blaðið - 04.01.2006, Page 24
24 I TÆKI OG TÓL
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöiö
Tœki og tól, böl
eða blessun?
Hátœknirannsóknir
á svefnerfiðleikum
Það líður sennilega sjaldan sá
klukkutími sem við notum ekki
tæki eða tól af einhverju tagi. Það
getur meira að segja reynst erfitt að
vakna án tækja því vekjaraklukkur
eru jú auðvitað tæki. Að opna ísskáp-
inn eða taka upp símann er svo stór
hluti af okkar daglega lífi að um leið
og þessi tæki bila verður uppi fótur
og fit og allt lagt í sölurnar til að laga
þau sem fyrst. Fólk er orðið svo háð
tækninni að það getur verið erfitt
að vera án hennar. Sum tæki eru svo
fljót að breytast að fólk þarf að hafa
sig allt við til að fylgjast með. Allt
í einu þarf að skipta gamla afrugl-
aranum út fyrir nýjan stafrænan
myndlykil til að geta notið alls þess
sem er í boði. Vídeótækið er um það
bil að úreldast og DVD spilarar hafa
tekið við. Sjónvarpið er líka að horfa
fram á nýja kynslóð veggsjónvarpa,
plasmaskjái og hvað þetta heitir allt
saman. Stafrænar myndavélar eru
líka orðnar sjálfsagður hlutur af til-
verunni og þeir sem ekki eru með
myndir af sér og sínum nánustu
á vefnum eru varla gjaldgengir í
okkar ágæta tækjasamfélagi.
í flestum tilfellum eru ný tæki
til bóta og auðvelda okkur lífið en
fyrir þá sem eiga erfitt með að læra
á ný tæki getur þetta verið til trafala.
Eldra fólk á oft erfitt með að læra á
ný tæki og svo er líka til fólk sem
hefur lítinn áhuga á stafrænum
myndlyklum og DVD spilurum
sem þarf að tengja hárrétt saman til
að fá herlegheitin til að virka.
En tæki eru ekki aðeins bundin
við heimilið. Þeir sem eiga við van-
heilsu að stríða njóta einnig góðs af
nýjum tækjum og með hátækni á
heilbrigðissviði verður líka auðveld-
ara að greina ýmskonar kvilla og
koma með lausnir í framhaldinu.
Frá örófi aldra hafa tæki og tól
endurspeglað mannlega hæfni
hvers tíma og með því að skoða
gömul verkfæri er hægt að segja til
um á hvaða stigi þróunar fólk var á
þeim tíma.
Tæki eru afsprengi hugvits nú
sem áður og þróun tækja heldur
áfram svo lengi sem mennirnir eru
hugsandi verur.
Saga krullu-
járnanna á íslandi
í gegnum tíðina hafa konur lagt
ýmislegt á sig til að líta vel út. Frá
örófi alda hefur ákveðin tíska
verið í hárgreiðslu og misjafnt
hvort hárið átti að vera stutt eða
sítt, liðað eða slétt.
Um 1920 styttist hártíska kvenna
og þá kom fram þörf fyrir að liða
hárið. Upphaflega var hárið mótað
með geli og síðan voru fingur og
burstar notaðir til að ná fram liðum
í hár.
„Fyrstu krullujárnin sem komu
til íslands voru hituð á eldavél eða
á ofni og eru frá því í kringum 1930,“
segir Gerður Róbertsdóttir deildar-
stjóri varðveislu á Árbæjarsafni.
,Þegar járnin voru orðin snarpheit
voru þau sett í hárið og það krullað.
Járnið var hægt að klemma saman
en það var allt úr járni sem þýðir að
handföng þess hafa líka hitnað og
því hefur verið óþægilegt að vinna
með það. Á millistríðsárunum
voru einnig notaðar einhvers konar
krulluklemmur til að fá bylgur í
hárið og reyndu konur jafnvel að
sofa með þær.“ Gerður segir að
fyrstu krullujárnin hafa líklega
verið flutt inn frá Bretlandi eða Dan-
mörku. „Fyrsta Hárgreiðslustofan
sem stofnuð var á íslandi var líklega
stofnuð um 1930 og þar voru notuð
krullujárn og hárþurrkur, sem voru
nýjustu tæki þeirra tíma.“
Gerður segir að upp úr 1950 hafi
fyrstu rafmagnskrullujárnin komið
til íslands og urðu þá mjög vinsæl.
,Til að fá liði í hárið er einnig hægt
að nota rúllur og karmenrúllur
urðu mjög vinsælar upp úr 1970.
Þær voru þægilegri en gömlu rúll-
urnar og það tók styttri tíma að fá
liði í hárið með þeim heldur en með
gömlu rúllunum. Karmenrúllurnar
voru á standi sem var stungið í
samband þannig að rúllurnar voru
heitar þegar þær voru settar í hárið“,
segir Gerður.
Núna er flóran í krullujárnum
mikil og bæði hægt að fá járn til að
slétta og krulla hárið. Einnig má
finna rúllur af öllum stærðum og
eerðum að ógleymdu permanentinu.
Á tímabili voru svokölluð vöfflujárn
vinsæl. Svo getur hver og einn valið
það tæki sem hentar hárinu best.
hugrun@bladid.net
Hvað mælir svefnrannsóknartæki?
Haraldur segir að tækið mæli heila-
línurit, augnrit, hjartalínurit, vöðva-
rit og einnig er hægt að segja til um
mismunandi svefnstig t.d. draum-
svefn og djúpsvefn.
