blaðið - 23.03.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 23.03.2006, Blaðsíða 30
fSUNSKA AUGlfSINGASTOFAN/SlA LYF 31524 03/2006 ' 30 I FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006 blaðið > skynd»prófi^_ J ■ Utan vallar með Jakobi Sveinssyni, sundmanni úr Ægi Smáauglýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 blaóió^ LENGJAN LEIKIR DACSINS Spiladu á næsta sölustað eða á lengjan.is Manchester Líkist helst hana eða kjúkling vegna bringunnar Nicotineir EpJLYFJ/l Banik Ostrava - Most 1,65 2,90 3,35 HIFK - SaiPa 1,40 4,70 3,10 HPK Hámeenlinna - llves 1,60 4,30 2,55 Tappara - Assát 1,50 4,35 2,85 Gaziantepspor - Malatyaspor 1,75 2,80 3,15 FC Midtjylland - FC Köbenhavn 2,80 2,75 1,90 Charlton - Middlesbro 2,10 2,65 2,55 Atletico Madrid - Sevilla 1,75 2,80 3,15 Vitoria Setubal - Guimares 2,10 2,65 2,55 Utah - Washington 1,50 8,10 1,85 Libertad Asuncion - El Nacional 1,35 3,35 4,75 Rosario - Palmeiras 2,30 2,60 2,35 Atl.Nacional - Cerro Porteno 1,30 3,50 5,15 United 1. Hvað heitir aðstoðarknatt- spyrnustjóri liðsins? 2. Hvaða leikmenn skoruðu mörk liðsins í úrslitaleik meistaradeildarinnar árið 1999? 3. Hver leikur í treyju númer 13 hjá liðinu? 4. Hver var knattspyrnu- stjóri liðsins á undan Alex Ferguson? 5. Hvað var liðið nefnt þegar það var stofnað árið 1878? •qiPðH uojMdH ’S 'uosuwv uoy •fr '6uns-.if >|jed 'J*í>|S|0S Jeuunt) d|o • 60 meijöuudijs Appai z 'zoj.ianD so|je) ’í Fæðingardagur og ár? 24. nóvember 1982. Besta bíómynd? Verð eiginlega að segja La Bamba. Ég get horft á hana aftur og aftur. Besta bók? Les nú ekki mikið en sú bók sem kemur upp í hugann er 101 Reykja- vík eftir Hallgrím Helgason, sem er alveg frábær. Besta hljómsveit/tónlistarmaður? Er svolítið fyrir gamalt rokk og um þessar mundir hlusta ég mikið á Bruce Springsteen. Besti matur? Elska lasagne. Hvað gleður þig mest? Þegar ég næ einhverju takmarki, sama hvað það er. Skóli, vinna eða tómstundir. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Umferðarljós fara mjög mikið í taug- arnar á mér þó maður eigi ekki að láta þau fara i sig. En svo fer líka mikið í taugarnar á mér þegar fólk kemur seint þegar það hefur sagst ætla að koma á ákveðnum tíma. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst barn? Ég vildi verða arkitekt og vill það að hluta til enn. Mestu vonbrigðin á íþróttaferlinum? Þegar ég lenti í 2. sæti á Evrópumeist- aramóti unglinga en þar ætlaði ég mér sigur. Mesta afrek innan vallar og utan? Að hafa náð stúdentsprófi. Uppáhalds lið í enska boltanum? Ég er að sjálfsögðu rauður djöfull, þ.e Manchester United. Uppáhalds íþróttamaður fyrr og síðar? Ég get ekki sagt að ég eigi einhvern einn uppáhalds. En ef ég á að velja einhvern verð ég að segja Steve Pref- ontaine sem var hlaupari á 7. og 8. áratugnum. Frábær karakter sem ætlaði sér mikið en dó ungur. allar upplýsingar um málið. ist hana eða kjúkling þar sem ég er með frekar stóra bringu, svona hálf- gerða kjúklingabringu. Hvert myndirðu fara ef þú ættir tímavél? Ég myndi fara 200 ár aftur í tímann og segja fólki frá öllum frábæru uppfinningunum sem hafa verið fundnar upp á síðustu 200 árum og eigna mér sjálfur heiðurinn að þeim. Hvað myndi bíómyndin um þig heita og hver ætti að leika þig? Myndin myndi heita „The Whale“ og James Franco gæti leikið mig. Hvernig myndi einkamála- auglýsingin þín