blaðið - 04.01.2006, Page 26
26 I FYRIR KONUR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöiö
Leiðtoga og
samskiptaþjálíun tyrír konur
- Dale Carnegie þjálfun á íslandi
Dale Carnegie þjálfunin hefur notið
mikilla vinsælda um áratuga skeið
og vinsældir hennar hafa farið stig-
vaxandi undanfarin ár á Islandi.
Auk þess að vera með almenn nám-
skeið býður Dale Carnegie á íslandi
sérsniðin leiðtoga- og samskipta-
námskeið fyrir konur. Markmið
námskeiðsins eru að bæta sjálfs-
traustið, samskiptahæfileika, tján-
ingu og forystuhæfileika auk þess
að leiðbeina konum um hvernig má
hafa stjórn á áhyggjum og streitu, en
þessir þættir eru i raun drifkraftar
velgengni hvers konar og því ekki úr
vegi að efla þá. Einnig er lögð mikil
áhersla á markmiðasetningu.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir er
einn þjálfara námskeiðsins, en hún
segir þörf á að bjóða sérstök nám-
skeið fyrir konur. „Mörgum konum
finnst þær búa í karlaveröld og
fyrir þær getur verið betra að vera
í sérstökum kvennahópum á nám-
skeiðinu en ekki í almennum hóp. I
slíkum hópum verða viðfangsefnin
óhjákvæmilega þau sem konur tak-
ast á við í lífinu og tengdari þeirra
reynsluheimi. Allarkonur, jafnt sem
karlar, kannast eflaust við að finna
fyrir óöryggi við nýjar eða framandi
aðstæður. Þetta er allt saman hægt
að bæta og fólk getur þjálfað með sér
hæfileikana í að takast á við slíkar
aðstæður.“
Allir geta bætt sig
Aðspurð segir Unnur markmið
þeirra sem sækja námskeiðin mis-
jöfn, enda allskyns verkefni og
vandamál sem konur takast á við
dag frá degi. „Sumar vilja bæta
viðhorf sitt til lífsins, aðrar vilja ná
jafnvægi milli fjölskyldu og vinnu
og enn aðrar koma til þess að bæta
samskiptahæfileika sína. Þetta eru
auð vitað ekki bara sértæk vandamál
kvenna en beinast að þeim áskor-
unum sem konur mæta daglega í
lífinu. Námskeiðin mótast mikið af
hópnum sem saman kemur hverju
sinni og af þeim sökum hentar
mörgum konum að vera í hóp með
konum eingöngu."
Eðli málsins samkvæmt eru mark-
mið kvenna misjöfn og allar hafa
þær eitthvað fram að færa, enda
eru konur á ólíkum stöðum í lífinu
hverju sinni.
„Til okkar kemur mjög breiður
hópur kvenna og í raun allir þjóð-
félagshópar. Þarna eru heimavinn-
andi húsmæður og eins þær sem
standa framarlega í viðskiptalífinu.
99..........................
Þeir einstaklingar sem
fara í gegnum nám-
skeiðin uppgötva margt
nýtt um eigin getu og
auka eigið sjálfstraust.
Það er ómetanlegt.
Þegar til kastanna kemur erum við
allar að takast á við sömu, eða alla
vega svipuð, viðfangsefni í lífinu,
sama hver starfstitilinn er”, segir
Unnur og bætir við að þjálfunin hafi
reynst konum afar vel og að gaman
sé að fylgjast með árangri þeirra.
„Auðvitað er það líka misjafnt
hvernig konur standa að vigi hvað
þessi atriði varðar. Það er auðvitað
eitthvað sem á eins við um konur
og karla - þetta er mismunandi
eftir einstaklingum og sjálfstraust
er mismikið hjá fólki. Engu að síður
geta allir bætt sig á einhverjum
sviðum. Þeir einstaklingar sem fara
í gegnum námskeiðin uppgötva
margt nýtt um eigin getu og auka
eigið sjálfstraust. Það er ómetan-
legt,“ segir hún að lokum.
halldora@vbl.is
Fersk og tín
á ballinu
- frábær nýjung frá Chanel
Flestar konur kannast
við það að förðunin
fari eilítið á mis
þegar líða tekur
á kvöldið. Þetta
á sérstaklega
við þegar
h a 1 d i ð
er á böll
eða aðrar
skemmt-
anir um
helgar og förð-
unin er íburðar-
meiri, enda ófáar sem
auka á farðann við sérstök
tilefni. Oft vill svo verða að farðinn
verður glansandi og gjarnan brussu-
legur eftir nokkrar klukkustundir
og eru þá góð ráð dýr. Ekki er fallegt
að bæta endalaust við meikið eða
púðrið og því getur verið erfitt að
halda andlitinu sem skildi.
Skemmtileg
nýjung hefur
litið dagsins ljós frá
Chanel, en þeir selja
nú sérstaka vöru
sem spornað
getur við
óþarfa
glans
og leið-
indum.
Þetta eru þar
til gerð blöð sem
taka af glans og óvelkomin
svita í andliti þegar þess þarf
með. Blöðunum er dempað létt yfir
andlitið og húðin verður falleg á ný.
Ásamt blöðunum fylgir pakkning-
unni spegill. Þess má geta að varan
er afar hentug í veskið, enda fer Htið
fyrir henni, hún er litlu stærri en
lyklakippa.
Kuldamaski
fyrir konurnar
- bólguna burt áfáeinum mínútum
Allar konur kannast við bólgur og
þrota í augum, bæði á morgnana og
eftir erfiðan vinnudag. Þetta á ekki
einvörðungu við eldri konur heldur
einnig þær yngri sem eiga það til að
bólgna í augum eftir svefninn, nú
eða eftir allt saltið í jólamatnum sem
óneitanlega setur svip sinn á margar
konur.
Þessi bólgueyðandi kuldamaski er
tilvalinn fyrir þær konur sem vilja
losna við bólgur um og í kringum
augun en hann hefur einnig áhrif á
allt andlitið þar sem hann er mjög
stór og þekur vel. Hann er settur
í kæliskápinn í um 15 mínútur og
síðan settur á augun, en á meðan
er um að gera að leggjast upp í sófa
og slaka á í nokkra stund. Þá má
auðvitað geyma hann í ísskápnum
allan sólarhringinn og grípa til hans
þegar þess gerist þörf. Einnig vinnur
maskinn vel á hausverk og öðrum
streitueinkennum sem gera ósjaldan
vart við sig í amstri dagsins.
Skemmtileg lausn á góðu verði, en
maskinn kostar einungis 699 krónur
og fæst í Spa-deild Debenhams í
Smáralind.