blaðið - 04.01.2006, Page 37
blaðið MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006
DAGSKRÁI 37
EITTHVAÐ FYRIR...
...hláturtaugamar
............
Syng þótt falli regn
Söngkonan Tony Braxton lét ekki skúrir á sig fá þegar hún söng fyrir áhorfendur í hinni
árlegu rósaskrúögöngu i Kaliforniu í fyrradag. Það þykir tíðindum sæta að regn skuli
hafa fallið þar sem síðast gerðist það árið 1955. Skrúðgangan er haldin ár hvert í aðdrag-
anda úrslitaleiks ameríska háskólaboltans, Rose Bowl.
Osturinn
gleður Jennifer
Woody Allen
tekur upp á Spáni
Eymd dóttur
Rod Stewart
Heyrnartól valda
heyrnarskaða
Heyrnartól, líkt ogþau semfylgja iPod spil-
urum og fjölmörgum öðrum ferðahljóm
flutningstœkjum, geta valdið alvarlegri
heyrnarskerðingu samkvœmt nýjum rann-
sóknum.
„Enginn veit fyrir
víst hversu hátt
fólk hlustar
á tónlist í
spilurum
sínum. Hins
vegar vitum
við að ungt
fólk vill hlusta
á háværa tónlist og
hafa sjaldnast áhyggj-
ur af skertri heyrn“,
segir Dean Garstecki,
stjórnarformaður við
deild samskiptatækni
og vandamálum henni
tengdri við Northwestern há-
skólann. Heyrnartólunum er
komið fyrir í eyrunum og geta
magnað hljóð um allt að níu
desibel. Þetta samsvar-
ar hávaðamuninum
á vekjaraklukku og
slátturvél. Þrátt fyr-
ir að heyrnartólun-
um sé komið fyrir í
eyranu geta umhverf-
ishljóð komist á milli
og því hækka margir
enn meira í græjunum með
tilheyrandi skaða.
Vísindamenn hafa reynt að vara
við skaðanum sem getur orðið af
notkun á heyrnartólum sem þess-
um frá árinu 1980 þegar fyrstu
vasadiskóin komu á markað. Með
lengri endingu rafhlaðna 0 g
aukinni geymslugetu
y*"
MP3 spilara
er fólk í enn
meiri hættu
en áður þar
sem það
verður sí-
fellt lengur
fyrirskaðleg-
um áhrifum
tónlistarinnar.
Lausnin
Garstecki segir að einfaldasta og
besta lausnin á vandamálinu sé að
takmarka notkun á heyrnartólum.
„Þeir sem nota heyrnartól sem fara
inn í eyrað ættu að takmarka notk-
unina við 30 mínútur á dag. Hins
vegar geta þeir sem nota heyrnartól
sem svipar til eyrnaskjóla hlustað
í allt að klukkustund.“ Einnig
segir Garstecki að mikilvæg-
ast sé að hlusta ekki á tónlist
af hærri styrk en nemur
60% af heildarstyrk. Þá
bendir hann einnig á að
hægt sé að fá heyrnartól
sem passa betur að
eyranu og útiloka
umhverfishljóð svo
óþarft er að hækka
í botn.
Árið 2005 var líklega ekki hennar
besta, en Jennifer Aniston er þó
hæstánægð. Þrátt fyrir fréttirnar
um að Brad Pitt sé að ættleiða börn
Angelinu Jolie, myndi Jennifer ekki
vilja breyta neinu. Hún sagði: „Ég
myndi ekki vilja breyta neinu af
því leiðinlega sem kom fyrir mig
frá síðasta ári og þar til nú. Eitt er
öruggt, og það er að ég ætla að taka
mér frí til að ferðast. Mig langar
til Grikklands og annarra landa.“
Fyrrum stjarnan úr sjónvarpsþátt-
unum „Vinir“ vildi ekkert gefa upp
um meint samband sitt við Vince
Vaughn, en hún sagði hins vegar frá
því hvernig henni tekst að halda sér
svona jákvæðri. Hún er aðdáandi
hatha-jóga og stundar það hvern
dag. Hún sagði: „Ég held að jóga
hjálpi til við að halda líkama
mínum sterkum, og ef hann
er sterkur hjálpar það mér til
að sofa betur, virka betur á
daginn og vinna vinnuna
mína betur. Svo drekk ég
líka heilu lítrana af vatni.
Vatn, vatn, vatn, og næg-
ur svefn.“ Jennifer er líka
með góð ráð til að öðlast
hamingju: „Einfaldir hlut-
ir gleðja mig. Sólsetur. Að
vera með vinum mínum. Vín-
flaska og ostar gleðja mig mikið.“
Ef þið eru þunglynd eftir jól og
áramót, er gott ráð að eyða svolitl-
um tíma með oststykkinu sínu.
Höfundurinn og leikstjórinn Woody
Allen sagði á mánudag, að hann
myndi taka næstu mynd sína upp á
Spáni á næsta ári. Allen mun skrifa
og leikstýra myndinni á ensku, en
hún er framleidd af fyrirtæki sem
er í Barcelona, Mediapro, og notar
hann bæði alþjóðlega og spænska
leikara í henni. Engin smáatriði um
sjálfa myndina eru gefin upp á þessu
stigi málsins. „Ég er mjög hamingju-
samur að fá að vinna með Mediapro
og gera mynd á Spáni,“ sagði Allen.
