blaðið - 04.01.2006, Page 32
. 32 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaAÍA
Innilegt samband
Veggmynd í egypsku grafhýsi gæti
verið fyrsta lýsing á samkynhneigðu
pari sem vitað er um. Grafhýsið er
um fjögur þúsund ára gamalt og þar
er að finna myndir af tveimur karl-
mönnum í faðmlögum.
Á sérstakri ráðstefnu í háskóla í
Wales var fjallað um þessar myndir
sem hafa vakið forvitni og vanga-
veltur fornleifafræðinga allt frá því
grafhýsið fannst árið 1964. Graf-
ræningjar höfðu þá rænt það öllum
verðmætum en veggjamyndir gefa
margt til kynna um þá tvo menn
sem þar voru grafnir. Á myndunum
eru mennirnir hvað eftir annað
sýndir saman, stundum haldast
þeir í hendur, stundum eru þeir í
faðmlögum og á tveimur myndum
snertast nef þeirra en það var nán-
asta snerting sem leyfð var í Egypta-
landi hinu forna og jafngilti kossi.
Eiginkonur mannanna og börn eru
sýnd í bakgrunni. Á myndletri í
grafhýsinu eru mennirnir sagðir
vera í þjónustu faraósins og meðal
verkefna þeirra var að sjá um hand-
snyrtingu hans.
Á ráðstefnunni í Wales komu
fram kenningar um að myndirnar
væru lýsing á samkynhneigðu sam-
bandi. Andstæðingar þeirrar kenn-
ingar segja að myndirnar gefi til
kynna að mennirnir séu náskyldir,
jafnvel tvíburar, og það útskýri inni-
leikann milli þeirra. Grafhýsið er
vinsæll ferðamannastaður og sam-
kynhneigðir leggja gjarnan leið sína
þangað. ■
Booker verðlauna-
höfum hafnað
Blaðamenn Sunday Times sendu á
dögunum handrit að tveimur verð-
launabókum til fjölda bókaforlaga.
Útgefendur áttuðu sig ekki á því að
þarna var um gömul og marglofuð
verk að ræða og höfnuðu handrit-
unum. Önnur bókanna er In a Free
State eftir Nóbelsverðlaunahafann
V.S. Naipaul en fyrsti kafli verks-
ins var sendur til bókaforlaganna.
Hin bókin er Holiday eftir Stanely
Middleton. Báðar bækurnar komu
út á áttunda áratugnum, hrepptu
Booker verðlaunin og fengu frábæra
dóma gagnrýnenda. Tuttugu bóka-
forlög höfnuðu handritunum, þar á
meðal virt forlög á borð við Blooms-
bury og Time Warner. Blaðamenn
Sunday Times höfðu ekki snert við
handritunum á annan veg en þann
að nöfnum aðalpersóna bókanna
var breytt og sömuleiðis nöfnum
höfundanna og þar með gefið í skyn
að um væri að ræða handrit frá höf-
undum sem væru að stíga sín fyrstu
spor á rithöfundaferlinum. Snilld
þessara verka fór algjörlega framhjá
útgáfuforlögunum sem öll nema eitt
sendu kurteisleg bréf þar sem þeir
höfnuðu handritunum og sögðu þau
ekki henta til útgáfu.
Þessi niðurstaða hefur vitaskuld
valdið furðu og er vandræðaleg
fyrir viðkomandi forlög. Bent hefur
verið á að bókaforlög séu upptekin
af þekktum höfundum og ungu fal-
legu fólki sem auðvelt sé að mark-
aðssetja. Hæfileikar þurfi því oft að
víkja fyrir umbúðum. Rithöfundur-
inn Doris Lessing segir að bókafor-
lög séu mun tregari nú en áður til að
hlúa að hæfileikafólki. ■
Ævisaga poppgoðs
Út er komin ævisaga söngvarans
Sam Cooke en hann var fyrsta svarta
bandaríska poppstjarnan. Hnefalei-
kakappinn Cassius Clay sagði hann
vera mesta rokksöngvara heims og
baráttukonan Rosa Parks sagði að
það að hlusta á tónlist hans væri „lyf
fyrir sálina. Það er eins og Martin
Luther King sé að tala við mann.“
Líf þessa frábæra söngvara og
arfleifð hans vakti áhuga banda-
ríska popp sérfræðingsins Peter
Guralnick. Hann er höfundur
tveggja binda ævisögu Elvis Presley
og eftir það afrek sneri hann sér að
Cooke. Afraksturinn er 750 blað-
síðna ævisaga, Dream Boogie, The
Triumph of Sam Cooke. Cooke varð
. einungis 33 ára gamall og hin langa
bók Guralnicks er sérlega ítarleg og
fróðleg og sviptir hulunni af manni
sem bjó yfir miklum persónutöfrum
og vissi hvað hann vildi en var ekki
alltaf geðugur.
Cooke var skotinn til bana í des-
Vínartónleikar
Anton Scharin-
ger. Syngur á
Vfnartónleikum
Sinfóníunnar.
Vínartónleikar
Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands,
verða haldnir
í Háskólabíó
4. til 7. janúar.
