blaðið - 04.01.2006, Qupperneq 2
2 I IWNLEWDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöiö
blaðiðB
Bæjarlínd 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Reykjavík:
Björk hætt í VG
Björk Vilhelmsdóttir
Björk VU-
helmsdóttir,
borgarfull-
trúi R-list-
ans fyrir VG
lýsti því yfir
í gær að hún
hefði sagt sig
úr Vinstri
hreyfingunni
- grænu fram-
boði og hyggð-
ist bjóða
fram í prófkjöri Samfylkingar og
óháðra sem fram fer 11. -12. febrúar
nk. Björk hyggst ekki ganga í Sam-
fylkinguna, heldur mun hún bjóða
sig fram sem óflokksbundinn full-
trúa. í yfirlýsingu frá Björk segir
að ástæða ákvörðunarinnar sé sú
að hún vilji vinna að „Reykjavík-
urmeirihluta" eftir kosningarnar
í vor. Þar segist hún eiga við meiri-
hluta Samfylkingar, óháðra, Vinstri
grænna og annara ef með þarf, eins
og hún orðar það.
Stefán Jón ánægður, Arni Þór hissa
Stefán Jón Hafstein, oddviti Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík segir
ákvörðun Bjarkar vera fagnaðarefni.
,hún hefur verið farsæl i starfi og
góður samstarfsmaður.“ Stefán seg-
ist ekki eiga von á öðru en að sam-
starf innan R-listans verði áfram
gott til vors. Hann segir alla þá sem
stutt hafa R- Iistann velkomna til
starfa hjá Samfylkingunni og segir
að Björk eigi örugglega samleið
með þeim sem flokkinn skipa „til
móts við ný tækifæri og nýja sókn
í vor.“ Árni Þór Sigurðsson, odd-
viti VG sagði á heimasíðu sinni að
ákvörðun Bjarkar kæmi vissulega á
óvart. Hann bendir á að Björk hafi
áður sagt „að hún myndi virða nið-
urstöðu félagsins í framboðsmálum.
Þetta er vissulega hennar ákvörðun
sem ég virði þótt ég harmi hana að
sjálfsögðu." ■
Stjórnarformaður Fl Group:
Einkennilegur málflutningur
Stjórnarformaður FL Group gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar þingmanna í kjölfar frétta
af starfslokasamningum viðfyrrum stjórnendur. Hann segir engum borgað fyrir að þegja.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður FL Group segir
Jóhönnu Sigurðardóttur frjálst að
hafa skoðanir á þeim samningum
sem félagið hefur gert við fyrrum
stjórnendur og núverandi forstjóra.
Jóhanna hefur ásamt fleiri þing-
mönnum eins og Merði Árnasyni
og borgarfulltrúanum Árna Þór
Sigurðssyni gagnrýnt samningana
harðlega. í pistli á heimasíðu sinni
segir Jóhanna að hluthafar FL Group
ættu að reka stjórnarformann sem
„leyfir sér að taka ákvörðun um
nærri 300 milljón króna starfsloka-
samninga til tveggja einstaklinga og
slík ofurkjör til lykilstjórnenda að
ein mánaðarlaun þeirra geta numið
að lágmarki þremur til fjórum árs-
launum lægst launaða fólksins."
Hún segir almenning eiga að gera
kröfu um að flugfargjöld fyrirtæk-
isins lækki nú þegar, ella verði við-
skiptum þeirra í meira mæli beint
til samkeppnisaðila. Ennfremur
vill hún að Alþingi og ráðuneyti
endurskoði þá samninga sem gerðir
hafi verið við Fl- Group um kaup
á ferðum opinberra aðila. Mörður
Árnason spyr í fyrirsögn á sinni
vefsíðu hvort Flugleiðir (FL Group)
séu að tapa vitinu. Hann segir fyrir-
tækið koma almenningi og almanna-
valdinu við með skýrari hætti en
nokkuð annað einkafyrirtæki í land-
inu enda hafi almenningur stutt fé-
lagið og forvera þess með ráðum og
dáð frá miðri síðustu öld.
Einkennilegur málflutningur
Jóhönnu er frjálst að hafa hvaða
skoðun á þessu fyrirtæki sem hún
vill rétt eins og öllum öðrum,“ segir
Skarphéðinn. „Ég sé nú ekki ástæðu
til að tjá mig sérstaklega um hvað
hún segir i þessu máli frekar en
öðrum." Aðspurður um hvernig
áskorun þingmannsins um að Al-
þingi og ráðuneyti endurskoði samn-
inga sína við félagið hljómi í hans
eyrum segir Skarphéðinn: „Alþingi
hlýtur á hverjum tima að kaupa far-
seðla hjá þeim sem bjóða hagkvæm-
asta verðið. Ég geri ekki ráð fyrir
því að það sé eitthvað annað sem
ræður því hjá hverjum þeir versla.
Mér dettur ekki í hug að ætla annað
en að það sé eitthvað annað haft að
leiðarljósi en ódýrasta verðið þegar
þessir samningar eru gerðir.“ Skarp-
héðinn varar við að rugla þessu
tvennu saman og kallar það ein-
kennilegan málflutning. „FL Group
stendur í margvíslegum viðskiptum
og ég veit ekki hvers vegna hún tekur
þetta dæmi en ekki eitthvað annað.“
Varðandi málflutning Marðar um
að flugmiðar hljóti að lækka í kjölfar
þessara frétta segist Skarphéðinn
ekki skilja þingmanninn. „Það ríkir
hér umtalsverð samkeppni sem ég
geri ráð fyrir að aukist á þessu ári.