hljóma? I hvert skipti sem ég les yfir einka- málaauglýsingar kemur upp í mér lítill púki sem hlær, en svo þegar ég á að svara þessari spurningu sjálfur stend ég á gati. Hver er tilgangur lífsins? Hafa sem mestan pening út úr for- eldrunum, giftast dóttur ríks lög- fræðings og grafa mig sem mest niður í skuldir áður en ég drepst. Nei, smá grín. Ég held að svörin við þessari spurningu séu jafn mörg og við mannfólkið. En tilgangur lífs míns er að reyna að vera sáttur við allt sem ég hef gert, því eftirsjá getur nagað mann mikið. Hver viltu að lokaspurningin sé og hvernig myndirðu svara henni? Er þetta spurning? Þá er þetta svar. Ef þú þyrftir að skipta um íþrótt, hvað yrði fyrir valinu? Ætli það yrði ekki bara fótboltinn. Maður var nú í boltanum á yngri árum. (slandsmeistaratitill eða 1. vinningur í lottói? Ætli ég myndi ekki segja íslands- meistaratitill. Maður er nú ekki svo gráðugur í peninga. Hvaða persónu vildirðu helst lokast inni í lyftu með? Hulk. Hann væri snöggur að koma manni út. Hvaða dýri finnst þér þú helst líkjast? Fólk hefur oft sagt við mig að ég lík- Hœttum að reykja f samfélagi á vefnum þar sem allir fá styrk hver frá öörum og enginn þarf aö standa einn í baráttunni. Meö sameiginlegu átaki drepum viö í fyrir fullt og allt Skráöu þig í átakiö á vidbuin.is Þar er auk þess hœgt að finna Skeytin inn Umboðsmaður Djibril Cisse sagði í fjölmiðlum í gær að allar líkur séu á að framherjinn fljóti fari frá Liverpool til Totthenham í sumar. Umboðsmaður Cisse segir að hann sé spenntur fyrir að spreyta sig með Lundnúna- liðinu og hvetur forráðamenn Tottenham til þess að bjóða í hann. Talið er að Liverpool sé tilbúið að selja Cisse á átta millj- ónir punda en hugsanlega gæti komið til leikmannaskipta þar sem að talið er að Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi áhuga að fá Jerome Defoe í sínar raðir. Cisse hefur ekki fundið sig eftir að hann gekk til liðs við Liverpool og virðist henta illa því leikskipulagi sem Rafa Benitez leggur upp með. relix Magath, knattspyrnu- stjóri Bayern Munchen, er farinn að huga af því hver eigi að taka við hlutverki leik- stjórnandans og fyrirliðans Michael Ballack, en talið er víst að hann gangi til liðs við Chelsea í sumar. Ballack hefur lýst því yfir að hann kjósi að leika á Englandi fremur en á Spáni eða Ítalíu. Magath ætlar að beita útilokunar- aðferðinni við val á arftakanum og lýsti því yfir í þýskum fjölmiðlum að hann vildi alls enga leikmenn í líkingu við enska tískuáhugamanninn og miðvallarspilarann David Beck- ham. Magath er að leita að vinnu- sömum mönnum á miðjuna sem eru tilbúnir að leiða leik félaga sinna og berjast fram, í rauðan dauðann. Hafa Hollendingurinn Mark von Bommel, sem er hjá Barcelona, og Þjóðverjinn Tim Borowsky, leikmaður Werden Bremen, helst verið nefndir til sögunnar sem arítakar Ballacks. Wú er ljóst hver mun taka við stjórn stórliðs Real Madrid. Gallinn er að forseti liðsins, Fern- ando Martin, ætlar ekki að afhjúpa þjálf- arann fyrr en í sumar. Martin sagði í viðtali við spænska blaðið E1 Mundo í gær að gengið hefði verið frá ráðningu nýs þjálfara. Þrátt fyrir leyndardóminn full- yrðir Martin að huldumaðurinn sé sá færasti sem völ er á og að hann muni fá meira vald um leikmannakaup en títt er meðal knattspyrnustjóra á Bernabeu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.