blaðið - 04.01.2006, Síða 10
10 i ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöiö
Gasflutningar í eðlilegt horf
Gert var ráðfyrir aðgasflutningar til Evrópu kœmust í eðlilegt horfígœrkvöldi. Ekki virðist
vera lausn í sjónmáli ígasdeilu Rússa og Úkraínumanna þráttfyrir alþjóðlegan þrýsting.
Gömul kona sem býr í nágrenni Kiev, höfuðborgar Úkraínu, ber eldivið inn á heimili sitt eftir að rússneska fyrirtækið Gazprom skrúfaði
fyrir gasflutninga til landsins.
Rússar unnu að því í gær að koma
gasflutningum til Evrópu í eðlilegt
horf en verulega dró úr þeim í kjöl-
far þess að skrúfað var fyrir gasflutn-
inga til Úkraínu.
Javier Solana sem fer með utanrík-
ismál hjá Evrópusambandinu reyndi
að fá Rússa og Úkraínumenn að
samningaborðinu út af gasdeilunni í
gær. Philippe Douste-Blazy, utanrík-
isráðherra Frakklands, hvatti einnig
stjórnvöld í löndunum tveimur til
að komast að samkomulagi í gasdeil-
unni og láta hana ekki hafa meiri
áhrif á gasflutninga til Evrópu.
Lausn ekki í sjónmáli
Þrátt fyrir þrýsting annarra ríkja
virðist ekki vera lausn í sjónmáli
í deilunni og hafa samskipti land-
anna tveggja verið með stirðara
móti. Rússar saka Úkraínumenn
um að stela gasi sem ætlað er ríkjum
í mið- og vesturhluta Evrópu. Úkra-
ínumenn neita þeim ásökunum þó
að þeir hafi lýst því yfir að þeir muni
taka toll af gasinu fari hitastig niður
fyrir -2 gráður.
Rússar fara fram á að Úkra-
ínumenn greiði rúmlega fjórum
sinnum hærra verð fyrir gas en
þeir hafa gert. Gassala til Úkraínu
hefur verið niðurgreidd frá tímum
Sovétríkjanna en nú vilja Rússar
samræma gasverð því sem gildir á
almennum markaði. Úkraínumenn
segja aftur á móti að með aðgerð-
unum séu Rússar að reyna að grafa
undan ríkisstjórn landsins. Viktor
Júsjenkó, forseti Úkraínu, þykir
hliðhollur vesturveldunum og hafa
stjórnvöld i Moskvu ekki farið leynt
með óánægju sína með það. Banda-
ríkjamenn hafa varað Rússa við
því að beita orkuþvingunum i póli-
tískum tilgangi.
Norður Kóreumenn setja Bandaríkjmönnum stólinnfyrir dyrnar:
Fara fram á að
viðskiptaþvingunum verði aflétt
Norður Kóreumenn segjast ekki
ætla að halda áfram viðræðum
um eyðingu kjarnavopna nema
Bandaríkin aflétti viðskiptaþving-
unum sem þau lögðu á ríkið vegna
meintrar peningafölsunar og pen-
ingaþvættis. Rodong Sinmun, tals-
maður Kommúnistaflokks Norður
Kóreu, hvatti Bandaríkin til að
hindra ekki viðræður sex þjóða um
eyðingu kjarnavopna með því að af-
létta þvingununum. „Það er ómögu-
legt að halda viðræður sex þjóða og
sitja gegnt mótherja sem leitast við
að einangra okkur og bæla okkur,“
sagði hann.
Samþykktu eyðingu kjarna-
vopna í september
Eftir viðræðulotu í september sam-
þykktu Norður Kóreumenn að eyða
kjarnavopnum sínum gegn ýmsum
diplómatískum og efnahagslegum
friðindum auk þess sem öryggi
landsins yrði tryggt. 1 nóvember
sögðu Norður Kóreumenn aftur á
móti að viðskiptaþvinganir stæðu í
vegi fyrir framförum.
Bandaríska fjármálaráðuneytið
bannaði bandarískum fjármála-
stofnunum í september að eiga við-
skipti við Banco Delta Asia bankann
í Macau sem það sakar um að vera
yfirvarp fyrir peningafölsun Norður
Kóreumanna. Mánuði síðar settu
bandarisk yfirvöld átta norður-kór-
esk fyrirtæki á svartan lista vegna
gruns um að þau tækju þátt í dreif-
ingu gereyðingarvopna.
Auk Bandaríkjamanna og Norður
Kóreumanna eiga Kínverjar, Japanir,
Rússar og Suður Kóreumenn aðild
að viðræðunum.
