blaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4: ÍANÚAR 2006 blaðið
/ sérflokki
lÆTilUF\MHIlV/ítMí
gegn sol og UV-geislum,
auou, mmnka upplnun.
g vernda okkar
dýrmætustu eign.
Er bíllinn þmn or
íslenskir skólar:
Fæstir nemendur á bekk
í nýrri könnun á vegum Eurydice
sem er stofnun sem fylgist með og
mælir frammistöðu Evrópuríkja
í menntamálum kemur fram að á
íslandi eru fæst börn að meðaltali
í hverjum bekk í grunnskóla. Rann-
sóknin sýnir að meðaltalsfjöldi í
hverjum átta ára bekk á íslandi er
14,4 nemendur. Þó ber að líta til þess
eins og kemur fram í rannsókninni
að tölurnar fyrir lönd eins og ísland
og Grikkland skekkjast nokkuð
vegna dreifbýlisskóla þar sem fá
börn eru í hverjum bekk. Þrátt fyrir
það eru tölurnar áhrifaverðar og
ef litið er á hinn endann, það er að
segja í hvaða löndum flestir nem-
endur eru í hverjum bekk kemur
Bretland áberandi verst út. 1 Eng-
landi eru 26,2 í hverjum bekk, á Ir-
landi eru börnin 24,2 og í Skotlandi
23,9. meðaltalið í rannsókninni var
hins vegar 19,8 börn í hverjum bekk.
Akralind 5
201 Kópavogur
Sími 544-4640
www.autosport.is
Avion Group:
Lykilstjórn-
endur kaupa
Lykilstjórnendur í Avion Group
keyptu í gær um 15 milljónir
hlutabréfa í félaginu að verðmæti
um 575 milljón Íaóna. Það var
fyrirtækið True North Holding
Group Limited sem keypti bréfin
en það er í meirihlutaeign fjög-
urra lykilstjórnenda Avion Group.
Þetta kom fram í tilkynningu frá
Kauphöll íslands í gær. Þá seldi
Arngrímur Jóhannsson, stjórnar-
maður f Avion Group 15 milljónir
hluta í félaginu á genginu 38,3.
Ferðaþjónustan:
Nýtt ferðamála-
ráð skipað
Samgönguráðherra hefur skipað
nýtt ferðamálaráð til fjögurra ára.
Níu einstaklingar sitja f ráðinu en
þeir eru Dagný Jónsdóttir, Gunnar
Már Sigurfinnsson, Lára Péturs-
dóttir, Sævar Skaptason, Gunnar
Sigurðsson, Dagur B. Eggertsson,
Pétur Rafnsson og Dóra Magnús-
dóttir. Formaður er Einar Oddur
Kristjánsson. Hlutverk ráðsins er að
leggja fram tillögur til ráðherra um
markaðs- og lcynningarmál ferða-
þjónustunnar og vera ráðgefandi
aðili fyrir ráðherra um áætlanir í
ferðamálum svo fátt eitt sé nefnt.
"BT Vaxtalausar léttgreiöslur!
Njóttu hverrar stundar!
Sjávarútvegur:
Látið sverfa til stáls gegn sjóræn-
ingjaveiðum á Reykjaneshrygg
Landhelgisgœslan stóreykur eftirlit á Reykjanes-hrygg. Reynt að koma í vegfyrir löndun
afla erlendis og að skipinfái þar nokkra þjónustu.
íslensk stjórnvöld hyggjast láta sverfa
til stáls gagnvart svonefndum sjóræn-
ingjaveiðum á Reykjaneshrygg með
auknu eftirliti og aðgerðum gegn
þeim skipum og útgerðum, sem í
hlut eiga. Aðgerðirnar munu fyrst
og fremst felast í því að koma upplýs-
ingum um skipin á framfæri við yfir-
völd og fyrirtæki erlendis til þess að
koma í veg fyrir löndun afla og sölu
á kosti og eldsneyti til þeirra.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarút-
vegsráðherra, kynnti á blaðamanna-
fundi í gær hvernig reynt verður
að uppræta ólöglegar og óábyrgar
veiðar á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg. Þær eru verulegar og miðað
við fjölda skipa á svæðinu mun ekki
óvarlegt að ætla að þau veiði um 20-
30.000 tonn á ári.
