blaðið - 04.01.2006, Qupperneq 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
ÓÁBYRG ORÐ
OPINBERS STARFSMANNS
Staða samkynhneigðra hefur batnað stórum síðustu ár og áratugi
og þrátt fyrir að fordóma sé enn að finna úti í samfélaginu þá fara
þeir minnkandi. En eins og svo oft áður þá kemur reglulega bak-
slag í baráttu þessa hóps fyrir sjálfsögðum réttindum sínum þegar opin-
beraðar eru gamaldags og oft illa ígrundaðar skoðanir. Þannig gerist það
því miður öðru hvoru að orð sem falla í opinberri umræðu verða til þess
að efast verður um heiðarleika og einlægni einstakra manna, og jafnvel
heilu hópanna, í að bæta raunverulega réttarstöðu samkynhneigðra.
Það réttindamál sem mest hefur verið talað um síðustu daga og vikur
snýr að rétti samkynhneigðra til að ganga í hjónaband. Nánar tiltekið er
komin upp hávær krafa í þjóðfélaginu um að þjóðkirkja íslendinga viður-
kenni þennan hóp og leyfi samkynhneigðum að staðfesta hjónaband sitt
fyrir Guði. Eins mótsagnarkennt og það kann að hljóma þá er málið til
umfjöllunar á Alþingi fslendinga, því gera þarf breytingu á hjúskapar-
lögum svo kirkjan hafi lagalega heimild til slíkra giftinga. Það virðist
liggja fyrir að meirihluti þingheims sé tilbúinn að taka það skref.
En svo gerðist það í nýárspredikun biskups íslands, Karls Sigurbjörns-
sonar, að hann kaus að taka málið upp. í upphafi sagði hann að kirkjan
hefði í gegnum tíðina fagnað réttindabótum til handa samkynhneigðum
og að þjóðkirkjan stæði heilshugar með þessum hópi. Strax í kjölfarið
sagði biskup að til þessa hefði hjónaband talist vera sáttmáli eins karls
og einnar konu, „enda sé það í samhljómi við grundvallarforsendu sem
kristin trú og siður hafi byggt á frá öndverðu." Að lokum varaði hann
þingmenn við og bað þá um að „leyfa hjónabandinu að njóta vafans.“
í fréttum NFS lét hann síðan hafa eftir sér eitthvað á þá leið að ekki ætti
að kasta hjónabandinu á sorphauginn án þess að menn hugsuðu fyrst
sinn gang.
Það er engum blöðum um það að fletta að kirkjan er eitt íhaldsamasta
afl samfélagsins og þannig ættu orð biskups kannski ekki að koma á
óvart. Þessi tvískinnungur biskups er hinsvegar óþolandi. Hann segir
fyrst að samkynhneigðir eigi að njóta aukinna réttinda - en bætir svo
við að það megi samt ekki gerast innan þeirrar stofnunar sem hann fer
fyrir. Þrátt fyrir að Karl Sigurbjörnsson sé einungis opinber starfsmaður
þá hafa orð hans áhrif. Hann ætti því að gæta sín á að beita þeim ekki
jafn óvarlega og raun ber vitni.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar. Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiöja Morgunblaösins. Dreifing: (slandspóstur.
NLP Nów-steeí-ð
Neu.ro - LÍ.rtgustLo - Progrflm-nd.wg
skóli tífsins
wwvv.ckar'.com kari^ckari.corr.
- ersjáL-^rnusttó C ólngL?
- unwgnr j>íg C betrí LCínr.?
- píwust -)>ór nð fáír steLy L -(sLg?
- Br íLtthvnó C fnrL fCrcu. sern. at fú vLLt vLr.rcn bug 6?
- FLr,ust \>ír nð öJruwc gnvcgL betur L LCflwu ewjiór?
- e;ewgur Llln nj teLárn verteefvu- servc-þii bytjnr á?
- FLr.rv.st pér erfLtt að bévvdln gngr,rýrú?
Me8 NUP «8fer8u.rr. geturýú nuðveLdLega breytt
LífL fírvu. og stenp«8 pLrtn eLgLrt frnrr-tLð.
NLP er rtotnð nf fóLteL urr. nLLnrv. beLrw.
servc befur r^ð ffábee-rurr. UgbMmMvUlk rL Fyfórssort mfnlp
árnrvgrL L LLfLrvu. utpplýsLrtgnr L sLrwn: í?94-229a
Netfnwg: tenrú®etenrL.eí)W.
