blaðið - 04.01.2006, Side 28
28 I FYRIR KONUR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöið
Fimmtán hlutir sem konur elska og eru þakklátar fyrir
Vertu þakklát fyrir
attt það góða i heimi hér
Þegar þú ert svekkt og finnst allt og allir vera á móti þér, prófaöu þá aö rifja upp hluti og aðstæður sem eru þér kærar.
Það er svo margt gott til í heiminum og margt sem við getum þó þakkað fyrir. Að klappa kettlingi, horfa á börn leika
sér, sitja uppi í sófa með tebolla og teppi. Oftast eru það einföldu hlutirnir í lífinu sem gefa okkur mest. Ef þér dettur
ekkert í hug sjálfri, þá er hérna listi sem telur upp hluti sem langflestar konur elska, hvort sem þeim líkar það betur
eða verr. Til dæmis er sambandið við súkkulaði og kökur oft á tíðum ástar og haturssamband, en hvað getum við sagt?
Súkkulaði
Súkkulaði er eitthvað sem konur
elska meira og meira því eldri sem
þær verða. Með aldrinum þróast
súkkulaðiáhuginn oft yfir á æðra
stig þar sem við verðum sérfróðar
um uppruna, tegundir, áferð,
blöndur og bragð.
Kökur
Það er gaman að baka þær, skemmti-
legt að bjóða upp á þær og alveg dá-
samlegt að borða þær.
Bækur
Bækur fóru með okkur í undraheima
hugarflugsins þegar við vorum litlar
stelpur. f dag hjálpa þær okkur að
gleyma stað og stund, og það sem er
eflaust mikilvægast - slaka á.
Góðar bíómyndir
Hvort sem þú ferð með maka, kær-
asta, vinkonu eða ein í bíó þá er alltaf
gaman að maula popp í myrkrinu.
Blóm
Það er yndislegt að fá þau, gaman
að gefa þau og gott að hafa þau í
kringum sig hvort sem þau eru
afskorin eða í pottum.
Vetrarsólin
í þá örfáu tíma sem hún brýst fram
og yljar okkur í skammdeginu.
Þegar hún glitrar á nýfallinni snjó-
breiðu. Þegar hún tindrar á blautum
rúðum og þegar hún bræðir svellið á
útitröppunum.
Hiti
Frá teppi, hitapoka eða ást...
Tónlist
Hvaða tónlist sem er. Best er að
vera ein, eða með gamalli vinkonu
og syngja með. Svo ekki sé minnst
á þegar verið er að taka til, hlaupa
á brettinu, keyra í vinnuna, heim úr
vinnunni og svo framvegis. Thank
you for the music sungu Abba og
það gerum við líka.
Hátíðir, veislur, matarboð og partí
Að halda góðar veislur getur nánast
flokkast undir listgrein. Borðskreyt-
ingar, hverjum þú býður, hvað er í
matinn... allt þetta krefst natni og
alúðar. Ein besta mynd sem gerð
hefur verið um dásamlegt matarboð
er Gestaboð Babette. Við erum allar
með eina Babette inn við beinið.
Vinátta, vinkonur og vinskapurinn
Það er fátt skemmtilegra en að
rækta vinskap. En vittu það þarf að
rækta hann. Að segja “Við verðum
að hafa samband,” en hafa svo aldrei
samband mun enda með því að sam-
bandið rofnar. Ef þú vilt halda í vini
þá verðið þið að sameinast um að
rækta þetta litla beð.
Litirnir í allri sinni dýrð
Prófaðu í heilan dag að taka bara
eftir bláu og gulu. Eða rauðu og fjólu-
bláu. Hvítu og bleiku.... Þetta getur
hresst ansi mikið upp á grámyglu-
legan hversdagsleikann.
Lykt
Ekki spara spari ilmvatnið of
mikið. Ilmvötn renna út eins og allt
annað. Notaðu það í það minnsta
á sunnudögum, helst á hverjum
degi. Af hverju ekki að lykta vel
alla daga frá morgni til kvölds?
Gæludýr
Úúúú... þau eru svo krúttleg!
Kakó, te og kaffi
Hvar værum við ef ekki væri fyrir
gott kaffi.
Heimllið
Heimilið okkar er endalaus upp-
spretta sköpunargleði, öryggis og
sælu. Heima er best.
