blaðið - 04.01.2006, Qupperneq 18
18 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaftid
Fasteignakaupandi sér um hagsmuni kaupandans
Kaup húsnœðis ex stœrsta fjáx-
hagsskuldbinding einstaklings
vera fyrirbyggjandi enda séu hags-
munir kaupandans tryggðir. „Eg
held að allir geti nýtt sér þessa þjón-
ustu því eins og fyrirkomulagið er í
dag þá er það fasteignasalinn sem
gætir hagsmuna beggja aðila. Þetta
er í rauninni viðbót við þessa lög-
bundnu hagsmunagæslu fasteigna-
salans. I flestum löndum er alltaf
óháður aðili sem mætir með kaup-
andanum í kaupsamninginn,“ segir
Guðfinna og bætir við að auðvitað sé
fasteignasalinn að reyna að fá sem
hæst verð fyrir eignina. „Þess þarf
hann að gæta fyrir seljandann en
sé og allt þetta. Við erum því viðbót
sem getur aðstoðað kaupandann,
sagt honum til og passað upp á að
öll gögn séu í lagi.“
Nauðsynlegt að þekkja
réttarstöðu sína
Guðfinna segir að þeir fasteignasalar
sem hún hefur kynnt þjónustuna
fyrir séu allir mjög jákvæðir og telja
að það sé þörf fyrir þessa þjónustu.
Enda segir hún að kaup íbúðarhús-
næðis sé stærsta fjárhagsskuldbind-
ing manneskjunnar á ævinni. „Þess
vegna skiptir máli að einstaklingar
99..................................
Þess vegna skiptir máli að einstaklingar
viti nákvæmlega hvaða skuldbind-
ingu þeir gera og hver réttarstaðan
er efeitthvað skyldi koma upp á.
Eftir jól og áramót eru margir
sem hugsa sér til hreyfings og
setja íbúðir sínar á sölu. Þetta
tímabil er jafnan annasamt hjá
fasteignasölum enda vilja flestir
vera komnir í nýju íbúðina fyrir
eða um sumarið. Það er ekkert
launungarmál að kaupsamningar,
afsal, sölutilboð og annað sem
tengist húsakaupum getur verið
illskiljanlegt og flókið. Fasteigna-
kaupandi er nýtt fyrirtæki sem
sér um hagsmuni kaupandans
og verndar hag hans í þessum
frumskógi.
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir
lögmaður er framkvæmdastjóri
Fasteignakaupanda og hún segir
fyrirtækið bjóða upp á nýja þjón-
ustu fyrir kaupendur fasteigna sem
leiðir þá í gegnum kaupferlið. „Við
pössum upp á hagsmuni kaupand-
ans, mætum með honum í kaup-
samning og afsal og hann getur
leitað til okkar áður en hann gerir
tilboð í eignina. Við förum yfir öll
gögn sem varða eignina, hjálpum
honum að spyrja réttu spurning-
anna og upplýsum hann um hver
hans réttarstaða er við kaupin.“
Óháður aðili með kaupandanum
Guðfinna segir þjónustuna í raun
fasteignasalinn er náttúrlega í leið-
inni að gæta þess að það sé passað
upp á kaupandann. En að sjálfsögðu
getur fasteignasalinn aldrei farið
í einhverja kennslu með kaupand-
anum hvað hann þarf sérstaklega að
passa upp á, hver réttarstaða hans
viti nákvæmlega hvaða skuldbind-
ingu þeir gera og hver réttarstaðan
er ef eitthvað skyTdi koma upp á. Það
kemur fyrir að fólk lendir í vanda-
málum sem væri hægt að koma í
veg fyrir. Það sem getur til dæmis
komið fyrir er að seljandinn á að
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir:„Það
kemur fyrir að fólk lendi í vandamálum
sem væri hægt að koma í veg fyrir."
klára einhver ákveðin atriði eftir
kaupsamning. Ef það myndi ekki
ganga eftir þá myndum við setja inn
í kaupsamninginn hvað væri hægt
að gera til að ljúka málinu þannig
að það tæki ekki einhverja mánuði
aukalega að leysa ágreininginn."
svanhvit@bladid.net
Fyrstu áhrifskipta máli í sölu húsa
Losa sig við
gœludýr og vonda lykt
Hver kannast ekki við að skoða heimili sem virkar fráhrindandi þegar í byrjun.
Eignin sjálf þarf ekkert endilega að vera hræðilega útlítandi heldur getur þetta
verið eitthvað smáatriði sem fælir fólk frá. Oftar en ekki er þetta eitthvað sem hægt
er að laga auðveldlega. Hér eru nokkrir punktar sem skulu hafðir í huga við sölu
íbúðar
Kaupandi myndar sér skoðun á fyrstu sekúndunni og því er eins gott að sú skoðun sé
jákvæð.
Oj, vond lykt
Vond lykt inni á heimili getur fælt
margan kaupandann frá. Það er
mjög fráhrindandi þegar heimili
angar af sígarettulykt eða jafnvel
gæludýralykt. Fáðu einhvern til að
lykta heima hjá þér og fáðu hrein-
skilnislegt álit. Ef það er vond lykt
þá skaltu útrýma henni með hreinu
og fersku andrúmslofti, en ekki fylla
loftið af ilmvatni eða lyktareyðandi
efnum. Loftaðu út í þó nokkurn
tíma áður en íbúðin er skoðuð og
þrífðu vel.
