blaðið - 04.01.2006, Page 16
16 I SKOÐUN
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 MaAÍð
Að éta ósvífnina
ofan í sig
Á hvaða braut er
Sjálfstæðisflokk-
urinn eiginlega?
Finnst Valhallar-
mönnum upp á
það bjóðandi að
benda forseta lýð-
veldisins á að fara í
mál við ríkisstjórn-
ina út af ákvæði í
stjórnarskránni?
Flumbrugangurinn og fljót-
færnin virðast sérstaklega tilheyra
þessari ríkisstjórn þegar kemur að
samskiptum við forseta lýðveldisins.
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leggja það til við Alþingi að síðasta
úrskurði Kjaradóms verði breytt
og að sú tillaga gangi yfir alla sem
úrskurðurinn náði til ber vott um
þetta. Ríkisstjórninni láðist sem
sé að athuga hvort gerðin stæðist
stjórnarskrá.
Á gamlársdag var viðtal við Geir
Haarde formann Sjálfstæðisflokks-
ins og tilefnið var það álit Eiríks
Tómassonar lagaprófessors að sam-
kvæmt ákvæði í stjórnarskrá mætti
ekki lækka laun forseta íslands á
því kjörtímabili sem hann hefur
verið kosinn til. Geir var spurður
um þá fyrirætlan ríkisstjórnarinnar
að breyta niðurstöðu Kjaradóms í
þessu ljósi. Svarið sem hann gaf var
að innihaldi það að ef einhver teldi
á sér brotið þá gæti viðkomandi
bara farið í mál. Hér talar formaður
stærsta stjórnmálaflokksins í land-
inu. Við erum svo sem ýmsu vön
úr þeim herbúðum frá fyrri tíð. Svo
mæla börnin sem fyrir þeim er haft
segir gamalt máltæki. Var annars
ekki komið nóg af ósvífnum hort-
ugheitum úr þessum ranni 1 garð
forsetans?
Var ekki líka komið nóg af virð-
ingarleysi fyrir stjórnarskránni?
Á hvaða braut er Sjálfstæðisflokk-
urinn eiginlega? Finnst Valhallar-
mönnum upp á það bjóðandi að
benda forseta lýðveldisins á að fara
í mál við ríkisstjórnina út af ákvæði
í stjórnarskránni?
Geir og Sjálfstæðisflokkurinn eru
greinilega ekki búnir að læra það
eftir fjölmiðlamálið að forsetinn
er sérstakur vörslumaður stjórnar-
skrárinnar og að hann getur ekki
staðfest lagafrumvörp sem stríða
gegn ákvæðum hennar. Þessi
ákvörðun ríkisstjórnarinnar getur
þess vegna ekki staðist. Nú verður
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra að ganga fram og biðja forset-
ann og þjóðina forláts á flumbru-
ganginum fyrir sína hönd og Geirs.
Það er eina leiðin og þeir þurfa að
sýna að þeir skammist sín.
Það kann að vera að ungu hetj-
unum í Heimdalli hafi fundist
þessar sendingar snöfurmannlegar
hjá Geir en almenningi í landinu
fannst það ekki. Það er nefnilega
fyrir löngu nóg komið af ruddaskap
og ósvífni úr herbúðum Sjálfstæðis-
flokksins gagnvart forsetaembætt-
inu og stjórnarskránni. Stjórnmála-
foringjar sem óvirða forsetann og
stjórnarskrána ítrekað þurfa að
hugsa sinn gang og þeim er svo sem
mátulegt að þurfa að éta ósvífnina
ofan í sig.
Höfundur er alþingismaður
http://www.jarsaelsson. is
Jóhann
Ársælsson
1400 mánaðarlaun
fyrir brottrekstur:
Eru Flugleiðir að tapa vitinu?
Er hægt að taka
mark á ræðum
atvinnurekenda
þegar þeir messa
um hófstillt laun í
samfélaginu?
Eitt rótgrónasta
fyrirtæki á íslandi
er Flugleiðir, og á
sér áratugalanga
útrásarsögu. Það heitir núna FL-
grúpp samkvæmt nýjustu nafntísku.
Eigendur fyrirtækisins ráku tvo for-
stjóra á árinu sem var að líða. For-
stjórarnir tveir fá samkvæmt samn-
ingum samtals 291 milljón króna
fyrir að fara.
58 ár!
Meðallaun á Islandi árið 2005
voru 207.800 krónur á mánuði
samkvæmt Kjararannsóknanefnd.
Brottrekstrarfé forstjóranna tveggja
jafngildir því mánaðarlaunum 1400
venjulegra Islendinga. Með öðru
lagi: Til að vinna sér inn þessi laun
þurfa tveir meðaljónar að vinna í 700
mánuði hvor, eða í rúm 58 ár. Rétt er
að nefna að síðari brottrekni forstjór-
inn, Ragnhildur Geirsdóttir, hafði
verið við forstjórastörf í fimm mán-
uði þegar hún var látin taka pokann
sinn.