„Ég vona að ég geti notið dvalarinnar
á Spáni, en það land er mér mjög
kært.“ Allen hefur að undanförnu
leitað út fyrir landsteina heima-
lands síns, Bandaríkjanna, til að fá
fjármagn til kvikmyndagerðar, og
því var síðasta mynd hans, Match
Point, gerð í Englandi árið 2004.
Hann gerði svo framhaldið ári síð-
ar með leikkonunni úr Match Po-
int, Scarlett Johansson, og mun sú
mynd sem fékk heitið Scoop rata í
bíóhúsin síðar á árinu.
DAGUR
ÞRJÚ
Þetta er að verða erfiðara en í
fyrstu. Wrigley's Extra Eucalyptus
er tuggið af áfergju og ég þreifa eft-
ir plástrinum á upphandleggnum á
háftíma fresti til að vera viss um að
hann sé þarna örugglega. Ég held
ég sé ábyggilega að slá heimsmet í
kaffidrykkju. Að minnsta kosti er
Sjónvarpið, 21.25 Aukaleikarar
(2:6) (Extras)
Bresk gamanþáttaröð eftir Ricky
Gervais og Stephen Merchant, höf-
unda Skrifstofunnar. Hér er fylgst
með aukaleikurum sem láta sig
dreyma um að fá bitastæð hlutverk
í kvikmyndum.
Sirkus, 20.30 Party at the Palms
(7:12)
Playboy fyrirsætan Jenny
McCarthy, fer
með áhorfend-
ur út á lífið
í Las Vegas.
Jenny kem-
ur sér fyrir
ásamt stripp-
urum, hótelgestum sem eru til í allt,
og síðast en ekki síst, aragrúa af
frægum stjörnum sem eru komnar
til að taka þátt í fjörinu.
ég komin langt yfir ráðlagðan dag-
skammt en hef ákveðið að vera ekk-
ert að ergja mig á því í bili. Ég tækla
kaffidrykkjuna síðar. Ég er að sjálf-
sögðu sérlega fegin að þurfa ekki
að standa úti í rokinu að þjónka
við þrælslundina en verð að viður-
kenna að ég sakna þess samt svolít-
ið. Það hjálpar ekkert að horfa á eft-
ir vinnufélögunum stökkva út með
rjúkandi kaffibollana á klukkutíma
fresti. Það hlakkar samt svolítið í
mér þegar liðið kemur rokbarið og
illa lyktandi til baka.
Það hjálpar til að þola ögrandi
háðsglósurnar en töluverðri vantrú
er fyrir að fara varðandi þetta reyk-
bindindi mitt. Það er alltént ekki
mikla tiltrú að finna hjá reykinga-
mönnum á vinnustaðnum. Tja, og
jafnvel ekki heldur hjá hinum reyk-
lausu. Það eru þó nokkrir vinnufé-
lagar jákvæðari að eðlisfari en aðr-
ir og það er stuðningur í því. Hún
Heiða hefur gerst sérlegur stuðnings-
aðili minn og tekur með mér vatns-
pásur og gaukar að mér hughreyst-
andi athugasemdum.
Auðvitað er þetta
bindindi á mína
ábyrgð, minn vilja
sem þarf, en það er
gott að fá stuðning.
Dóttir Rod Stewart, Sarah Streeter,
varð fyrir miklu áfalli þegar hún
sá myndir í blöðum af föður sínum
með nýja barninu hans, Alastair, því
hann hegðar sér ennþá eins og hún
sé ekki tiL Hún er nú 42 ára, en var
getin þegar Rod Stewart var aðeins
18 ára, og eyddi hún fyrstu 4 árum
ævinnar á barnaheimili, þar til hún
var ættleidd. Hún komst að því hverj-
ir foreldrar hennar voru við 18 ára ald-
ur. Streeter segir: „Hann gleymir hve
mörg börn hann á þegar hann er
spurður um það í viðtölum.
Eg líð fyrir það að ég eigi
stóra fjölskyldu
þarna úti sem ég mun líklega aldrei
hitta. Auðvitað var ótrúlegt þegar ég
uppgötvaði að Rod Stewart væri faðir
minn og ég ætlaði varla að trúa því
í fyrstu. Ég ákvað þó að hitta hann,
en nú vildi ég óska að ég hefði ekki
gert það. Það var greinilegt að hann
var bara að láta undan þrýstingi með
að hitta mig, og þetta var óþægilegt
fyrir okkur bæði. Mér leið eins og
aðdáanda, ekki eins og ættingja. Ég
bjóst nú aldrei við því
^ að hann yrði eins og
alvöru pabbi, en ég
vonaði að við myndum
þróa með okkur vinasam-
band. Mest af öllu vildi
ég þó að hann viður-
kenndi mig, og ekki
V\ láta eins og ég sé
* V ekkitilíviðtöl
SkjárEinn, 21:00 Queer Eye for
the Straight Guy.
Samkynhneigðu tískulöggurnar í
QueerEyefor
the Straight
Guy koma
aftur í nýrri
þáttaröð.
Eins og áður
gera þær sitt besta til að bjarga gagn-
kynhneigðum karlmönnum frá
slóðaskap með því að kenna þeim
að klæða sig almennilega, hugsa
um húð og hár og læra að meta fín-
an mat og menningu.
...píparsveina