blaðið - 24.11.2005, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 bla6Í6
Ástþór Magnússon:
Fer fram á
50 milljónir
Ástþór Magnússon fór mikinn í
gær í kjölfar fréttar sem birtist um
hann í DV. Hann byrjaði á að kæra
til lögreglu stjórn 365 prentmiðla og
ritstjórn DV fyrir brot á almennum
hegningarlögum. Tilefnið er birting
á „tilhæfulausum áburði á forsíðu
DV“ eins og hann segir. Einnig
kærði hann Vísi og Fréttablaðið
fyrir að birta forsíðuna. Ástþór
tekur fram í kærunni að hann hafi
ekki lesið blaðið, en af fyrirsögninni
að dæma sé ljóst að um „algerlega til-
hæfulausan áburð er að ræða.“ Hann
segist hafa mátt þola nær taumlaust
einelti af hálfu DV síðustu misseri
og segir að á þriðja tug ósanninda
hafi birst um hann í blaðinu. Hann
krefst því ítrustu refsingar og vill að
hlutaðeigandi aðilar verði dæmdir
til tveggja ára fangelsisvistar.
50 milljóna bótakrafa
Ástþór var ekki hættur og næst
snéri hann sér að Bónus vegna þess
að forsíða DV var auglýst í stækk-
aðri mynd á veggjum og í blaðsölu-
stöndum verslana. Hann kærði því
alla verslunarstjóra Bónussverslana
á landinu, 23 að tölu, „fyrir brot á
almennum hegningarlögum vegna
birtingu í
verslunum
fyrirtæk-
isins á til-
hæfulausum
lygumogróg-
burði sem
prentað er á
forsíðu DV
sem kærðu
hafa til sýnis
í dag í versl- Ástþór Magnússon
unum sínumí
stækkaðri mynd á vegg og í blaðsölu-
stöndum.“ Ástþór greindi svo frá því
að Bónussmenn hefðu orðið við kröf-
unni um að taka niður veggspjöldin,
en að þeir myndu ekki taka blaðið
úr sölu. Ástþór taldi ekki nóg að
gert og sagðist ekki draga kæruna til
baka á þeim forsendum. Ennfremur
myndi hann höfða einkamál gegn
hverjum og einum verslunarstjóra
sem ekki yrði við kröfum hans um
að blaðið yrði fjarlægt fyrir klukkan
14:00. Hann segist munu krefjast
um 50 milljóna króna í bætur, en
það sé sú upphæð sem hann hafi
lagt í auglýsingakynningu friðar-
boðskaps síns sem fyrirtækið væri
nú að rífa niður. ■
llmandi
jólasápa
£jjÖllfrjgf>
-hreinlega sterkari
Dreifing:
BéBé Vöruhús ehf.
Sími512-3000
íslenska kokkalands-
liðið fékk silfur í Basel
Besti árangur þessfrá upphafi
BlaÖiÖ/SteinarHugi
íslenska kokkalandsliðið hlaut silf-
urverðlaun á matreiðslumeistara-
mótinu Salon Culinaire Mondial,
sem haldið var í Basel, Sviss, og lauk
í gær. Er þetta mikill heiður fyrir
liðið enda aðeins gjaldgeng á mótið
tíu stigahæstu kokkalandslið heims.
Samkvæmt Ragnari Ómarssyni, fyr-
irliða, er þessi árangur liðsins sá
besti til þessa og mun auðvelda því
róðurinn á komandi mótum.
Þegar Blaðið náði tali af Ragnari
hafði nákvæm stigagjöf ekki verið
opinberuð, en ísland var ein þriggja
þjóða sem hlaut silfureinkunn og
skipar sér því ótvírætt meðal þeirra
efstu. Það var landslið Singapore
sem fór með sigur af hólmi, Kanada-
menn hlutu annað sætið og Sviss-
lendingar það þriðja. „Við erum
stolt af árangrinum, nú er um að
gera að spýta í lófana fyrir heims-
meistarakeppni næsta hausts. Við
fengum góðar viðtökur við matnum
okkar, það má segja að það eina sem
haldi okkur frá gullverðlaunum sé
fyrirkomulag mótsins, því matur-
inn fékk hæstu einkunn. Við vorum
dregin niður fyrir ýmis formsatriði,
eins og að vera ekki í hönskum. Það
dirfist enginn að leyfa smáþjóð að
sigra risa eins og Kanada, af ótta við
að móðga þá. Svo er ýmislegt annað;
yfirdómarinn í Basel er t.d. jafn-
framt þjálfari sigurliðsins og kona
kanadíska þjálfarans var dómnefnd-
arfulltrúi. En í okkar herbúðum
ríkir mikil gleði,“ segir Ragnar. ■
BlallD/Frikki
Tískuvörur fyrir hunda uröu fyrir valinu þegar veitt voru verölaun í Nýsköpun 2005 í gær.
Þaö er Theódóra E. Smáradóttir sem er f forsvari fyrir verkefnið en um er að ræöa hönn-
un og sölu á hágæöa hundafatnaði. Nú þegar er markaðssetning hafin í fjölda landa og
mun verðlaunaféð, ein milljón króna, koma sér vel í þeirri útrás.
r
Höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum
Steinunn Sigurðardóttir:
Sólskinshestur
Sólveig Einarsdóttir:
Hugsjónaeldur
Sölvi Björn Sigurðsson:
Gleðileikurinn djöfullegi
Guðni Th. Jóhannesson:
Völundarhús valdsins
Marta María Jónasdóttir og
Þóra Sigurðardóttir: Djöflatertan
Hefst klukkan 20:00
Bókabúð Máls og menningar
Laugavegi 18-2. hæð
ALLIR VELKOMNIR!