I sömu fréttum (RÚV) er svo það
að Hannes Smárason, núverandi for-
stjóri hafi 4 milljónir á mánuði, og
að sjö „lykilstjórnendur" hafi 154
milljónir á ári eða að meðaltali um
1,8 milljón á mánuði.
Einkafyrirtæki?
Kannski ætti að reikna þetta út i
flugmiðum til Kaupmannahafnar
eða Lundúna? Fyrirtækið Flugleiðir/
FLGroup getur nefnilega ekki svarað
spurningum um þessi laun með
því að okkur komi þetta ekkert við.
Þetta fyrirtæki kemur íslenskum
almenningi og almannavaldinu á
íslandi við með skýrari hætti en
nokkurt annað einkafyrirtæki á
íslandi. Almenningur hefur stutt
félagið og forvera þess með ráðum
og dáð frá miðri síðustu öld, meðal
annars með því að sætta sig um ára-
bil við miklu hærra verð á ferðum
íslendinga en útlendra ferðamanna.
Ríkisvaldið hefur sömuleiðis staðið
við bakið á fyrirtækinu áratugum
saman og sífellt komið til hjálpar
þegar á bjátar, jafnvel með hlutafé
- síðasta augljósa dæmið voru ríkis-
ábyrgðir sem félaginu voru fúslega
veittar í hremmingunum eftir 11.
september 2001.
Fargjaldalækkun - og
meiri skattur?
Stundum er talað um að fyrirtæki
eigi að sýna félagslega ábyrgð. Það
hefur verið orðað þannig á bissness-
máli að í rekstri fyrirtækja verði
bæði að vinna í þágu hluthafanna
(e. shareholders) og haghafanna
(e. stakeholders, ísl. þýð. Pétur
Blöndal!).
Ég veit ekki hvað hluthafarnir
segja við þessum útaustri fjár langt
umfram allt sem getur talist eðli-
legt. Við haghafarnir lítum hins-
vegar þannig á að úr því fyrirtækið
er svona svellríkt hljóti að vera
framundan verulegar lækkanir á
fargjöldum - fyrir utan stórauknar
skattgreiðslur í almannasjóði.
Og svo verður auðvitað gaman að
heyra Samtök atvinnurekenda skýra
afstöðu sína til launastefnunnar hjá
FL. Ingimundur forstjóri íslands-
pósts verður snöggur að því. Hann
hlýtur að vera í æfingu...
Höfundur er alþingismaður
http://www.althingi.is/mordur/
Möröur
Árnason
Græðgisvæðing
Auðvitað ættu hlut-
hafar í FL Group
að reka stjórnarfor-
mann sem leyfir sé
að taka ákvörðun
um nærri 300
milljón króna
starfslokasamn-
inga til tveggja
einstaklinga og
slík ofurkjör til lykilstjórnenda að
ein mánaðarlaun þeirra geta numið
að lágmarki þremur til fjórum
árslaunum lægst launaða fólksins.
Almenningur á að gera kröfu til að
flugfargjöld fyrirtækisins lækki nú
þegar ella verði viðskiptum þeirra
i meira mæli beint að samkeppnis-
aðila FL Group. Alþingi og ráðuneyti
ættu líka að endurskoða þá samn-
inga sem gerðir hafa verið um kaup
á ferðum vegna opinberra aðila við
þetta fyrirtæki, sem nú hefur-tekið
forystu í þeirra græðgisvæðingu sem
stórfyrirtæki á íslandi hafa staðið
fyrir undanfarin misseri til stjórn-
enda. I forsætisnefnd Alþingis mun
ég beita mér fyrir því að endurskoð-
aðir verði samningar sem gerðir hafa
verið um ferðir á vegum Alþingis við
félagið. Þar hlýtur að vera hægt að ná
fram hagstæðari kjörum og sparnaði
á skattfé almennings við fyrirtæki
sem eins og hendi sé veifað munar
lítið um að reiða fram 300 milljónir
i tvo starfslokasamninga.
Græðgisvæðing í kjölfar
einkavinavæðingar
Umhverfi íslenskra fyrirtækja hefur
gjörbreyst á undanförnum árum m.a.
með miklum skattalækkunum fyr-
irtækja og fjármagnseigenda, sem á
samatímahefurleitttilaukinnaskatt-
byrði fólks með lágar og meðaltekjur
eins og margoft hefur fram komið.
