blaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 7

blaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 7
 Kæri sjálfstæðismaður í dag hefst prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ég hvet þig til þess að taka þátt og leggja þitt af mörkum til þess að stilla upp öflugum framboðslista fyrir kosningarnar á komandi vori. Kannanir benda til þess að sjálfstæðismenn séu um þessar mundir að uppskera ríkulega fyrir málefnalega stjórnarandstöðu og metnaðarfullar tillögur um brýn framfaramál í borginni. Við eigum raunhæfa möguleika á meirihluta í borgarstjórn - og getum þar með fengið kærkomið tækifæri til að hrinda stefnumálum okkar í framkvæmd. Með þróttmiklu og samhentu starfi fram á vorið getum við haldið því forskoti sem við höfum um þessar mundir. Góð þátttaka í prófkjörinu gefur framboðslistanum skýrt umboð og endurspeglar um leið styrk sjálfstæðismanna sem ætla sér langþráðan sigur á næsta vori. Þess vegna þurfum við á þátttöku þinni í prófkjörinu að halda. Með kærri kveðju, mm mm MÉ VVVVVV'Vt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Stuðningsmenn

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.