blaðið - 04.01.2006, Side 23
blaðió MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006
var hérna fólk sem var efnað og hafði
það mjög gott en það var ekki svona
yfirgnæfandi eins og það er núna.
Það er greinilega mikið af mjög efn-
uðu fólki á Islandi í dag. Þetta er í
raun orðið eins og í stórborg þar
sem munurinn á milli hinna fátæku
og ríku er mjög greinilegur. En samt
á svona litlu svæði.“
Sástu þessar breytingar eiga sér stað
í heimsóknum þínum til Islands?
„Það hefur mikið breyst á fimm árum.
Eins og vegakerfið. Það virðist hafa
breyst yfir nótt. Ég hef ekki hug-
mynd um hvar ég er stödd stundum
því það eru komnir nýir vegir og
aðrir farnir. Ég reyni til dæmis að
muna hvert þessi vegur, eða hinn,
lá og get bara ekki kallað það fram.
Þann tíma sem ég var hérna var vart
nema malarvegur héðan úr Reykja-
vík til Selfoss. Hvernig varð þetta
svona á skömmum tíma?
Þessar breytingar er líka að finna
í íslendingum sjálfum. í viðmóti. Ég
veit ekki hvernig ég á að lýsa því. Það
er eins og Islendingar séu alltaf að
selja sig. Það er mikið meira verið að
selja ísland og allt sem íslenskt er.
Þegar ég hugsa um það þá er
kannski helsta skýringin á þessum
hraða íslendinga sú að þeir séu að
reyna að vinna upp forskotið sem
aðrar þjóðir höfðu. Kannski þurfa
Islendingar að gera allt í einu vegna
þess að það tók þá svo langan tíma
að vinna sig upp. Það var svo lengi
rólegheitaandrúmsloft hérna á
íslandi en núna er eins og allir séu
að reyna að selja inn á landið, núna
þegar áhugi útlendinga á landinu er
aukinn. Það er eins og menn haldi
að það borgi sig að fá eins mikinn
pening og hægt er á meðan áhuginn
á landinu varir. Þetta minnir svo-
lítið á hamstur í búri sem hleypur
stanslaust í hlaupahjóli án þess að
hugsa neitt. Þetta var ekki svona hér
áður. Auðvitað hefur alltaf verið ein-
hver samanburður á milli fólks en
það var ekki svona nauðsynlegt að
taka þátt í kapphlaupinu eins og það
er í dag. Fólki hafði val um það hér
áður fyrr. Þetta er ein af ástæðum
þess að ég gæti ekki búið hérna. Ég
gæti ekki tekið þátt í þessu.“
Finnst þér andi hippaáranna alveg
horfinn?
„Heimurinn hefur breyst svo mikið.
Það er allt á hundraðinu í dag. Það
eru svo miklu meiri hraði á fólki og
það snýst allt miklu meira um pen-
inga. Það gerist allt út af peningum í
dag. Þetta var allt öðru vísi hér áður
fyrr. Þá var allt annar þankagangur
og fólk var mun afslappaðra. Fólk
þyrfti að læra að njóta þess betur
sem það hefur fremur en að vilja
alltaf meira. Af hverju þarf fólk
svona mikið? Ég meina, ef maður
missir öll hin efnislegu gæði, hvað á
maður annað eftir en sjálfan sig? Og
ef manni líkar ekki við sjálfan sig
og finnur ekki hamingjuna í hinu
smáa mun ríkidæmið þá einhverju
breyta?" ■
Shady segist undrandi á hrööum breytingum á islensku samfélagi.Til aö mynda veit hún
varla hvar hún er stödd f vegakerfi Reykjavíkur og segist hvergi annars staðar hafa séö
viðlika umferðateppur nema þá helst í stórborgum eins og L. A.
Stæltar stelpur mán mid og fös KL. 1
MÖMMUMORGNAR ÞRI OG FIM KL. 9.45
Stígðu skrefid mán mið og fös kl.
Stígdu skrefið mán mið OG FÖS KL. 19
í FORM EFTIR 50 ÞRI OG FIM KL. 17.25
ÁFRÓ1 ÞRIOGFIM KL. 19.30
AFRÓ 2 MID OG FÖS KL. 18.30
MEÐGÖNGUJÓGA MÁN OG MIÐ KL. 20.4<
Töffarar
ÞRI OG FIM 6.30 i
TÖFFARAR í TAKT MÁN MIQ
Stæltar stelpur mán MIÐ
Stæltar stelpur mán MIÐ
Stæltar stelpur mán mið
NYTT AR,
BETRI KROPPUR!
MAHSKEIÐ
hefjast 9. janúar nk
Skránirtg er hafin í síma 561 5100 og með tölvupósti simi@isf.is
BAÐHÚSIÐ VoA
BETRUNARHUSIÐ
ÞREKHUSIÐ
SPORTHUSIÐ
AFLHUSIÐ
sjá heimilisföng allrct stöðva isf á www.isf.is
VERÐ:
SIMI 561 5100 WWW.ISF.1S