Fyrirtækin hafa nýtt þetta hagstæða
skattaumhverfi í hamslausri græðgi
til að bæta kjör stjórnenda. Þessi
taumlausa græðgisvæðing fyrirtækj-
anna sem birtist í ofurkjörum stjórn-
enda og toppanna er svo úr öllu korti
að það hlýtur að kynda upp mikið
ófriðarbál á vinnumarkaðnum með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir
íslenskt efnahagslíf og samfélagið í
heild sinni. Ofurkjör stjórnenda hafa
leitt til þvílíkrar gliðnunar i launa-
kjörum að ég er þess fullviss að þessi
þróun mun marka tímamót og hafa
varanleg áhrif til breytinga í íslensku
samfélagi í átt til aukins ójöfnuðar
og misskiptingar. Græðgisvæðingin
sem kemur í kjölfar einkavinavæð-
ingar mun marka upphaf breytinga
á islensku samfélagi. Þjóðin mun í
auknu mæli skiptast í ríka og fátæka
og stéttskipting sem þegar hefur
skotið rótum hér á landi mun enn
aukast. Við þessu verður að bregð-
ast. Hvet ég til þess að Alþingi skoði
af alvöru tillögu sem nú liggur fyrir
Alþingi um þróun á valdi og lýðræði
á Islandi á s.l. árum og afleiðingum
þess m.a. fyrir efnahags- og atvinnu-
lif og með tilliti til eigna- og tekjutil-
færslna i þjóðfélaginu.
Höfundur er alþingiskona
http://www.althingi.is/johanna
Jóhanna
Sigurðardóttir
Höfdað til öfundar
og afbrýðisemi
Borgar Þór
Ójöfnuður er að
verða tískuorð í
íslenskum stjórn-
málum. Stjórnmála-
menn á vinstri
vængnum tönnlast
á meintum ójöfn-
uði í samfélaginu Einarsson flutni r
við hvert tækifæri..............
Mikil velgengni ein-
stakra aðila í íslensku viðskiptalífi
gerir þessum stjórnmálamönnum
auðveldara fyrir að höfða til öf-
undar og afbrýðisemi og nýta þessar
lægstu hvatir mannsins sjálfum sér
til framdráttar.
Þrátt fyrir að einstakir menn og
konur hafi hagnast verulega á við-
skiptum sínum síðustu ár og miss-
eri, þá er staðreyndin engu síður sú
að óvíða á byggðu bóli ríkir meiri
jöfnuður milli einstakra þjóðfélags-
hópa en hér á landi. Og það er með
öllu tilhæfulaus áróður að launabil
á almennum markaði fari vaxandi.
Engar tölulegar upplýsingar benda
til þess og í raun er um hreina blekk-
ingu að ræða þegar slíku er haldið
fram. Þetta sýna meðal annars tölur
hagstofunnar:
vitaskuld að skapa eftirspurn eftir
auknum afskiptum hins opinbera.
Þannig þjónar allur þessi málflutn-
ingur því markmiði í raun að færa
stjórnmálamönnum völd og heim-
ildir til að útdeila verðmætasköpun
samfélagsins eftir eigin höfði.
Fyrst og fremst lýsir þessi mál-
örvæntingu íslenskra
vinstrimanna. Með auknu frelsi
og svigrúmi einstaklinga til góðra
verka hefur á skömmum tíma tekist
að skapa áður óþekkta velmegun i
íslensku samfélagi. Það má vel vera
að það sé fallið til tímabundinna
vinsælda að höfða til öfundar og
afbrýðisemi meðal einstakra þjóðfé-
lashópa - það yrði ekki í fyrsta sinn
sem íslenskir vinstrimenn beittu
þeim brögðum.
Á næstu mánuðum mun þessi
áróður um ójöfnuð og óréttlæti fær-
ast í aukana. Það kemur í hlut okkar
sem berjumst fyrir frelsi einstak-
lingsins og lágmarksríkisafskiptum
að koma í veg fyrir að þessi tilbún-
ingur nái tilætluðu markmiði.
I frjálsu samfélagi eiga allir jöfn
tækifæri. I samfélagi sem lýtur að
meira eða minna leyti duttlungum
stjórnmálamanna eru tækifærin
Ársbreyting reglulegra launa á almennum vinnumarkaöi eftir starfsstétt 2005
Stjórnendur
Sérfræðingar
Tæknar og sér-
menntað starfsfólk
Skrifstof ufólk
Þjónustu-, sölu- og
afgreiöslufólk
Iðnaöarmenn
Verkafólk
1. ársfjórðungur
7.2
6.2
6.9
7.4
10.1
7.6
2.ársQórðungur
5.5
4.7
5.1
5.9
7.2
7.3
6.8
3.ársQórðungur
4.9
4.5
4.7
4.6
5.3
5.6
6.0
4. ársfjórðungur
Þessar tölur sina auðvitað að laun
eru almennt að hækka mjög mikið,
jafnvel of mikið að margra mati. En
það er með engu móti hægt að lesa
út úr þessum tölum að sú þróun sé
að eiga sér stað um þessar mundir
að bil milli einstakra tekjuhópa fari
vaxandi.
Ætlunþeirrasemstandafyrirþeim
áróðri að hér sé að skapast ófremdar-
ástand vegna misskiptingar auðs er
ekki jöfn, heldur þeirra sem stjórn-
málamenn hafa velþóknun á. Það er
slíkt samfélag sem íslenskir vinstri-
menn vilja koma á - út á það gengur
hin svokallaða velferðarstjórn sem
þeir hyggjast koma á að loknum al-
þingiskosningum i maí á næsta ári.
Höfundur erformaður Sambands
ungra sjálfstœðismanna
www.sus.is