Góðar leiðir að markmiðinu:
Verður þú grennri, hraustari
og reyklausari árið 2006
Þaö er spennandi og hvetjandi aö sjá möguleikana sem eru framundan þannig aö gott er aö skrifa niður þaö sem þig langar aö ná fram.
í kjölfar áramóta og áramóta-
heita virðast allir ætla að verða
grennri, fallegri, betri, hraustari
og reyklausari á nýju ári. Það er
svo sem ekkert mál að lofa og lofa
en muntu standa við áramóta-
heitið? Stóðstu við þau markmið
sem þú settir þér á síðasta ári eða
áttu kannski enn eftir að ljúka
þeim? Tilgangurinn með að setja
sér markmið er að ná þeim og
stundum útheimtir það einhverja
vinnu. En eins heimskulega og
það hljómar þá sleppa mörg
okkar þeim hluta og svo veltum
við okkur upp úr því af hverju við
náðum ekki markmiðum okkar.
Ef þú ert loksins tilbúin/n til að
setja þér markmið í þeim tilgangi
að ná þeim þá eru hér nokkar
góðar leiðir. En gleymdu ekki að
þú þarft að nota þær til að þær
virki!
Takmörkun
Takmarkaðu metnað þinn. Þú getur
ekki gert allt og fengið allt, sama
hve mjög þig langar til þess. Auk
þess er auðveldara að ná markmið-
unum séu einhverjar skorður settar
á þau. Settu þér nokkur markmið og
haltu þig við þau. Þegar þeim mark-
miðum er náð er lítið mál að setja
önnur. Hægt og rólega muntu því fá
allt sem þú vilt.
Hvaðviltu?
En hvað er það sem þú virkilega
vilt. Vertu nákvæm og skilgreindu
vel hvað það er sem þú vilt. Hugs-
aðu um það og skipuleggðu það.
Ekki bara segja að þú viljir betri
bíl heldur segðu að þú munir leggja
fyrir ákveðna upphæð á mánuði til
að kaupa nákvæmlega þessa gerð af
bíl. Þú munt æfa nákvæmlega þetta
oft í viku til að ná þessari ákveðnu
þyngd.
99......................
Segðu sjálfri þér að þú
sért það sem þú vilt
verða og þú munt vinna
þeim mun hraðar til
að ná markmiði þínu.
Draumar verða að veruleika
Hafðu forgangsröðina á hreinu. Þú
átt ekki að einbeita þér að því sem þú
vilt heldur að því hvernig þú ætlar að
ná því sem þú vilt. Eins og áður kom
fram þá er tilgangur þess að setja
sér markmið að ná þeim. Ef þú bara
vilt og vonar þá muntu gera það sem
eftir er ævinnar. Það er þegar þú
ákveður að gera eitthvað í því sem
draumar verða að veruleika.
Markmiðabók
Skrifaðu markmiðin niður. Það er
spennandi og hvetjandi að sjá mögu-
leikana sem eru framundan þannig
að gott er að skrifa niður það sem
þig langar að ná fram. Vertu eins
ljóðræn og hagsýn og þú vilt vera því
þetta er eingöngu fyrir þig og engan
annan. Lestu markmiðin þín yfir oft
og reglulega til að gleyma engu.
Njóttu þess
Taktu einn dag í einu og eitt skref
í einu. Litill hóll virðist alltaf vera
risastór áður en þú hefur göngu en
það breytist þegar þú ert lögð af stað.
Ef þú þarft að missa 30 kíló byrjaðu
bara á því að missa fyrstu fimm,
svo næstu fimm og svo framvegis.
Gefðu sjálfri þér tíma til að njóta
þess að ná markmiðum þínum.
Feikaðu það
Notaðu imyndunaraflið. Hefurðu
ekki heyrt máltækið: „Ef þú ert ekki
að meika það þá skaltu feika það“.
Gerðu drauma þína að veruleika.
Segðu sjálfri þér að þú sért það sem
þú vilt verða og þú munt vinna þeim
mun hraðar til að ná markmiði þínu.
En fyrst og fremst skaltu hafa trú
á þér, því þú ert sú eina sem getur
látið drauma þína rætast. Stattu þig,
stelpa!
svanhvit@bladid. net