Háværir hundar
Dýr geta haft mjög neikvæð áhrif
á verðandi kaupendur. Sumir eru
hræddir við hunda og ketti, sérstak-
lega er slæmt ef hundurinn er hávær
og flaðrar upp um alla gesti. Hafðu
því hemil á þeim dýrum sem búa á
heimilinu og komdu þeim jafnvel að
heiman í stuttan tíma.
Óhrein baðherbergi
Það má eiginlega segja að baðher-
bergið sé hjarta heimilisins, að
minnsta kosti er það eitthvað sem
verður að vera í topp standi þegar
á að selja íbúð. Fyrst og fremst
verður baðherbergið að vera hreint
og snyrtilegt. Fáðu þér nýtt sturtu-
hengi, ný handklæði í stíl og settu
svo fallegt blóm í gluggann. Smá-
atriðin skipta máli.
Kveiktu Ijósin
Dimm herbergi hafa mjög svo
fælandi áhrif enda vilja kaupendur
sjá íbúðina nákvæmlega. Fjarlægðu
dimm og þung gluggatjöíd, sjáðu
til þess að það séu perur í öllum
stæðum, málið herbergi í ljósum
litum og hafið gluggana hreina.
Pöddur
Losaðu þig við alla óvelkomna gesti.
Enginn vill búa í ibúð sem pöddur
halda stanslaust partí í.
Ást við fyrstu sýn?
Fyrsta áhrifin eru alltaf mikilvæg-
ust. Vertu viss um að það fyrsta sem
kaupandinn sér, útidyrahurðin, garð-
urinn, inngangurinn, sé snyrtilegt
og fallegt. Kaupandinn myndar sér
skoðun á fyrstu sekúndunni og því
er eins gott að sú skoðun sé jákvæð.
Skítug gólf
Jafnvel þótt gólfefnið í íbúðinni sé
gert úr gulli þá lítur það alltaf illa út
ef það er skítugt eða illa út lítandi.
Hitt er annað mál að ljótt parket eða
annað Ijótt gólfefni má gera töluvert
fallegra með þvi einu að bóna það og
þrífa vel. Kaupendur virðast láta sig
varða hversu vel gólfið lítur út enda
getur ljótt gólfefni verið mjög frá-
hrindandi við fyrstu sýn.
Troðið hús
Sumir vilja hafa mikið af hlutum í
kringum sig, bæði húsgögn sem og
alls kyns dót. Það er gott og blessað
en til að auðvelda sölu er best að
lofta aðeins um íbúðina. Fáið að
geyma eitthvað af húsgögnunum
ef stofan eða svefnherbergið er of
troðið. Eins er gott að pakka niður
eitthvað af puntinu. Kaupandinn
þarf að geta ímyndað sér sitt dót
inni i íbúðinni og það er ekki hægt
ef hún er troðfull af alls kyns drasli.
Auk þess lítur plássið út fyrir að vera
meira ef dótið er minna og íbúðin
lítur öll betur út.
Dautt hús
Þrátt fyrir að hægt sé að losa aðeins
um drasl og gera íbúðina söluvænni
þá má alls ekki gjörsneyða hana öllu
lífi. Það verður að sjást að einhver
býr þarna, enda er það forsenda þess
að einhver vilji búa þarna. Hafið því
endilega heimilislegt og huggulegt.
Til að mynda lífga blóm, persónu-
legar myndir, litir og kerti alltaf
upp á ibúðir og gera þær einstaklega
notalegar.
Kertavax á húsgögnum eða teppi get-
ur verið hvimleitt vandamál. Vanda-
mál sem hægt er að vinna bug á.
Góð
heimilisráð
Svitablettir
Það myndast ekki svitablettir á
boli eða skyrtur ef svitalyktar-
eyðirinn fær tækifæri til að
þorna áður en farið er í fótin.
Áður en flík er þvegin þá er best
að nudda svæðið undir hönd-
unum upp úr óblönduðum
þvottalegi. Ef það hefur þegar
myndast svitablettur í flíkþá
skal nudda hann upp úr ediki.
Flíkur þar sem svitablettir eiga
það til að myndast skal þvo
á hæsta mögulega hita sem
flíkin þolir í þriðja hvert skipti.
Illa lyktandi uppþvottvél
Ef það er alltaf vond lykt í
uppþvottavélinni þá skal fyrst
athuga hvort sían sé nokkuð
full eða hvort matarafgangar
leynist einhvers staðar í vélinni.
Hellið slatta af ediki í botn
vélarinnar, látið standa í klukku-
stund og setjið vélina í gang.
Varalitur
Venjulega er hægt að fjarlægja
varalit úr flík með alkóhóli.
Náðu í tvö handklæði og
leggðu annað þeirra niður.
Settu flíkina á handklæðið og
láttu varalitablettinn vísa niður.
Dýfðu hinu handklæðinu í
alkóhól og ýttu varlega við
blettinum aftan frá. Endurtakið
þar til bletturinn er farinn.
Kertavax
Ef kertavax festist í teppi þá
er besta leiðin að fylla pönnu
af ísmolum. Settu pönnuna
beint ofan á vaxið þar til það
er frosið fast. Brjóttu síðan
vaxið með hamri og fjarlægðu
það. Ef einhver blettur situr
eftir þá má fjarlægja hann með
sápulegi. Ef kertavax festist á
einhverju öðru, svo sem kerta-
stjaka, skálum eða diskum, má
fjárlægja það með sjóðandi
heitu vatni. Settu hlutinn undir
rennandi, heitt vatn og von
bráðar rennur vaxið burt.
Djúpsteikingarlykt
Til að losna við djúpsteik-
ingarlykt má sjóða einn
bolla af vatni ásamt 2 tsk af
ediki í nokkrar mínútur.