blaðið - 24.11.2005, Síða 12
12 I VÍSINDI
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 blaðÍA
Hræðslugenið uppgötvad
Vísindamenn telja sig nú hafa
fundið gen í músum sem stjórnar
viðbrögðum við yfirvofandi hættu
með því að hleypa ákveðnum nift-
eindum upp í heilann. Genið sem
um ræðir kallast stahmin gen og
þær mýs sem eru ekki með þessi
gen bregðast einfaldlega ekki við
aðstæðum sem ættu samkvæmt
öllu að hræða líftóruna úr þeim.
Lykillinn að því að lifa af
Gleb Shumyatsky, einn vísindamann-
anna sem gerði uppgötvunina, sagði
í samtali við Live Science tímaritið
nýverið að uppgötvunin gæti hjálpað
þeim sem upplifa of mikla hræðslutil-
finningu að sigrast á henni þar sem
til eru sérstök lyf sem vinna einmitt
á stathmin geninu. Shumyatsky segir
einnig að þessi lyf gætu hjálpað fólki
til að komast yfir og jafnvel gleyma
slæmum lífsreynslum.
Hræðsla er talin lykilþáttur í sjálfs-
bjargarviðleitni spendýra og því
búa þau öll yfir skilvirkum minnis-
kerfum til að vinna úr henni. Á sama
tíma og einhver getur kannski ekki
með nokkru móti munað nafn ein-
hvers sem hann er nýbúinn að hitta
þá geta minningar um einhvers konar
hræðslu fylgt viðkomandi um aldur
og ævi líkt og atburðurinn hefði átt
sér stað í gær.
Heili mannskepnunnar er
almennt talinn bregðast við áreiti
með svipuðum hætti og heili músa
og því eru dregnar þær ályktanir að
mögulega sé hægt að yfirfæra niður-
stöður rannsóknarinnar að einhverju
leyti yfir á menn. Hann tekur þó fram
að frekari rannsókna sé þörf enda séu
engin fyrirliggjandi sönnnunargögn
um eðli hræðslu í mannsheilanum.
Lyf gætu dregið úr hræðslu
Stathmin genin eru vanalega algeng í
hluta heilans sem nefnist mandla eða
amygdala. Mandlan stjórnar hræðslu-
viðbrögðum gagnvart rándýrum, loft-
hæð og öðrum tegundum hræðslu
sem telst ósjálfráð auk hræðslu sem
lærist í gegnum ákveðna atburði. í
rannsókninni voru mýsnar látnar
heyra hljóm og síðan gefið raflost
strax í kjölfarið. Þær mýs sem ekki
höfðu stathmin genin brugðust ekki
við með sömu hræðsluviðbrögðum og
hinar þegar að þær heyrðu hljóminn
aftur þó að hann ætti að þýða að raf-
lost væri áleiðinni. I öðrum hluta rann-
sóknarinnar kom í ljós að stathmin-
lausu mýsnar voru líklegri til þess að
hætta sér inn á opin svæði sem hinar
mýsnar ósjálfrátt forðuðust. Til að
fyrirbyggja að stathmin mýsnar væru
einfaldlega ekki greindarskertari eða
byggju ekki yfir sömu lærdómshæfi-
leikum og hinar þá voru báðir hóp-
arnir látnir fara í gegnum völundar-
hús án áreitis. Þar kom í ljós að báðir
hóparnir stóðu sig jafnvel og því ekki
um neins konar greindarmun að
ræða.
„Þessi uppgötvun veitir okkur
sannanir fyrir því að nauðsynlegt er
að einstaklingur sé með stathmin
genin til þess að láta í ljós meðfædda
hræðslu og mótun lærðar hræðslu.
Ef hægt verður að framleiða lyf sem
gætu mögulega dregið úr eða á hinn
bóginn aukið áhrif stathmin gensins
þá væri hægt að nota slíkt lyf til þess
að fínstilla viðbrögð okkar við ótta,“
segir Shumyatsky.
t.juliusson@vbl. is
Vísindamenn spá því að mögulega geti þessi kona gæti mögulega sigrast á hræðslu sinni með lyljagjöf.
Spine Support Queen (153x203)
var kr 132.680,- Núkr98.500
. ■ agg Kí 7VC*
Koií!
fwi Amerískar heilsudýnur í hæsta gæðaflokki. King Koil hafa fram- leitt hágæða rúm í Bandaríkjunum síðan árið 1898 og framleiða
npv» í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottum frá FCER
sissel Alþjóðasamtök kiropraktora Og Good Housekeeping Stærstu
% neytendasamtök í Bandaríkjunum.
Sissel heilsukoddar
Sissel koddarnir hafa verið fram-
leiddir siðan 1985. Þeir styðja
vel við höíuðið og koma þannig
í veg fyrir láréttan þrýsting á
hálsliöina.
Koddarnir veita fullkominn
stuðning og eru ofnæmis-
prófaðir og framleiddir á
umhverfis-vænan hátt.
Tveggja ára ábyrgð.
Sissel Orginal koddinn er á
frábæru verði hjá okkur.
Verð aðeins kr. 5.900,-
Frábær jólagjöf
Tilboðsdagar
25% afsláttur af öllum amerískum heilsudýnum
Dýnur frá kr. 38.500,-
Gleymum ekki i leit
okkar að góðu Iffi
að það eru lífsgæði
að fá góðan svefn.
Rekkjan
. Skipholt 35 • Sími 588 1955 www.rekkjan.is