blaðið - 04.01.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 biaöíö
Fjöldagröf finnst í Chile
Talið er að um 100 fórnarlömb herforingjastjórnar Augusto
Pinochet hafi verið grafin á svœðinu en síðar fjarlœgð. Gröfin
fannst á landi þýsks prests og barnaníðings sem starfaði í skjóli
herforingjastjórnarinnar.
Talið er að í fjöldagröfinni í Chile hafi um 100 fórnariömb herforingjastjórnar Augusto
Pinochet verið grafin.
Sprengingar
í Nepal
Tvær sprengingar urðu í ferða-
mannabænum Pokhara í Nepal
í gær. Fleiri sprengingar áttu sér
stað í bænum og tveimur öðrum
nóttina áður. Skömmu áður höfðu
uppreisnarmenn Maóista bundið
enda á einhliða vopnahlé sitt og er
hætta talin á að ofbeldi muni færast
enn frekar í aukana á næstunni.
Ekki er vitað til þess að nokkur
hafi slasast í sprengingunum í
bæjunum þremur. Enginn hefur lýst
yfir ábyrgð á sprengingunum en
uppreisnarmenn liggja undir grun.
Alberto Fujimori fyrrverandi forseti Perú.
Framsal
Fujimori
Yfirvöld í Perú fóru í gær fram á það
við yfirvöld í Chile að þau fram-
seldu Alberto Fujimori, fyrrverandi
forseta Perú, svo að hægt verði að
rétta yfir honum út af ákærum
um mannréttindabrot og spillingu.
Fujimori hefur verið í stofufangelsi
í Chile síðan hann kom óvænt til
landsins fyrir tveimur mánuðum
frá Japan. Þar hafði hann dvalist
síðan hann hrökklaðist úr landi
eftir að stjórn hans hrundi vegna
spillingarhneykslis árið 2000.
Menn lokast
inni í námu
Björgunarmenn voru vonlitlir um
að það tækist að bjarga 13 mönnum
sem höfðu lokast inni í námu í
Vestur Virginíu í Bandaríkjunum
í gær eftir að hafa mælt magn
kolsýrings í námunni. Magn kolsýr-
ings reyndist vera rúmlega þrisvar
sinnum meira en talið er öruggt.
Yfirmaður hjá námafyrirtækinu
sagði að þrátt fyrir slæmar niður-
stöður væri ekki öll nótt úti enn og
möguleiki á að námaverkamenn-
irnir væru enn lifandi. Náman lokað-
ist í kjölfar sprengingar á mánudag
og lokuðust mennirnir inni 78
metrum fyrir neðan yfirborð jarðar.
Dómari f Chile hefur fyrirskipað
rannsókn á ómerktri fjöldagröf sem
nýlega fannst í fyrrum þýskri hólm-
lendu í suðurhluta Chile. Mann-
réttindahópar segja að yfirmenn
hólmlendunnar hafi aðstoðað herfor-
ingjastjórn Augusto Pinochet við að
bæla niður andstöðu vinstri manna
á sínum tíma. Talið er að tugir líka
hafi verið grafin á svæðinu sem áður
kallaðist Colonia Dignidad en hafi
síðar verið fjarlægð.
Á síðasta ári tók ríkið við
svæðinu. Fyrrverandi yfirmaður
þess, Paul Scháfer, er í fangelsi
vegna misnotkunar á börnum og
mannréttindabrota.
Sérfræðingar sem starfa á svæð-
inu segja að þó að þeir hafi ekki
fundið neinar líkamsleifar séu þeir
fullvissir að þar hafi lík verið grafin
og síðar flutt í burtu. Þeir segja enn-
fremur að fleiri ómerktar grafir
kunni að vera á svæðinu þar sem
talið er að um 100 vinstri sinnar
hafi verið líflátnir.
Þýskur nasisti og barnaníðingur
Paul Scháfer, fyrrverandi nasisti og
babtistaprestur, setti hólmlenduna
Ráðherrar Líkúdbandalagsins í ríkis-
stjórn ísraels munu segja sig úr
stjórninni á sunnudag. Benjamin
Netanyahu, leiðtogi Likúdbanda-
lagsins, greindi frá þessu í gær. Fylgi
flokksins hefur mælst lítið í skoðana-
könnunum síðan Ariel Sharon, for-
sætisráðherra, yfirgaf hann og stofn-
aði eigin flokk, Kadima. Brotthvarf
ráðherranna fjögurra mun að öllum
líkindum hafa lítil áhrif á ríkis-
stjórnina enda stutt til kosninga en
þær fara fram 28. mars.
