blaðið - 04.01.2006, Síða 17
blaðið tólÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006
BÖRN OG UPPELDI I 17
Aðferðast til útlanda með lítil börn
Góð ráð fyrir ykkur sem
œtlið að ferðast með börn
Það getur verið erfitt að ferðast með
ung börn, allt frá ungabörnum og
upp í fjögurra ára gamla grallara.
Sérstaklega á þetta við um langferðir
þar sem mörgum klukkustundum
er eytt í sama rýminu svo sem eins
og í flugvél eða rútu. Börnum hund-
leiðist að sitja lengi á sama stað og
vilja helst vera út um allt, alltaf.
Það er því er um að gera að vera
vel undirbúinn áður en ferðast er
með börnin og hafa kynnt sér vel
alla möguleika sem eru í boði. Það
gerir ferðalagið miklu auðveldara ef
allt er vel skipulagt fram í tímann
og eins fyrirhafnarlítið og hægt er
og auðvitað ánægjulegra fyrir litla
ferðalanginn sem og alla hans sam-
ferðarmenn. Hér eru nokkur ráð
fyrir þá sem hyggja á ferðalag með
börn sem auðvelda ferðina og eykur
ánægju allra á flakkinu.
Bleyjur
• Útbúðu litla bleyjupoka þar sem
þú ert með eina bleyju, þurrkur
og krem (ef þarf) í hverjum poka
og hafðu í sætisvasanum fyrir
framan þig.
• Skiptiborð eru um borð inni á sal-
ernum vélanna.
• Efþúertaðfaraaðskiptááeinum
stórum þá er ágætt að kanna
hvort flugfreyjur eða þjónar séu
tilbúin til að aðstoða þig við að-
gerðirnar með því að taka skipti-
borðið niður fyrir þig. Eins er gott
að spyrja hvar þau kjósi að bleyju-
skiptin fari fram.
Farangur
• Börn sem borga a.m.k. 50% af full-
orðinsgjaldi eiga rétt á venjulegri
farangursheimild hjá Icelandair.
• Ungabörn mega hafa með sér allt
að 10 kg í farangur og auk þess
kerru eða vagn. Einnig er leyfilegt
að hafa burðarstól.
Matur
Flugleiðir koma vel til móts við þarfir
fólks sem er að ferðast með börn.
Hafa skal þó í huga að ungbarna-
máltíðir og barnamáltíðir verður að
panta fyrirfram, að minnsta kosti
24 tímum fyrir brottför eða þegar
farseðlar eru pantaðir.
• Fyrirungabörninerhægtaðpanta
jógúrt og banana hjá Icelandair.
• Heitt vatn er alltaf um borð til
að hita upp pela og krukkur með
barnamat.
• Barnamaturinn um borð er skyr,
Trópi, Cheerios, lasagna eða Caíz-
one með kalkúnaskinu og osti.
Um borð
• Reyndu að bóka sætaröð þar sem
eitt sæti er laust á milli foreldr-
anna. Þannig getur annað ykkar
hvílt sig á meðan hitt hugsar um
barnið. Athugaðu líka að það
er alltaf best að vera í sæti við
ganginn
• Taktu líka þinn eigin barnamat
með, snakk og kex. Vertu viss um
að hafa það sem barninu finnst
best.
• Um leið og þú sest í sætið, komdu
þá helstu hlutum fyrir í sætisvas-
anum fyrir framan þig.
Hvað slær klukkan?
• Fylgstu vel með klukkunni og
sjáðu til þess að venjur barnsins
fari mjúklega inn í nýjan staðar-
tíma. Gerðu þetta í rólegheitum
og aftur þegar þið komið heim.
Hafðu það alltaf á bak við eyrað
hvað klukkan er heima.
margret@bladid.net
Uppeldis
Boðorðin 10
1. Þú skalt meta börnin þín
eftir því hvernig þau eru, en
ekki hvernig þú vilt að þau
séu.
2. Líttu á sérhvert barn sem
sjálfstæðan einstakling
-ekki sem „krakkann'.
3. Sinntu sjálfum/sjálfri þér
og ekki lifa lifinu í gegnum
börnin þín.
4. Taktu vel eftir öllu sem vel
er gert, hvort sem það er i
smáu eða stóru -og veittu
því viðurkenningu.
5. Láttu börnum þínum í té,
óyggjandi upplýsingar eftir
fremsta megni. Treystu
þeim síðan til að vega þær
og meta og draga af þeim
eigin ályktanir.
6. Þú skalt ekki láta börn þín
nota þig eða misnota, vegna
þess að það skaðar ÞAU.
7. Þú skalt fela börnum þinum
ábyrgð hvenær sem færi
gefst svo að sjálfstæði verði
þeim ekki um megn.
8. Gerðu börnum þínum ljóst
að þú elskir þau án skilyrða
hvort sem ákvarðanir þeirra
falla þér í geð eða ekki.
9. Gefðu börnum þínum ráð-
rúm til að gera sér grein
fyrir afleiðingum gjörða
sinna, í stað þess að halda
yfir þeim hlífiskildi eins og
þú hefur tilhneigingu til.
10. Þú skalt gleðjast innilega
þegar forsjár þinnar er ekki
lengur þörf -því þá hefur þú
haft árangur sem erfiði.
Fjarnám
meö áherslu á starfstengt nám
Kvöldskóli
wmmmm
Byggingagreinar
Efnisfræði, framkvæmd og vinnuvernd
og grunnteikning.
Tækniteiknun
Húsateikning, raflagnateikning, innréttingateikning,
vélateikning, AutoCad og grunnteikning.
Tölvubraut
Forritun, gagnasafnsfræði, vefsíðugerð, vefforritun,
netstýrikerfi og vélbúnaður.
Upplýsinga- og fjölmiðlabraut
Allar greinar í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlabrautar;
eins og myndbygging og formfræði, myndgreining,
týpógrafía og grafísk hönnun, myndvinnsla og marg-
miðlun, hljóðtækni, Ijós- og litafræði, inngangur að
fjölmiðlun.
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám.
Rafiðnanám
Grunnnám rafiðna 2. önn. Rafvirkjun 3.-7. önn.
Listnám
Ýmsir áfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar.
Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun.
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina.
Undirbúningur fyrir nám í grafískri miðlun, vefsmíð,
Ijósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi..
Tækniteiknun
Fjölbreyttir áfangar í AutoCad.
Meistaraskóli
Allar stjórnunar- og rekstrargreinar.
Meistaraskóli
Allar rekstrar- og stjórnunargreinar.
Faggreinar byggingagreina.
Almennt nám
Enska 212, ENS303, grunnteikning, STÆ202,
algebra og föll, STÆ 303, stærðfræði, UTN103,
notkun upplýsingatækni og tölva í námi.
Almennt nám
Bókfærsla, danska, eðlis- og efnafræði, enska,
félagsfræði, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning,
spænska, stærðfræði, tölvugreinar, þýska, notkun
upplýsingatækni og tölva.
Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 15. jan. 2006
á www.ir.is.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um nœga þáttöku.
Allar frekari upplýsingar í síma 522 6500 eða á vefskólans www.ir.is.
Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 4. jan. 2006
á www. ir. is.
Innritun með aðstoð verður í matsal skólans, þri. 3. og mið. 4. jan.,
frá kl. 16-19. (Hœgt er að greiða með peningum, debet- eða kreditkorti).
Kennsla hefst mán. 9. janúar 2006.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þátttöku.
IÐNSKÓLINN f REYKJAVÍK