutum
sér í vil svo hún verði hamingjusöm
og gerir aðra hamingjusama. Yndis-
legir hlutir hafa gerst meðan ég er
með henni og ég get ekki ímyndað
mér mig með neinni annarri."
Hvað segja stjörnurnar
©Vatnsberi Tvíburar
(20. janúar-18. febrúar) ‘i (21. maí-21. júnf)
S Þetta er einn af þessum sjaldgæfu dögum
þar sem allt er mögulegt. Finndu einhverja brjál-
æðislega góða hugmynd og ræddu um hana
við yfirmanninn. Spyrðu um launahækkun í leið-
inni.
V I dag muntu eiga nokkrar djúpar samræð-
ur við vini þína. Ahugi þinn mun beinast frekar
að þeim heldur en astinni í dag og þú verður
minnt á hvers vegna þú elskar vini þlna svo
heitt._______________________________
©Flskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Þér finnst að það eigi að vera gaman í
vinnunni en sumir ganga aðeins of langt. Haltu
þig frá fjörinu, fortölur gera Iftið.
VEf ástvinur þinn hefur pirrandi ávana skaltu
leiða hann hjá þér. Nöldur er ekki svarið.
®Krabbi
(22. júní-22. júli)
®Vog
(23. september-23. október)
S Það gengur vel I vinnunni núna en komdu
þér ekki of vel fyrir. Núna er einmitt tíminn til að
skoða í kringum sig og sjá hvort það er eitthvað
spennandi íboði.
V Þú hefur rökrætt öll heimsins málefni.
Slakaðu á og talaðu frá hjartanu. Fólk tekur þig
alvarlega þegar þú ert hreinskilinn.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Þú hefur oft á réttu að standa en farðu
varlega í að segja hug þinn í dag. Yfirmaður þinn
gæti haft aðrar skoðanir en þú svo hugsaðu áð-
ur en þú talar.
V Ekki láta aðra pirra þig i dag en taktu eftir
hvernig þeir llta öðruvlsi á þig. Hvað svo sem
það er þávirkar það.______________________________
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
S Stundum er betra að hafa smáfjarlægð
milli vina og vinnunnar. Ekki rugla saman alvöru
vinum og vinnufélögum. Allt mun ganga þér í
haginn.
V Þú átt í baráttu við að ákveða hvort þú
eigir að eyða tíma með ástvinum eða slaka á
l^ý^rtetrið þarf líka smánæði.
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Sterkur aðili reynir að selja þér áhættu-
sama hugmynd sina. Athugaðu heimildina og
ekki gleyma þér í hita leiksins.
V Treystu innsæinu. Þú veist hvað skal gera
og hvenær skal gera það.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
s Vertu hreinskilinn og deildu með öðrum
hugmyndum þínum oa þá gefurðu um leið
grænt Ijós á að þeir verði hreinskilnir við þig.
V Láttu allt flakka þegar kemur að ástinni,
ekki halda aftur af þér. Ef þú ert ekki I opnu og
heiðarlegu sambandi þá nyturöu þín ekki.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Ferðaáhugi þinn öðlast nýtt líf þegar þú
heyrir um spennandi viðskiptaferðalag. Láttu
verkin tala og sannaðu fyrir yfirmönnum þlnum
að þú ert rétta manneskjan f verkið.
1F Ástarlíf þitt er I þvilíkri hæð þessa dagana.
Sambandið er yndislegt og lifið er yndislegt.
Njóttu þess.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
S Vinnufélagi sem þú lítur upp til hefur ver-
ið hækkaður í tign. Óskaðu honum til hamingu,
hver veit nema það gæti leitt til einhvers spenn-
andi.
V Horfðu í kringum þig og sjáðu hve frels-
andi það er að stjorna örlögum sinum sjálfur.
Þitt er valið.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
S Hafðu hægt um þig í dag. Þetta er ekki
dagur til að taka áhættu.
V Farðu varlega í ástarmálunum í dag. Bíddu
eftir að einhver annar brjóti ísinn. Allt sem er of
gott til að vera satt er það líklega.
$ Þú ert komin með leiða á að hægja á þér
svo vinnufélagarnir nái þér en þannig þarf það
aö vera I nokkra daga. Annars mun einhverjum
sárna og það er ekki þinni vilji.
V Það er búið að vera mikið álag á þér en
passaðu þig að það hafi ekki áhrif á sambandið.
Þið verðio bæði hamingjusamari ef stressið fær
hvíld heima fyrir. Prófaðu það.
$ Þú ert að vinna á þvillkum hraða þessa
dagana. Það er ágætt að ná góðum afköstum en
reyndu líka að njóta vinnunnar. Smáatriði geta
kveikt nýjar hugmyndir.
V Rómantíkin er lítil þessa dagana og það
er voða lltið sem þú getur gert til áð auka hana
en það styttist I ao eitthvað gerist.