Ndrusteelðlð fer fraru. vlrtea daaa frá
30. jflrvúflr tlL ±Q. ■fcbrúar -frá teL xg-aa
NÓrUlrí. uppLiýsi.rvqflr urvt NL.P rvcd fLrvrva á: www.6te.nrL.corvt
14 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöið
"É& líEvJfii EKJCi íp TíKfl TiL í
UFj$EjeGfwu Mínu o& va
VíÞ VKKuie
SHrJuM;... VTöflT’E'KiN&fl FJo&uRpn
ára tíT»& 1,%Z PT fasrr'EKJvM
Dýrabær viöskiptalífsins
Skömmu fyrir áramót kynntu Kaup-
höllin, Viðskiptaráð og Samtök
atvinnulífsinsaðraútgáfuafLeiðbein-
ingum um stjórnarhætti fyrirtækja
á sérstökum blaðamannafundi
Þar kom fram hjá forstjóra Kaup-
hallarinnar að öllum skráðum
félögum í Kauphöllinni bæri að fara
eftir reglunum. Nýráðinn forstjóri
vátryggingafélagsins Sjóvár sagði að
reynslan af fyrri útgáfu reglnanna
væri góð og sannaði að viðskiptalíf-
inu væri fullkomlega treystandi til
að setja sjálfu sér reglur og fara eftir
þeim. Eins að skoða þyrfti hvort
ekki mætti beita því, sem hann kall-
aði sjálfsprottnum reglum, á fleiri
sviðum.
Hafa reglurnar dugað?
Fréttir af þessum blaðamannafundi
vöktu þá spurningu í hvaða tilfellum
hinar sjálfsprottnu reglur hafi
reynst svo vel. Eru ekki miklu heldur
dæmi um hið gagnstæða? Þannig
fer lítið fyrir að eigendur FL Group,
sem er skráð félag í Kauphöllinni,
hafi virt reglur um óháða stjórnar-
menn. Þeir sem töldust óháðir í
stjórn FL Group ákváðu í fyrra að
hverfa úr stjórn félagsins, að sögn
vegna þess að stjórnarformaðurinn
virti ekki stjórnarreglur þess og
trauðla ákvæði hlutafélagalaga um
verkaskiptingu stjórnar og forstjóra.
FL Group hefur verið eitt umtalað-
asta og umsvifamesta félag í Kaup-
höllinni síðasta hálfa árið. Hvorki
heyrðist þó hósti né stuna þaðan
þegar þetta gekk yfir og engin krafa
vkðist komin fram um að í stjórn
séu einhverjir óháðir stjórnarmenn.
Þá var því haldið fram í skráningar-
lýsingu Mosaic Fashion á liðnu ári
að einn stjórnarmanna hið minnsta
væri óháður. Það gleymdist hins
vegar að geta þess að hann var þá á
kafi í alls kyns ráðgjafarverkefnum
fyrir stærsta eigandann, Baug
Group, sem hafði mesta hagsmuni
af því að skráningin gengi upp. Ráð-
gjafastörfin leiddu til þess að hann
fór í vinnu hjá Baugi Group og Dags-
brún, en síðargreinda félagið er að
stærstum hluta í eigu Baugs Group
og annarra eigenda FL Group.
Kauphöllin og forvígismenn
hennar hreyfðu engum andmælum
við þessum upplýsingum í skrán-
ingarlýsingunni, sem voru rangar.
Kannski er þessi stjórnarmaður
hættur í stjórn Mosaic Fashion eða
bara hættur að vera óháður.
Sjálfsprottna regluverkið
hrekkur skammt
Sjálfspottnar reglur viðskiptalifsins
virka þvi ekkert betur en boðorðin
tiu. Þrátt fyrir tilvist boðorðanna
hafa menn stolið, drepið og drýgt
hór svo lengi sem elstu menn muna.
Og það er jafnvel stolið og drepið, þó
refsing hafi lengst af verið lögð við
því í lögum. Hvorki sjálfsprottnar
reglur né vald- og viðurlagabundnar
reglur virðast þannig duga til að
halda aftur af þvi sem almennt er
talin óæskileg hegðun manna.