Sharon sagði sig úr Líkúdbanda-
laginu vegna ágreinings við hægri
sinnaða flokksfélaga sem voru mót-
fallnir brotthvarfi Israelsmanna af
Gasaströnd á síðasta ári og frekari
heimkvaðningu herliðs frá land-
nemabyggðum á Vesturbakkanum.
Aðeins eru sjö ráðherrar eftir i
stjórn Sharons eftir brotthvarfið og
fylgdu þeir honum allir í Kadima.
Áður höfðu ráðherrar Verkamanna-
flokksins sagt af sér. Sharon getur
útnefnt nýja ráðherra tímabundið
eða gegnt störfum þeirra sjálfur.
Stefnir í sigur Sharons
Þrátt fyrir auknar áhyggjur af
á laggirnar árið 1961 eftir að hann
hafði flúið til Chile frá Þýskalandi
til að koma sér undan ákærum um
misnotkun á börnum. Hún er um
13.000 hektarar að stærð og er talið
að flestum íbúum hennar hafi verið
heilsu Sharons stefnir í sigur hins
nýja flokks hans í kosningunum
í lok mars. Forsætisráðherrann
mun gangast undir hjartaaðgerð á
haldið þar gegn vilja þeirra. Sam-
kvæmt skýrslu sem þjóðþing Chile
lét gera um Colonia Dignidad var
hún eins konar „ríki í ríkinu" sem
Scháfer stjórnaði vegna náinna
tengsla sinna við valdastétt ríkisins.
morgun og tekur því Ehud Olmert,
aðstoðarforsætisráðherra Israels,
við skyldustörfum hans á meðan.
Björgunarmaður ásamt leitarhundi á
vettvangi slyssins.
Harmleikur í
skautahöll
Að minnsta kosti ellefu fórust þegar
þak skautahallar hrundi í litlum bæ
í suður Þýskalandi. Fjögurra var enn
saknað síðdegis í gær. Flestir hinna
látnu voru börn og unglingar. Um 50
manns voru í skautahöllinni þegar
þakið gaf sig síðdegis á mánudag
og slösuðust 34 þeirra, þar af 18
alvarlega. Sólarhring eftir að slysið
átti sér stað leituðu björgunarmenn
enn í rústunum en vonir manna um
að finna fleiri á lífi höfðu þó dofnað.
Síðdegis í gær þurfti að fresta björg-
unaraðgerðum vegna hættu á hruni.
Ekki er ljóst hvað olli því að þak
byggingarinnar gaf sig en mikill
snjór hafði safnast saman á því.
Byggingin var ríflega þrjátíu ára og
segja sumir bæjarbúar að viðhaldi
hennar hafi verið ábótavant.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, lýsti í gær yfir samúð sinni
með fórnarlömbunum og hrósaði
björgunarmönnum sem ynnu í
kapp við tímann að því að finna þá
sem kynnu að hafa komist lífs af.
Slysatíðni klapp-
stýra tvöfaldast
Tíðni meiðsla í röðum klappstýra í
Bandaríkjunum rúmlega tvöfaldað-
ist frá 1990 til 2002 samkvæmt rann-
sókn sem birt var í gær. Áætlað er að
um 208.800 ungmenni á aldrinum 5
til 18 ára hafi þurft að leita til heilsu-
gæslu og sjúkrahúsa vegna meiðsla
sem tengdust klappstjórn á þessu
tímabili. Flestir þeirra sem slösuð-
ust voru á aldrinum 12 til 17 ára og
algengust voru meiðsli á fótleggjum,
hæl og ökkla. Talið er að aukna
slysatíðni megi skýra með því að
atriði klappstýranna krefjist meiri
fimleikahæfni og lipurðar en áður.
Ráðherrar Líkúd
yfirgefa stjórnina
Ráöherra Líkúdbandalagsins í ríkisstjórn Ariels Sharon munu segja sig úr henni á sunnu-
dag.
orkudrykkun