blaðið - 23.03.2006, Blaðsíða 10
-g -T'ií _
10 I ERLENDAR FRETTIR
1,1111" 11 t ■ wsBBaaagBaaBgBBBg
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006
ETA boðar endalok ofbeldis
i . Reutm
Franskir
námsmenn
mótmæla
mótmælum
mbl.is | „Opnið háskólana! Veitið
okkur frelsi til að læra!“ var slag-
orð franskra námsmanna sem
mótmæltu því í París í gær að
mótmæli undanfarinna daga
hafa lamað allt starf í helmingi
háskóla Frakklands.
Námsmennirnir sem mót-
mæla mótmælunum segjast
ekki eiga neina von um vinnu ef
)eir komist ekki í skólann. „Fólk
íefur rétt til að mótmæla, en
jað hefur engan rétt til að taka
háskólana i gíslinguvar haft
eftir Pierre-Henri Pouchelon,
22 ára hagfræðinema við Paris
Dauphine-háskólann.
Um 300 háskólanemar tóku
þátt í mótmælunum en tugir
þúsunda hafa mótmælt fyrirhug-
aðri breytingu á vinnulöggjöf
sem bitnar á ungu fólki.
ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska á
Spáni, lýsti yfir ótímabundnu vopna-
hléi í gær. Upptaka sem sýndi þrjá
grímuklædda menn lýsa yfir vopna-
hléinu fyrirhönd samtakannabirtist
fyrst í spænskum ljósvakamiðlum i
gærmorgun. Síðar staðfesti bask-
neska dagblaðið Gara fréttirnar en
ETA hefur í gegnum tíðina notað
þann fjölmiðil til að koma yfirlýs-
ingum sínum á framfæri.
I yfirlýsingunni kemur fram að
vopnahléið hefjist á morgun, föstu-
dag. Ástæða ákvörðunarinnar um
að leggja niður vopn er að sögn tals-
manna ETA að stuðla að nýju lýðræð-
islegu ferli í Baskalandi, ferli sem
taki mið af réttindum basknesku
þjóðarinnar. í yfirlýsingunni kemur
einnig fram að það sé einlægur vilji
samtakanna að átökum milli þeirra
og spænskra stjórnvalda ljúki og það
leiði til þess að í framtíðinni muni
Baskar fá að ráða eigin örlögum.
Varfærin viðbrögð stjórnvalda
Stjórnvöld í Madríd fögnuðu yfirlýs-
ingunni en talsmaður ríkisstjórn-
arinnar hvatti þó Spánverja til
þess að sýna varfærni og stillingu.
Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis
Rodriquez Zapatero, hefur áður
lýst því yfir að óskilyrt vopnahlé að
hálfu ETA sé forsenda þess að við-
ræður geti hafist á milli stjórnvalda
og leiðtoga samtakanna. ETA lýsti
síðast yfir vopnahléi 1998 en rauf
það ári síðar þegar samtökin stóðu
að hrinu sprengjuárása. Árið 2000
Reulers
Fjögurra áratuga ofbeldi lokiö? Talsmenn ETA lýsa yfir ótímabundnu vopnahléi á myndbandsupptöku sem varpað var út í spænskum
fjölmiðlum í gær.
stóðu samtökin fyrir morðtilræði
við Ernest Lluch , fyrrum ráðherra.
Varð árásin til þess að milljónir
Spánverja mótmæltu aðgerðum sam-
takanna og fordæmdu hryðjuverk
ORMSSON
.
SMÁRALIND SÍÐUMÚLI S AKUREYRI KEFLAVÍK
530 2900 530 2800 461 5000 421 1335
Opnum í dagí Keflavfk!
1/erslun með heimilistæki, hljómtæki, sjónvörp o.m.fl.
þeirra. Síðast var mannfall í árás á
vegum samtakanna árið 2003. Eftir
hryðjuverkaárásir íslamskra öfga-
manna á lestarkerfi Madrid-borgar
fyrir tveim árum hefur legið fyrir að
samtökunum mun reynast ómögu-
legt að knýja fram baráttumál sín
með ofbeldi. 1 kjölfar þeirra árása
afvopnaði almenningsálitið ETA.
ETA hefur barist fyrir sjálfstæði
baskneskra héraða á Norður-Spáni
4 %
CASH & CARRY
og í Suður-Frakklandi í nærri fjóra
áratugi. Samtökin hafa staðið fyrir
fjölda tilræða á þessum tíma og er
talið að um 800 manns hafi fallið í
valinn í árásum þeirra. Þar á meðal
er fjöldi lögreglumanna, dómara og
stjórnmálamanna. Ofbeldisherferð
samtakanna náði hámarki á átt-
unda áratugnum. Þá týndu að með-
altali hundrað manns Iífi i árásum
samtakanna á hverju ári.
ÍÍfrái
oivmrus mju 700
3X OPTICAL ZOOM, 5 MILLJÚN PIXLAR
Tilboðsverð:
24.900
AEG
AEG Þvottavél
1200 snúninga
Tilboðsverð:
59.900
15% afsl. af öllum AEG og tefal tækjum!
Frí heimkeyrsla um allt Reykjanes
FERMINGA RCJA FA UR VA L!
Pioneer
www.ormsson.is
hama. LOEWE. i
OLYMPUS SHARR AEG
Nikon
Pú gengur aö gæöunum vísum...
F^lk&hítfSihu ° Suðurl
sími: 554 0ó55 • candc@simne
opið: 10-18 virka daga
>gc.i<