Sjálfsprottnar reglur viðskipta-
lífsins kunna að lýsa vonum og
væntingum þeirra, sem þær settu
á blað. Lengra ná þær ekki. Þær
eru á vissan hátt eins og yfirlýsing
dýranna í Dýrabæ George Orwells,
um að öll dýrin á þeim bæ skyldu
jöfn. I viðskiptum ætla allir að vera
góðir og heiðarlegir. I Dýrabæ var
reglum breytt og þær sveigðar að
hagsmunum svínanna, sem þar
náðu völdum, og þau urðu jafnari en
önnur dýr. Hið sama gildir um hinar
sjálfsprottnu reglur viðskiptalífsins.
Enginn, sem viðskipti stundar, kærir
sig um að fara eftir sjálfsprottnu regl-
unum, þegar hann þarf að skara eld
að eigin köku. I viðskiptum verða
alltaf einhverjir jafnari en aðrir,
eins og glöggt má sjá af viðbrögðum
viðskiptalífsins við ákvörðunum
Yfirtökunefndar Kauphallarinnar.
Þegar nefndin hefur komist að raun
um að yfirtökuskylda hafi myndast í
skráðum hlutafélögum hafa forsvars-
menn þeirra gefið skít i niðurstöðu
nefndarinnar á kostnað minnihluta
hluthafa.
Eftir situr nefndin marklaus og
kveðst ekkert geta gert því hún hafi
ekki völd til að framfylgja ákvörð-
unum sínum.
f Dýrabæ viðskiptlífsins eru öll
dýrin jöfn en þó sum jafnari en
önnur.
Höfundur er útgefandi Blaðsins.
Klippt & skoríð
Fyrir norðan eiga Sjálf-
stæðismenn ekki orð ^ ^ ™
fyrir ánægju sinni
með að hafa tekist að kljúfa — ,
Samfylkingunaþarsembæði M
Oktavfa Jóhannsdóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Sigbjörn
Gunnarsson.fyrrumþingmaðurAlþýðuflokks-
ins eru gengin til liðs við þá. Þau bæði, sérstak-
lega Sigbjörn, hafa sterkan kjarna í kringum
sig, sem gæti skipt hundruðum atkvæða.
Sagan segir að þar sem Ijóst sé að Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri fari á þing strax í næstu
kosningum þá sé búið að ganga frá þvf að Sig-
björn verði næsti bæjarstjóri Akureyringa.
A
vef Mannlífs (www.mannlif.is) er
fullyrt að Samtök atvinnulffsins (SA)
hafi boðið llluga Gunnarssyni,
hagfræðingi og fyrrverandi
aðstoðarmanni Davfðs
Oddssonar, að verða fram-
kvæmdastjóri samtakanna
eftir að Ari Edwald gekk á
mála hjá Baugi. Nú má efast
um að stjórn samtakanna
hafi sprett svo úr spori um áramótin við að
finna arftaka Ara, en lllugi kveðst hafa verið
jafnundrandi og aðrir þegar Reynir Traustason
ritstjóri Mannlffs bauð honum starfið með
þessum hætti. Hitt er annað mál að fáir eru
sjálfsagt betur hæfir í starfið en lllugi.
Iáramótaávarpi forsætis-
ráðherra ræddi Halldór
Ásgrímsson m.a. um 1
þjóðgarðinn á Þingvöllum og
vakti máls á því að mikilvægt
kl\pptogskorid@vbl.is
væri „að lögin frá 1930 verði f heiðri höfð en
þar segir að Þingvellir við öxará skuli vera frið-
lýstur helgistaður allra íslendinga". Vef Þjóð-
viljinn (www.andriki.is) bendir á í gær á örlítil
mistök (málflutningi Halldórs:
„Já það er mikilvæg t að lögin frá 1930 verði i
heiðri höfð. Ekki siður var mikilvægt að lög
nr. S9/192S um friðun Þingvalla væru haldin í
heiðri, en þau giltu þar til þau voru afnumin
með lögum nr. 47/2004 um þjóðgarðinn á
Þingvöllum. Þess vegna vill Vefþjóðviljinn
taka undir og gera að sinni ósk Halldórs
Ásgrímssonar um að lögin frá 1930 verði I
heiðri höfð. Hvaða lög sem það eru. Lögin við
alþingishátiðarljóðin kannski".