Hljómsveitar-
stjórinn Peter
Guth kemur
nú í tíunda
sinn til þess
að stjórna Vínartónleikunum
Sinfóníunnar. Öryggi hans á
stjórnendapahinum og ekki
síður fínlegur galsaskapurinn
hafa aflað honum vinsælda hér-
lendis. Söngvarinn Anton Schar-
inger, sem einnig er Austur-
riídsmaður, hefur sungið allar
þekktustu óperur Mozarts víða
um heim auk þess sem hann
hefur tekið þátt í mörgum upp-
tökum á verkum tónskáldsins.
Tónleikarnir verða alls fjórir
í ár, þeir fyrstu í kvöld, mið-
vikudaginn 4. janúar klukkan
19.30, fimmtudag og föstudag
á sama tíma en klukkan
17.00 laugardaginn 7. janúar.
Sam Cooke. Út er komin ævisaga söngvar-
ans sem var skotinn til bana einungis 33
ára gamall.
embermánuði árið 1964. Hann var
drukkinn og hafði verið að skemmta
sér með stúlku og þau fengu sér gist-
ingu í módeli í subbuhverfi Los Ange-
les þar sem stúlkan rændi hann og
hafði meira að segja af honum fötin.
Cooke leitaði hennar með þeim
afleiðingum að eigandi mótelsins,
kona, beindi byssu að honum og
skaut hann til bana. Hún bar fyrir
sig sjálfsvörn og var sýknuð. Margt
er enn á huldu um málið. Endalok
Cooke voru kannski í samræmi við
lífsstíl hans. Hann var kynlífsfíkill
og sótti í samskipti við gleðikonur.
Samstarfsmaður hans sagði: “Sam
gekk ætíð framhjá góðri stúlku til
að ná sér í hóru.“
Guralnick ræddi við vini og sam-
starfsmenn söngvarans við vinnslu
bókarinnar. Enginn viðmæland-
anna virtist hafa þekkt Cooke náið
eða hafa þótt innilega vænt um
hann, ekki einu sinni eiginkona
hans Barbara sem átti ekki sæla
daga í hjónabandinu. Allir viðmæl-
endur viðurkenna þó að Cooke hafi
verið sterkur persónuleiki. Sam-
starfsmaður hans Herp Albert sagði:
„Hann virtist soga í sig allt súrefnið
i herberginu, öll athyglin beindist
samstundis að honum.“ ■
Ekki lag um
marijúana
Sönghópurinn Peter, Paul and Mary
naut mikilla vinsælda á popptím-
anum. Eitt þekktasta lagið sem þau
sungu er Puff the Magic Dragon,
sem virðist vera saklaust barnalag.
Þrálátar sögusagnir hafa hins vegar
verið um það árum saman að lagið
fjalli um marijúananeyslu. Orðið
„puff er sagt tákna eiturlyfjaneyslu
og landið „Honah Lee“ á að vera
Hanalei á Hawai en það er þekkt
fyrir mikla marijúana ræktun. Höf-
undarnir harðneita að þetta hafi
verið ætlun þeirra. Leonard Lipton,
sem samdi textann, segir hann vera
undir áhrifum frá ljóði Ogden Nasg,
The Tale of Custard the Dragon.
Meðhöfundur lagsins, Peter Yarrow,
segir að á þeim tíma sem lagið var
samið hafi hann verið of saklaus til
að hafa vitneskju um eiturlyf. ■
Peter, Paul and Mary voru ekki að syngja
um marijúana
Blyton eftirlæti
fullorðinna
Bækur Enid Blyton um „Hin fimm
fræknu” voru nýlega valdar eftirlæt-
isbarnabækur fullorðinna í skoðana-
könnun í Bretlandi. Þátttakendur í
könnuninni voru um 2700, allt full-
orðnir. Sigurinn var naumur því
Narníubækur C.S. Lewis fylgdu fast
á hæla Blyton bókanna. Blyton átti
líka bókina í þriðja sæti sem er The
Faraway Tree. í fjórða sæti varð Hob-
bitinn eftir Tolkien, Kalli og súkku-
laðiverksmiðjan eftir Roald Dahl
varð í því fimmta. Svarti blakkur
eftir önnu Sewell varð í sjötta sæti
og Ævintýraeyjan eftir Robert Louis
Enid Blyton. Bækur
hennarum hin
fimm fræknu voru
á dögunum valdar
eftirlætisbarnabæk-
ur Breta.
Stevenson lenti í
sjöunda sæti.
Þess má geta að
Hringadróttins-
saga Tolkiens
varð í tíunda
sæti.
Enid Blyton
var gríðarlega
afkastamikill
rithöfundur og
skrifaði um 700
skáldsögur á ferl-
inum og 7000
smásögur. ■
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
5 3 7 4 9 8 6 2 1
8 2 6 5 7 1 4 9 3
1 4 9 3 2 6 8 5 7
4 5 3 7 6 2 1 8 9
9 8 2 1 3 4 7 6 5
6 7 1 8 5 9 2 3 4
2 6 5 9 4 7 3 1 8
3 1 4 6 8 5 9 7 2
7 9 8 2 1 3 5 4 6
Su Doku þrautln snýst um
að raða tölunum frá 1 -9
lárétt og lóörétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aöeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
8
8 4 3
2 3 1 5
6 8 5
9 8 5 3
3 1 7
2 3 9 1
6 1 7
8