blaðið - 04.01.2006, Qupperneq 38
38IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 blaðið
SVEFN OG
VITFIRRA
Smáborgarinn er alveg endalaust ab velta fyrir
sér svefni þessa dagana. Hann fékk sæng íjóla-
gjöf, og hefur því nákvæmlega ekkert á stefnu-
skránni annaö en aðmæta ívinnuna með herkj-
um,og drífa sig svo heim aftur til að leggjast
upp í rúm með nýju sængina. Þannig á það
líka að vera í janúar, dimmasta og kaldasta
mánuðl ársins, hér á Islandi. Það er alltaf jafn-
merkilegt að velta fyrir sér fyrirbærinu „svefn".
Við mannskepnurnar eyðum einum þriðja af
ævi okkar sofandi, miðað við það að við sofum
sirka átta tima á sólarhring. Smáborgarinn fer
nú reyndar létt með að sofa to eða n tíma á
sólarhring, en finnst hins vegar hryllilegt til
þess að hugsa að ef hann gerði það að stað-
aldri, allt árið um kring, svæfi hann tæplega
helming ævi sinnar. Það er víst ekki bæði
sleppt og haldið, ekki bæði sofið vært, og vak-
iðoggert eitthvað skemmtilegt. Eitt er þó víst:
Það að sofa er manninum jafnmikilvægt og að
nærast, eða að hafa öruggt húsaskjól. Ef svefn-
inn er tekinn af manninum byrjar hann smám
saman að missa einbeitingu, missir svo stjórn
á útlimum og svo getur farið að hann missi
hreinlega vitið ef hann sefur ekki í langan
tíma. Smáborgarinn missir reyndar strax vitið,
bara ef hann sefur illa eða lítið í eins og eina
nótt. Því er það sérlega leiðigjarnt þegar kött-
ur Smáborgarans tekur upp á því að vera glað-
vakandí á nóttunni, og tekur það á taugarnar.
Síðastliðna nótt var kötturinn afar sprækur
og tók að veiða höfuð Smáborgarans með þvi
að stökkva á það, Smáborgaranum til mikils
ama. Svo fór, eftir að Smáborgarinn hafði gef-
ið kettinum tvær aðvaranir, að upp úr sauð.
Tók þá Smáborgarinn köttinn og þrumaði
honum inn í stofu úr svefnherberginu og las
yfir honum fonnælingamar. Kötturinn skildi
þessi skýru skilaboð, hringaði sig upp ofaná
teppi uppi í sófa og steinsofnaði. Smáborgar-
inn lá hins vegar titrandi af réttlátri reiði uppi
í rúmi, og vegna alls adrenalínslns var hann
nú glaðvaknaður. Undlr morgun þegar hann
sofnaði var síðasta hugsun hans: „Ég sleppi
því bara að fara að sofa, ég er svo hress núna
hvort eð er. Þá verður ekkert mál að vakna og
mæta í vinnuna." Fljótlega eftir þetta rotaðist
Smáborgarinn, og það þurfti yfimáttúrulegt
átak, meö tilheyrandi loforðum um að fara
beint að sofa eftir vinnu, til að rrfa sig undan
nýju, hlýju sænginni og fara á fætur. [ kvöld
verður svo áreiðanlega ekkert spennandi að
fara að sofa snemma, og svona heldur boltinn
áfram að rúlla...
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Sigurjón Þórðarson, þingmaður og Hegranesgoði
Hvað finnst þér um ummæli biskups?
„Þetta er rugl í honum. Trúfélög í landinu eiga að fá að ráða sínu helgihaldi
sjálf. Mér finnst að menn eigi ekki að skipta fólki eftir kynhneigð sinni,
þar eiga önnur sjónarmið að ráða. Mér finnst að biskupinn eigi nú að hafa
í huga þá góðu speki: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Ég átta mig eigin-
lega ekki á því hvað hann er að fara. Svona hluti á biskup ekki að láta út
úr sér. Þetta er mitt mat, annars verður hann bara að haga sínum orðum
eins og hann kýs sjálfur. En hann er nú einu sinni ríkisstarfsmaður, svo ég
má nú hafa skoðun á orðum hans. Hann er ekki i sömu stöðu og Gunnar
í Krossinum.“
Orð biskups í sambandi við breytingar á hjúskaparlögum hafa vakið athygli. Hann sagði meðal annars að hjónabandið „eigi það
inni hjá okkur, að við allaveganna köstum því ekki á sorphauginn alveg án þess að hugsa okkar gang."