Einar kvað engar vísbendingar um
að sjóræningjaveiðar af þessu tagi
hefðu aukist að undanförnu, en á
hinn bóginn hefðu tæknilegir mögu-
leikar á eftirliti á svæðinu aukist,
ástæða væri til þess að hafa áhyggjur
af úthafskarfastofninum og þolin-
mæði manna gagnvart þessum ólög-
legu veiðum væri á þrotum.
Utan lögsögu íslands
Svæðið er utan íslenskrar lögsögu
þannig að Landhelgisgæslan hefur
ekki heimild til þess að fara um borð
í skipin, en þó eru nokkur brögð
að því að skipin fari inn fyrir 200
sjómílna efnahagslögsögu Islands.
Landhelgisgæslan beitir margvís-
legri fjarkönnun til þess að fylgjast
með svæðinu, m.a. gervihnatta-
myndum, en við þær er stuðst þegar
eftirlitsflug Landhelgisgæslunnar
er skipulagt. Með þeim hætti er
grennslast fyrir um skipin og upp-
runa þeirra og í framhaldinu verður
þess freistað að gera þeim erfiðar
fyrir, svo erfitt að útgerð þeirra verði
þeim óarðbær.
Fyrst og fremst verður það gert
með því að gera þeim óhægt um
löndun aflans í Evrópu og vestan-
hafs, en einnig með því að beina því
til hafnaryfirvalda að meina þeim
að taka land og fyrirtækjum að selja
þeimþjónustu. „Fyrirtæki, sem vönd
eru að virðingu sinni, vilja auðvitað
ekki eiga í viðskiptum við sjóræn-
ingja," sagði sjávarútvegsráðherra og
kvaðst vongóður um að upplýsinga-
miðlun íslenskra stjórnvalda yrði til
þess að gera sjóræningjana óalandi
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar og Gylfi Geirsson, forstöðumaður fjarskiptaþróunar.
og óferjandi á helstu mörkuðum.
Fyrsta skrefið er að senda ítarlegt
bréf til stjórnvalda og sjávarútvegs-
fyrirtækja, einkum í Evrópu. Þegar
veiðar hefjast síðar á árinu verður
gripið til frekari aðgerða. Einar sagð-
ist vonast til þess að árangur yrði
af þessum aðgerðum þegar á næstu
vertíð.
Eftirlitið fyrst og fremst úr lofti og
aðgerðir bréflegar
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, var á fundinum og
sagði hann aukið eftirlit á Reykjanes-
hrygg fyrst og fremst felast í auknu
eftirliti úr lofti. Jafnframt yrði reynt
að halda úti varðskipum á því eftir
því semtök væru á.
Gylfi Geirsson, forstöðumaður fjar-
skiptaþróunar og fjareftirlits Land-
helgisgæslunnar, gerði grein fyrir
því hvernig tækninýjungar hefðu
eflt mjög möguleika gæslumanna til
fjarkönnunar á svæðinu, en til þess
er gervihnattatækni nýtt.
Með þessu aukna eftirliti gæsl-
unnar verður sérstök áhersla lögð
á að fylgjast með umskipun afla á
hafi úti og leið hans á markað. Reynt
verður að fá þá sem veita skipunum
þjónustu til að láta af því og koma
þannig í veg fyrir að þau geti landað
illa fengnum afla. Haft verður sam-
band við þau fánaríki sem skipin eru
skráð í og leitað liðsinnis þeirra til
að koma böndum á þessar ólöglegu
veiðar.
Blaiið/Stelnar Hugi
Sungið yfir leiði stofnandans
(gærmorgun komu félagar (Karlakór Reykjavíkur saman við leiði Sigurðar Þórðarson-
ar, tónskálds og storfnanda kórsins í tilefni af því að 80 ár eru liðin frá stofnun kórsins.
Lagður var blómsveigur á leiði Sigurðar og nokkur lög sungin.
AutoSport Bílaleiga
Við erum með bíl handa þér!