Viðræður um eyðingu kjarnavopna
f Norður Kóreu eru í óvissu vegna
kröfu Norður Kóreumanna.
Fimm ítalskir ferðamenn gíslar í Jemen:
Setið um mannræningja
Jemenskar hersveitir höfðu í gær
þrengt hringinn um mannræningja
sem tóku fimm ítalska ferðamenn
sem gísla. Ræningjarnir hóta að
taka gíslana af lífi verði ráðist á þá.
Yfirvöld segja umsátrinu ætlað að
frelsa gíslana og handtaka glæpa-
mennina sem stóðu að ráninu. „Við
munum ekki sýna þessum glæpa-
mönnum neina linkind sem hafa
skaðað orðspor þjóðar okkar, efna-
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
i 46 £ • "Tjtéwd
S. 567 1800
hagslíf og ferðamannaiðnað,“ sagði
heimildarmaður í innanríkisráðu-
neyti Jemens.
Yfirvöld hafa neitað að taka þátt
í samningaviðræðum við gíslatöku-
mennina, en sendinefnd ætthöfð-
ingja hefur reynt að komast að sam-
komulagi við þá.
Heimildarmaður innan lög-
reglunnar sagði að gíslarnir fari
fram á að átta félögum í gengi sem
þeir tilheyra verði sleppt en þeir
voru handteknir fyrir ættarvíg.
Hundruð manna mótmæltu gísla-
tökunni f Sanaa, höfuðborg Jemen.
Stuðningur bandarfskra hermanna við
stefnu George Bush, forseta, f (rak hefur
dvínað samkvæmt nýrri könnun.
Stuðningur her-
manna dvínar
Stuðningur við stefnu George Bush,
Bandaríkjaforseta, í Irak hefur
minnkað á meðal bandarískra
hermanna samkvæmt árlegri
könnun tímaritsins Military Times.
Nú segjast 54% þátttakenda vera
hlynntir stefnu hans í landinu en
voru 63% fyrir ári síðan. Stuðningur
við heildarstefnu forsetans hefur
einnig minnkað úr 71% í fyrra í 60%
nú. Þó að forsetinn njóti talsvert
meiri stuðnings meðal hermanna
en almennings i Bandaríkjunum
hafa vinsældir hans einnig dvínað
meðal þeirra. Military Times
segir að líklegt sé að niðurstöður
könnunarinnar eigi effir að hleypa
nýju lífi í umræður um stefnu
bandarískra stjórnvalda í írak.
Upplýsingar um dánartfðni sjúklinga
einstakra hjartaskurðlækna á Bretlandi
verða aðgengilegar á Internetinu.
Dánartíðni sjúk-
linga á Netið
Breska heilbrigðiseftirlitið hefur
í hyggju að birta upplýsingar um
dánartíðni sjúklinga einstakra
hjartaskurðlækna. Stefnt er að því
að upplýsingarnar verði öllum
aðgengilegar á Internetinu eftir
um fjóra mánuði. Þær munu gera
sjúklingum kleift að velja sér lækni
eftir árangri hans. Enn eru þó
margir skurðlæknar sem neita að
láta upplýsingar um dánartíðni af
hendi sem gerir það að verkum að
gagnagrunnurinn gefur ekki alveg
rétta mynd af ástandinu. Sumir
skurðlæknar telja að ekki eigi að
gera upplýsingarnar opinberar þar
sem það muni gera það að verkum
að meiri lfkur séu á að skurðlæknar
neiti að taka að sér tvísýnar aðgerðir.
Landvistar-
leyfi í skiptum
fyrir kynlíf
Bresk yfirvöld hófu í gær rannsókn
á frásögn dagblaðsins The Sun að
starfsmenn einnar stærstu innflytj-
endaskrifstofu landsins hefðu veitt
útlendingum landvistarleyfi gegn
kynlífi. Fyrrverandi starfsmaður
miðstöðvarinnar sem er f úthverf-
inu Croydon fyrir sunnan London
sagði að starfsmennirnir hefðu mis-
notað aðstöðu sína til að fleka
fallegar konur úr hópi umsækjenda
á meðan umsóknum fólks sem „ekki
hefði úthtið með sér“ hefði verið
hafnað. „Þetta eru alvarlegar ásak-
anir og ég mun ganga úr skugga um
að þær verði ítarlega rannsakaðar,"
sagði Tony McNulty, innanríkisráð-
herra. „Augljóslega mun ég ekki lfða
þess háttar hegðun.“ Um 300.000
umsóknir um landvistarleyfi eru
afgreiddar á hverju ári f miðstöðinni.