Um 20% stríða einhvern-
tíma við svefnerfiðleika
„Margir hafa áhuga á að skoða
öndun í svefni en kæfisvefn er
algengur svefnkvilli. öndunarhlé
getur truflað svefninn en ef nokkur
tíu sekúndna hlé verða á öndun á
klukkutíma er það nægjanlegt til að
greinast með kæfisvefn. Talið er að
um 4% karla og 2% kvenna eigi við
kæfisvefn að stríða." Haraldur segir
að með svefnrannsóknum sé hægt
að skoða hvernig öndun er háttað
í svefni. Tækið sem mælir öndun-
arþætti kallast Embletta, og er frá
árinu 2000 og hefur verið selt víða
um heim. „Önnur orsök svefnerfið-
leika eru fótakippir sem verða svo
öflugir að fólk vaknar upp.“
Talið er að um 20% fólks eigi við
svefnerfiðleika að stríða einhvern-
tíma á ævinni og getur svefnleysi
verið hættulegt þegar til lengri
tima er litið. Annað algengt vanda-
r
/
hrotur.
Biðlisti í svefnrannsóknir misjafn
Þeir staðir sem bjóða upp á svefn-
mælingar hér á landi eru geðdeild og
lungnadeild Landspitalans, Reykja-
lundur, Læknasetrið i Mjódd og
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Haraldur segir að vanalega sé ein-
hver biðlisti í svefnrannsóknir en
hann sé þó mislangur. „Algengasta
svefnvandamálið eru erfiðleikar
með að sofna eða að fólk vaknar um
miðjar nætur. Ef fólk á erfitt með að
sofna er lítið sem svefnmæling getur
gert en ef fólk er að vakna upp um
miðjar nætur má e.t.v. rekja það til
ákveðins svefnmynsturs sem svefn-
rannsóknir geta sýnt fram á“, segir
Haraldur.
mál í svefni eru hrotur en þá er
hægt að setja fólk í blásturstæki en
oft er byrjað á því að láta fólk hafa
góma sem heldur öndunarveginum
opnum og á að koma í veg fyrir
hugrun@bladid.net
Það nýjastafyrir tœkjafíklana
Hœgt að horfa á myndbönd í mp3 spilurum
Skráðu bílinn á
www.bilamarkadurinn.is
ðm/rttf
V SmtUiumtt 46 £ • Xá*
Það nýjasta á markaðnum erlendis
er mp3 spilari sem hægt er að horfa
á myndbönd í. Tækið er ákveðið mót-
spil við nýja iPodinn frá Apple þar
sem hægt er að horfa á myndbönd.
Þessi nýi mp3 spilari er ekki kom-
inn til landsins en svar Sony við vax-
andi eftirspurn eftir tæki sem getur
spilað tónlist, sýnt ljósmyndir og
myndbönd er PSP eða Playstation
Portable.
„PSP byggir á hinni geysivinsælu
Playstationtölvu en nú er hún orðin
að lófatölvu og fólk getur spilað leiki,
horft á kvikmyndir eða spilað tónlist
hvar og hvenær sem er“, segir Krist-
inn Theódórsson verslunarstjóri í
Sony center.
„PSP er með 4,3 tommu breið-
tjaldsskjá sem er ótrúlega skarpur
og flottur. PSP tekur bæði minnis-
kubba Sony Memorystick Duo og
litla geisladiska sem kallast UMD.
Fólk getur því sett eigið efni á allt að
2GB minniskubba, en það geta verið
um 6 klst af kvikmyndum, fjöld-
inn allur af ljósmyndum eða mp3
tónlistarskrám.“
Kristinn segir að í Sony center
megi líka finna mikið úval af mp3
spilurum með 1GB minni sem hafi
verið mjög vinsælir. „Þeir mp3 spil-
arar sem við erum með eru með inn-
byggða lithium rafhlöðu sem ekki
þarf að tengja við rafmagn heldur
er hægt að hlaða með þvi að tengja
beint við tölvu. Eftir aðeins 3 mín-
útna hleðslu er hægt að spila í allt að
þrjá tíma.“
hugrun@bladid.net
Tœki sem greina mismunandi tegundir svefnerfiðleika
Hvernig sefur þú? Fjölmargir
eiga við svefnerfiðleika að stríða í
styttri eða lengri tíma. Algengsta
svefnvandamálið eru erfiðleikar
með að falla í svefn eða að fólk
vaknar upp um miðjar nætur
og nær ekki að festa svefn aftur.
Svefnkvillar fylla um 70 flokka. Á
íslandi eru stundaðar svefnrann-
sóknir og framleidd tæki til svefn-
rannsókna. Þannig getur fólk
fengið úr því skorið hvers konar
svefnkvillar hrjáir það og fengið
viðeigandi meðhöndlun.
„Við framleiðum tæki og hug-
búnað til að halda utan um rekstur
svefnrannsókna", segir Haraldur
Þorsteinsson sálfræðingur og svefn-
tæknifræðingur hjá Flögu Medcare.
„Fysta svefnrannsóknartækið sem
Flaga hannaði kallaðist Embla og var
notað til mælinga á svefni bæði inn
á spítölum og i heimahúsum. Svefn-
rannsóknartækið sýndi stafrænar
upptökur á svefni og var það smátt
í sniðum. Síðan hélt þróunin áfram
og arftaki fyrsta tækisins var 16 rása
tæki sem gat tekið upp á 200 riðum
fyrir hverja rás. Með þessu var hægt
að greina svefn og svefnerfiðleika
nánar en áður var unnt. Þegar búið
er að rannsaka svefninn þarf að
vinna gögnin og skrá gæði svefnsins,
öndun og síðan birtast skýrslur sem
gefa ákveðna niðurstöðu.