Eg sé ekki hvaða máli þessi umræða
skiptir í því sambandi. Við munum
standa okkur eins og við getum í
þeirri samkeppni en ef þessir ein-
staklingar eða aðrir kjósa að versla
hjá öðrum getum við lítið gert í því.“
Hann segist ekki vilja eltast við það
þó einstakir þingmenn kjósi að not-
færa sér þessar fréttir í einhverju
öðru samhengi en efni standi til.
Engum borgað fyrir að þegja
Skarphéðinn bendir einnig á að
samningarnir við stjórnendur fé-
lagsins eru löngu gerðir. „Það er
ekki eins og við höfum verið að gera
þá núna. Við erum einfaldlega að
standa við samninga sem félagið er
aðili að. Með fullyrðingum á borð
við þær að við séum að borga háar
fjárhæðir fyrir fimm mánaða starf
eru menn að snúa hlutunum á haus.
Ragnhildur hafði unnið hjá frirtæk-
inu í alllangan tíma. Þegar samning-
urinn er gerður eru menn svo sann-
arlega með eitthvað annað í huga en
það að hann skyldi endast svo stutt.“
Hann segist undrast fréttaflutning
þar sem ýjað er að því að Raghildi
Geirsdóttur hafi verið borgaðar 130
milljónir fyrir að þegja um sam-
skipti sín við stjórnendur FL Group.
,Ég veit ekki yfir hverju hún ætti að
þegja. Þetta er bara í samræmi við
samning sem gerður var löngu fyrir
hennar starfslok. Þannig að það er
ekkert verið að borga henni fyrir að
þegja, það er bara ekki rétt.“ ■
Neytendasamtökin:
Vilja fulltrúa í nefnd
Neytendasamtökin vilja fá fulltrúa
í nefnd sem forsætisráðherra ætlar
að koma á fót og fjalla á um mat-
vælaverð á íslandi. Þetta kom fram í
formlegu bréfi sem samtökin sendu
forsætisráðherra i gær.
Eðlilegt að samtökin eigi fulltrúa
Halldór Ásgrímsson, forsætisráð-
herra, lýsti því yfir í áramótaræðu
sinni að hann hygðist koma á fót
nefnd sem hefði það hlutverk að
ræða matvælaverð á íslandi og
koma með tillögur til úrbóta. Þetta
kemur í beinu framhaldi af skýrslu
Samkeppniseftirlitsins sem birt
var í síðasta mánuði þar fram kom
að matvælaverð hér á landi er 42%
hærra en meðalverð í Evrópu. í
gær sendu svo Neytendasamtökin
forsætisráðherra bréf þar sem þeir
óskuðu formlega eftir því að fá full-
trúa í nefndina. Að sögn Jóhannesar
Blalil/SteinarHugi
Matvælaverö er hæst á Islandi samanbor-
ið við önnur Evrópulönd.
Gunnarssonar, formanns Neytenda-
samtakanna, er eðlilegt að jafn stór
samtök eigi fulltrúa í nefndinni.
„Við teljum að við höfum ýmislegt til
málanna að leggja og við teljum eðli-
legt að samtök ney tenda eigi fulltrúa
í nefnd þar sem er verið að fjalla um
matvælaverð eins miklu máli og það
skiptir heimilin í landinu.“
Verður skoðað
Nú þegar hefur Hallgrímur Snorra-
son, Hagstofustjóri, verið skipaður
formaður nefndarinnar en ekki
hefur verið tekin frekari ákvörðun
um skipan nefndarinnar. Stein-
grímur Olafsson, upplýsingafulltrúi
forsætisráðuneytisins, segir stefnt
að því að nefndin taki til starfa fljót-
lega í þessum mánuði en að öðru
leyti sé ekki búið að ganga frá öðru
varðandi hana. „Erindi Neytenda-
samtakanna verður tekið fyrir og
skoðað með opnum huga. Það er
hvorki búið að loka á það né neitt
slíkt. Þannig að þetta erindi verður
skoðað með opnum huga.“ ■
Dagsbrún:
Mannabreyt-
ingar
Markaðsverð Dagsbrúnar hf. hækk-
aði um 8,1% eftir að tilkynnt hafði
verið um mannabreytingar í yfir-
stjórn félagsins í síðustu viku. Eins
og kunnugt er tók Gunnar Smári
Egilsson við forstjórastóli félagsins
af Eiríki Jóhannssyni og þá var Ari
Edwald ráðinn sem forstjóri 365 ljós-
vaka- og prentmiðla. ■
DAG
Gunnar Smári Egilsson
opið virka daga 10.00-19.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
Sími 544 2332
www.adesso.is
SKYR
DRYKKUR
ferskt og gott
O Heiðsklrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítilsháttar //' Rigning ) 1 Súld sjsSnjðkoma
Sjj Slydda \~j Snjðél ^~j
Skur
Amsterdam 01
Barcelona 09
Berlín 0
Chicago 04
Frankfurt 02
Hamborg 0
Helsinki -03
Kaupmannahöfn -02
London 06
Madrid 08
Mallorka 11
Montreal -09
New York 03
Orlando 10
Osló -04
Paris 02
Stokkhólmur -02
Þórshöfn 08
Vín 01
Algarve 14
Dublin 07
Glasgow 07
8°
///
///
///
b
///
///
///
8°
b
///
///
///
/A
/ //
Veðurhorfur í dag ki: 15.00
Veðursíminn J02 0600
Byggt á upplýslngum frá Veðurstofu fslands
I
b
ir
///
O
5°
A morgun