blaðið - 04.01.2006, Page 30
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaöid
Ríkur Rússi keypti sig inn í Portsmouth
Rússneski auðkýfingurinn Alex-
andre Gaydamak hefur keypt helm-
ings hlut í enska úrvalsdeildarliðinu
Portsmouth. Gaydamak er sonur
milljarðamæringsins Arcadi Gayda-
mak sem á einnig ísraelska liðið
Beitar Jerúsalem. Alexandre Gayda-
mak hefur reyndar búið í Frakk-
landi um margra ára skeið og hefur
franskt ríkisfang.
í tilkynningu sem Milan Mand-
aric og stjórn Portsmouth sendu
frá sér er ekki tilgreint hve há upp-
hæðin er sem Gaydamak greiddi
fyrir eignarhlut sinn í félaginu en
hann og Milan Madaric eiga nú jafn
stóran hlut í félaginu. í tilkynning-
unni kemur fram að Gaydamak og
Mandaric styðja Harry Redknapp
framkvæmdastjóra félagsins eitt
Harry Redknapp
hundrað prósent og að þessi kaup
komi ekki til með að hafa nein áhrif
á hans starf.
Þá kemur einnig fram að Mand-
aric og Gaydamak ætla að endurnýja
og stækka heimavöll Portsmouth,
Fratton Park ásamt því að tryggja
Harry Redknapp fleiri og betri leik-
menn en Portsmouth er sem stendur
í þriðja neðsta sæti ensku úrvals-
deildarinnar sem er fallsæti.
Samkvæmt nýjustu fréttum frá
Englandi er talið að Harry Red-
knapp fái um 20 milljónir sterlings-
punda til að kaupa leikmenn nú í
janúarmánuði. Mjög miklar líkur
eru á að Frakkinn Laurent Robert
sem leikið hefur með. Portsmouth
fari til Benfica í Portúgal.
Nelsen ákærður fyrir ummæli
Ryan Nelsen leikmaður enska
úrvalsdeildarliðsins Blackburn Ro-
vers hefur verið kærður fyrir um-
mæli í garð Mark Halsey dómara
eftir leik Blackburn og Everton, 3.
desember síðastliðinn. Mark Halsey
rak þá Andy Todd félaga Nelsen af
velli í leiknum fyrir að handleika
knöttinn og það var nokkuð sem
Nelsen var ekki sáttur við. Ummæli
Nelsen voru þessi: „Hann hefur góða
reynslu af því að reka leikmenn
Blackburn af velli svo að þetta var
bara eðlilegt". Svipað atvik átti sér
stað í leik Blackburn og Liverpool og
þar breyttist leikurinn einnig eftir
að leikmaður Blakcburn var rek-
inn útaf. „Þessi brottrekstur Andy
Todd breytti leiknum og hið sama
gerðist í leiknum gegn Liverpool
og í báðum tilvikum var sami dóm-
ari. Hann tók af okkur stig í þeim
leik sem og í þessum leik gegn Ever-
ton. Af einhverjum ástæðum hefur
hann (Mark Halsey dómari) mjög
mikla ánægju af því að reka leik-
menn Blackburn af leikvelli", sagði
Ryan Nelsen leikmaður Blackburn
Rovers um Mark Halsey dómara
sem dæmdi leik Blackburn og Ever-
ton 3. desember. Nelsen hefur frest
til 17. janúar til að koma með sína
hlið á málinu til aganefndar enska
knattspyrnusambandsins.
Ryan Nelsen
West Ham reynir að
fá Glen Johnson
Alan Pardew framkvæmdastjóri
enska úrvalsdeildarliðsins West
Ham United er sagður vilja fá Glen
Johnson aftur til Upton Park. John-
son sem er 21 árs er uppalinn hjá
West Ham en fór til Chelsea í tíð
Claudio Ranieri hjá Chelsea. John-
son hefur ekki fengið mörg tæki-
færi hjá Jose Mourinho og það eru
taldar ágætar líkur á að hann snúi
á ný til austur London. Pardew
er sagður vilja kaupa piltinn frá
Chelsea og kaupverðið hefur verið
nefnt í kringum 4 milljónir sterl-
ingspunda sem er jafnvirði um 450
milljónir íslenskra króna. Chelsea
virðist ekki hafa nein not fyrir leik-
manninn en Mourinho hefur spilað
Paulo Ferreira eða William Gallas í
stöðu hægri bakvarðar. Geremi var
settur í bakvarðastöðuna í leik yfir
jólahátíðina en Geremi leikur vana-
lega á hægri kanti. Það er því ljóst að
Jose Mourinho hefur litla sem enga
trú á þessum efnilega bakverði sem
á fjölmarga leiki fyrir undir 21 árs
landslið Englands.
Hamrarnir
fá sóknarmann
Alan Pardew framskvæmdastjóri
enska úrvalsdeildarliðsins West
Ham United hefur fest kaup á ísra-
elska landsliðsmanninum Yaniv
Katan. Kaupverðið er í lægri kant-
inum eða um ellefu og hálf milljón
íslenskra króna. Katan sem er 24
ára gamall kemur frá Maccabi Haifa
sem er eitt af stórliðum ísraels en
hann á 13 A-landsleiki fyrir ísrael.
Katan samþykkti i9.desember síð-
astliðinn að ganga til liðs við West
Ham en þar er fyrir annar Israels-
maður sem heitir Yossi Benayoun
en hann hefur þótt standa sig afar
vel eftir að hann kom til West Ham.
Katan skrifaði undir fjögurra ára
samning við West Ham og verður til-
búinn að leika gegn Norwich City í
bikarkeppni enska knattspyrnusam-
bandsins um næstu helgi.
