blaðið - 24.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Sprenging í efnaverksmiðju í Ktna dregur dilk á eftir sér:
Vatnsskortur vegna
eiturefnaleka
Vatn var flutt til borgarinnar Harbin
í Kína á vörubílspöllum í gær eftir að
vatnsveitu borgarinnar var lokað í
kjölfar sprengingar í efnaverksmiðju
í nágrenninu. Þá var skólum og fyrir-
tækjum lokað í borginni af heilbrigðis-
ástæðum. 1 Rússlandi voru menn
einnig við öllu búnir en áin rennur
um hluta landsins.
Sprengingin í efnaverksmiðjunni
átti sér stað í nágrannaborginni
Jilin fyrir nokkrum dögum og barst
bensen, sem er hættulegt leysiefni, í
Songhua-ána en hún er aðalvatnslind
Harbin-borgar. Magn efnisins í ánni
er langt yfir hættumörkum og því
veruleg hætta talin stafa af því. Ibúar
í borginni Songyuan, sem er 150 km
suðaustur af Harbin, segja að einnig
hafi verið skrúfað fyrir vatnið í hluta
borgarinnar en yfirvöld neita því.
Vatn hamstrað
Yfirvöld reyndu að draga úr ótta
almennings og sögðu að von væri
á drykkjarhæfu vatni frá öðrum
borgum. Tilkynning umyfirvofandi
lokun varð til þess að íbúar borgar-
innar, sem eru tæplega fjórar millj-
ónir, urðu sér úti um aukabirgðir
af vatni á flöskum, mjólk og aðrar
drykkjarvörur. Víða tæmdust hillur
verslana af drykkjarvörum. Skrúfað
var fyrir vatnið á miðnætti á þriðju-
dagskvöld og er gert ráð fyrir að
vatnslaust verði í fjóra daga. ■
fbúi borgarinnar Harbin í Kína birgir sig upp af vatni.
HJÁ OKKUR BRU N/B0 BILABTÆPI
OO 0OTT A&&BN&!
Forsetakosningarnar í Líberíu:
Kjör Johnson-
Sirleaf staðfest
Hert afstaöa til
samkynhneigöra
prestsefna
Ellen Johnson-Sirleaf varð í gær
fyrsta konan sem kosin hefur
verið þjóðhöfðingi Afríkuríkis
þegar kjörnefnd staðfesti kjör
hennar í kosningunum sem fram
fóru 8. nóvember. Johnson-Sirleaf
hlaut tæplega 60% atkvæða í kosn-
ingunum en andstæðingur hennar,
knattspyrnustjarnan George
Weah, rúm 40%.
„Mér líður mjög vel. Ég er ánægð
með kosningarnar og þakka líber-
ísku þjóðinni fyrir stuðninginn,"
sagði Johnson-Sirleaf sem er 67
ára hagfræðingur og fyrrverandi
fjármálaráðherra landsins. Kjör-
stjórn staðfesti sigur hennar í
gær þrátt fyrir að hún ynni enn
að rannsókn á kvörtun Weah um
að brögð hefðu verið í tafli. I síð-
ustu viku stóðu stuðningsmenn
knattspyrnumannsins knáa að
mótmælum víða um landið sem
enduðu sums staðar með átökum
við lögreglu.
Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafa
sagt að kosningarnar hafi verið
frjálsar og réttlátar en þær voru
þær fyrstu síðan borgarastyrjöld-
inni lauk í landinu. ■
Ellen Johnson-Sirleaf fagnaði því að hafa
verið kosin forseti Líberíu ásamt stuðn-
ingsmönnum sínum í gær.
Vatíkanið mun herða afstöðu sína
til samkynhneigðra karlmanna sem
sækjast eftir prestsembætti. Þeir
sem hafa fundið til slíkra kennda í
fortíðinni verða að hafa haldið þeim
í skefjum í að minnsta kosti þrjú ár.
Þetta kemur fram í leiðbeiningum
sem kaþólsk fréttastofa á Ítalíu birti
nýlega á Vefnum og verða gerðar
opinberar í næstu viku.
íhaldssamir kaþólikkar sem hafa
fordæmt lífsstíl samkynhneigðra
í prestaskólum munu að öllum lík-
indum fagna stefnu Vatíkansins
þar sem hún taki af vafa um það
hvers er búist við af prestsefnum og
kennurum þeirra. Gagnrýnendur
stefnunnar vara aftur á móti við
því að ef stefnunni verður hrint í
framkvæmd mun það líklega leiða
til þess að prestsefni ljúga um
kynhneigð sína og að kaþólskum
prestum muni fækka enn frekar í
Bandaríkjunum. ■