Nýr leikfélagi fyrir Kate
Pete Doherty er ef til vill endanlega orðinn fyrrverandi kærasti því til Kate Moss hefur sést
í skíðabrekkum, að kyssa síðhærðan pilt. Kate hefur fundið sér svolítið sætan, en fremur
ungan, félaga til að leika við á skíðasvæðinu í Aspen yfir nýja árið. Samkvæmt Daily Mirr
or hefur Kate verið að kyssa og knúsa hinn tuttugu ára gamla Jamie Burke, upprennandi
tónlistarmann sem fór í hinn fræga og virta einkaskóla Charterhouse. Er Kate búin að
finna í honum vel menntaðan, og virðulegan lífsförunaut sem er góð tilbreyting frá hin-
um óútreiknanlega Pete? Fyrrum skólafélagar Jamie halda nú ekki: „Jamie leit alltaf á
sig sem „slæman strák“ í skólanum,“ sagði bekkjarfélagi hans. „Hann var alltaf að nást
við reykingar, og fannst það mjög svalt. Svo leit hann líka stórt á sig í kvennamálum,
og nú þegar hann hefur náð sér í Kate Moss verður hann eflaust óþolandi.“ Annar fyrr-
um skólafélagi sagði: „Þetta er gjörsamlega óraunverulegt. Við vorum í tímum með
þessum gaur fyrir tveimur árum, og nú er hann byrjaður með fallegustu fyrirsætu í
heimi. Við erum orðlausir.“
Reimleikar í
húsi Gwyneth
Gwyneth Paltrow trúir að reimt sé í húsi sínu. Hún og maður hennar, Chris
Martin söngvari Coldplay, segja að það sé slæm orka í 3.5 milljóna punda
húsi þeirra í Belsize Park í Norðvestur London. Hún hefur beðið höfuðstöðv-
ar Kabbalah í London að koma og særa út illa anda fyrir sig. Tíu félagar í Kab-
balah munu koma og lesa upp sálma og blása í horn gert úr hrútshornum, og
er þetta hluti af særingunni.
Kelly elskar
"neðanjarðarbirgi" Ozzy
Rokkarinn Kelly Osbourne hefur tekið upp á því að sofa í „neðanjarðarbyrg-
is-herbergi“ föður síns því það er myrkasta herbergið í húsinu. Söngkonan
krefst þess að byrgja alla birtu úti þegar hún sefur því henni líkar best við
svartamyrkur, og leyniherbergi Ossy hefur orðið fyrir valinu sem svefnher-
bergi. Hún útskýrir: „Pabbi á svona sjónvarpsherbergi sem mamma hefur
alltaf kallað neðanjarðarbyrgið, því þar er alveg kolniðamyrkur. Mér datt í
hug að sofa þar út af myrkrinu, og þar er líka þægilegasti sófi allra tíma.ég er
alveg með þetta herbergi á heilanum."
510 3744
blaöiö^
eftir Jim Unger
Pssst! Viltu sjá fljúgandi furðuhlut?
HEYRST HEFUR...
FL Group tók formlega við
rekstrinum á Sterling
flugfélaginu og Maersk í dag
og reynir þá á næstunni fyrir
alvöru á hæfni stjórnenda til að
reka félögin réttum megin við
núllið.Ólgan
í kringum
starfloka-
samninga
Sigu r ð a r
Helgasonar
og Ragn-
hildarGeirs-
dóttur er
langt í frá
búin og sögðu hluthafar skoð-
un sína á málinu með því að
selja bréf í félaginu við opnun
markaðar í gærmorgun á sama
tíma og flest önnur félög hækk-
uði í verði. Hannes Smárason
og félagar urðu því að treysta á
á gullfiskaminni landans - og
sjá. Bréf í FL Group hækkuðu
um meira en 1 prósent í lok
dagsins.
Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri er í forsvari
nefndar sem á að skoða mat-
vælaverð hér á landi, en eins og
kunnugt er það eitt hið hæsta
í veröldinni.
Stefnan er
tekin á það
að ná fram
verðlækkun
og á nefndin
að koma með
tillögur til úr-
bóta. Af ýmsu er að taka, hátt
gengi krónunnar hefur ekki
skilað sér í lægra vöruverði til
neytenda og gildir það jafnt um
matvöru sem aðra vöru. Svo
virðist því sem innflytjendur
og seljendur taki aurinn i eigin
vasa. Þá má ekki gleyma hlut
hins opinbera - Hallgrímur og
félagar mættu gjarnan byrja á
að skoða álögur ríksivaldsins.
Líklegast er þó að niðurstöður
þessarar nefndar fari sömu leið
og svo margra annarra - beint
í skúffuna.
Lítið hefur borið á Bobby
Fisher undanfarna mán-
uði, en hann mun una hag sínu
nokkuð vel í bókaverslunum
hérlendis. Þannig sást til hans
í bókabúð
Máls og
menning-
ar í fyrra-
dag, ásamt
frú, þar
sem þau
dáðust af
myndum
í ónefndri
bók. Fischer mun hafa fengið
tilboð um háar fjárhæðir ef
hann snéri aftur að skákborð-
inu, en sagan segir að hann
hafi hafnað því með öllu. Þá á
hann erfitt um vik með að ferð-
ast til útlanda þar sem hann á
framsal til Bandaríkjanna yfri
höfði sér.
Notts County, lið Guðjóns
Þórðarsonar, er í þrett
ánda sæti í fjórðu efstu deild
Englands. Þetta er ekkert sér-
stakur árangur og er hugsan-
legt að eig-
endaskipti
séu fram-
undan hjá
félaginu
og munu
b r e s k i r
p e n i n g a -
menn hafa áhuga á að kaupa
þetta elsta knattspyrnufélag
heims. Á slíkum stundum velta
menn ætíð fyrir sér stöðu fram-
kvæmdastjórans. Sjálfur mun
Guðjón hafa nokkrar áhyggjur
af stöðu mála.
FJ
G R O U P