„Alla mína ævi hefur mig dreymt
um að leika á Englandi svo að þetta
er mikill hamingjudagur fyrir mig.
Ég vona að mér gangi vel með West
Ham og ég hlakka mjög til að hitta
nýju félagana,“ sagði Yaniv Katan
við fréttamenn í dag.
Stúlknalið Keflavíkur
Fulltrúar frá Liverpool
kynna fótboltamót
Um næstu helgi koma hingað til
lands fulltrúar frá Liverpool-
Knowsley fótboltaskólanum til að
kynna alþjóðlegt unglingamót í
knattspyrnu. Mótið hefur nú verið
haldið ár hvert frá því 1997. Mótið
hefur vaxið ár frá ári og meðal
frægra einstaklinga sem hafa tekið
þátt í mótinu má nefna Wayne
Rooney. „Þetta mót er alveg stór-
kostlegt og er í heila viku. Þarna er
leikinn topp fótbolti og gefur heima-
mönnum tækifæri til að mæta liðum
frá liðum alls staðar að úr heim-
inum. Ég á mjög góðar minningar
frá þessu móti og fékk gullskóinn á
mótinu sem ég tók þátt í en þá var ég
12 ára og lék fyrir Pye FC árið 1998,“
sagði Wayne Rooney meðal annars
um þetta mót.
Að sögn Harðar Hilmarssonar
framkvæmdastjóra IT-ferða sem
standa að heimsókn Liverpool
manna til íslands, tóku fjögur ís-
lensk lið þátt í mótinu á síðasta
ári. Fram, Fylkir, KA og stúlknalið
Keflavíkur.
Það verður opinn kynningar-
fundur í fundarsal ÍBR í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal á laugardaginn
klukkan 12.00.
Það er hægt að panta tíma hjá
þessum ágætu Englendingum til
að fræðast um mótið með því að
hringja i Hörð Hilmarsson hjá IT-
ferðum í síma 588-9900.
Mark Halsey dæmdi í mótinu í fyrra
Sutton til
Everton?
Gordon Strachan framkvæmda-
stjóri skoska félagsins Celtic
hefur staðfest að líkur séu á að
Chris Sutton leikmaður hðsins
gæti verið á fórum frá félag-
inu í þessum mánuði. Sutton
hefur ekki verið ánægður hjá
Strachan og talið er líklegast
að Everton verði það hð sem
kaupir Sutton frá Celtic. I
samningi Sutton við Celtic er
klásúla þar sem gefur honum
leyfi til að fara nú í janúar ef
honum þóknist svo. Eitt er víst
að Everton veitir ekki af ff am-
herjum en liðinu hefur gengið
afleitlega það sem af er leiktíð
og gengið mjög illa að skora.
FerVieritil
Englands?
Samkvæmt ítölskum íjölmiðlum
eru miklar líkur á að Christian
Vieri leikmaður með AC Milan
yfirgefi herbúðir félagsins eftir
skamma dvöl en hann hefur
ekki náð sér á strik með Milan-
liðinu. Vieri sem er 33 ára hefur
látið hafa eítir sér að hann vilji
leika á Englandi áður en hann
leggur skóna á hilluna ffægu.
Vieri hefur aðeins skorað eitt
mark í 8 deildarleikjum með AC
Milan og vih ólmur fá að spila
meira. Hann er ávallt varamaður
en helstu sóknarmenn AC Milan,
Alberto Gilardino og Andryi
Shevchenko hafa verið iðnir við
að skora mörkin í vetur. Vitað
er af áhuga Tottenham en nú
velta menn því fyrir sér hvort
Greame Souness ffamkvæmda-
stjóri Newcastle þurfi ekki að fá
sóknarleikmann til sín þar sem
Michael Owen verður frá næstu
3 mánuðina að minnsta kosti
vegna fótbrots. Auk þessara hða
eru spænsku liðin Real Betis og
Espanol nefnd sem hugsanlegur
kostur fyrir Christian Vieri.
Manichefer
tilChelsea
Portúgalski leikmaðurinn
Nune Maniche sem leikið hefur
með rússneska liðinu Dynamo
frá Moskvu er á leiðinni til
Chelsea á Englandi. Hugsanleg
félagaskipti Maniche hafa verið
nokkuð í umræðunni að undan-
fórnu en hann hefiir ekki verið
sáttur í Moskvu effir að hann
fór þangað síðasthðið sumar
frá Porto í Portúgal. Maniche
er miðjumaður en hann kemur
til Chelsea á lánssamningi
með kaup í huga næsta sumar
og þá yrði kaupverðið um 565
mifljónir íslenskra króna.„Ég
vonast til að komast í gegnum
læknisskoðunina svo ég geti
farið að leika með Chelsea síðar
í þessum mánuði. Ég tel dagana
þangað til. Ég hef fengið tilboð
frá öðrum stórliðum Evrópu en
þegar Chelsea sýndi áhuga þá
kom ekkert annað lið til greina.
Það væri einfaldlega bull og
vitleysa hjá mér ef ég hafnaði
tilboði Chelsea, þar sem ég hef
þekkt framkvæmdastjórann og
marga leikmenn hðsins í mörg
ár. Mourinho er lykfllinn að því
að ég fer til Chelsea en hann
heftir reynt að fá mig til sín í
nokkurn tíma“, sagði Nune Man-
iche í samtali við fréttamenn.
Chelsea veitir kannski ekki
af miðjumönnum þar sem
Michael Essien er meiddur og
óvíst hversu lengi hann verður
frá keppni og þá er Geremi á
förum í Afríkukeppnina sem og
sóknarmaðurinn Didier Drogba.