blaðið - 23.03.2006, Blaðsíða 27
blaðið FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006
FERÐALÖG I 27
Flughrœddir fljúga ekki svo árum skiptir
Mörgum fínnst ómissandi að
ferðast til fjarlægra landa, sýna
sig og sjá aðra og upplifa ólíka
menningarheima. Fyrir þá sem
þjást af flughræðslu geta ferðalög
reynst sérstaklega flókin, ekki
síst vegna þeirrar staðreyndar
að ísland er eyja. Flughræddir
verða því annað hvort að ferðast á
skipum eða harka af sér en báðir
þessir kostir geta reynst erfiðir.
Rúnar Guðbjartsson sálfræðingur
vann í 40 ár sem flugstjóri hjá
Flugleiðum og veit því sitthvað um
flugvélar og hræðslu. Hann heldur
námskeið til að takast á við flug-
hræðslu í World Ciass í Laugum
á laugardaginn og segir að flestir
sem glími við flughræðslu jafni
sig á því eftir námskeiðið.
Rúnar hefur haldið flughræðslunám-
skeið áður og segir flughræðslu vera
eins og aðrar fælni að því leyti að fólk
þróar með sér óraunhæfan ótta. „Yfir-
leitt er þetta mjög vel gefið og greint
fólk en það er þessi sálræni þáttur
sem truflar. Margir sem þjást af flug-
hræðslu eiga mjög erfitt og fljúga jafn-
vel ekki svo árum skiptir."
Óraunhæfur ótti
„Það er allur gangur á því,“ segir
Rúnar þegar hann er inntur eftir
því hvort fólk sem er flughrætt eigi
slæmar minningar úr flugferðum.
„Það er mín skoðun að það sé ekki
rétt gefið í byrjun. Sumir eru næm-
ari fyrir kvíðaröskunum en aðrir.
Síðan kemur oft fyrir að ungt fólk,
sem hefur aldrei átt í vandræðum
með að fljúga, eignast börn og þá
finnur það fyrir kvíða við að fara í
flugferðir. Eins getur fólk hafa lent í
mikill ókyrrð eða einhverju slíku og
svo fer fólk ósjálfrátt að forðast flug-
ferðir í kjölfarið sem festir kvíðann
enn betur í sessi. Þetta er erfitt fyrir
þá sem lenda í þessu,“ segir Rúnar
og bætir við að á námskeiðinu noti
hann hugræna atferlismeðferð sem
er kennd við Albert Ellis. „Hann er
þekktur sálfræðingur og ég hef unnið
með honum og nota því hans nálgun
á námskeiðunum. Helmingur nám-
skeiðsins fer í þennan sálfræðiþátt,
að takast á við þessa óraunhæfu ótta-
kröfu sem fólk setur á sjálft sig og
þær hugsanir sem skapa þennan ótta.
Seinni helmingur námskeiðsins fer í
að kynna allt sem tilheyrir einni flug-
ferð og skýra það út fyrir fólki. Oft
er fólk með ranghugmyndir um það
sem fer fram í flugferðum. Eftir að
fólk hefur fengið réttar upplýsingar
þá ræður það betur við óttann.“
Halda áfram að fljúga
Rúnar segir að námskeiðið hafi
reynst mjög vel og flestum dugi eitt
námskeið þó vissulega þurfi sumir
að koma oftar. „Eftir námskeiðið
geta þeir sem það vilja farið með mér
í flug en þá förum við með áætlun-
arflugi innanlands. Ég fer bara með
tvo í einu en þetta finnst mörgum
gott, sérstaklega þeim sem hafa
ekkert getað flogið. Svona flugferð
getur gert gæfumuninn en það þurfa
ekki allir á henni að halda. Svo eru
alltaf einhverjir sem eru kvíðnir og
hræddir en láta sig hafa það að fljúga
og þeim dugir alveg að koma bara á
námskeið."
Rúnar segir að á námskeiðinu
læri fólk að tala sig frá óttanum sem
er ákveðin þróun. „Þegar fólk er á
annað borð komið af stað og það
kann að tala sig frá óttanum og veit
orðið allt um flugið þá lagast þetta.
Ég ráðlegg fólki sem er haldið flug-
hræðslu að halda áfram að fljúga.
Þetta er ekkert auðvelt en kemur
smátt og smátt. Það felst heilmikill
sigur í því að fljúga fyrir þann sem
er flughræddur. Síðan þarf að vinna
með þetta vandamál áfram og eftir
einhvern tíma getur fólk flogið vand-
ræðalaust og sumir hreinlega njóta
þess.“
99..................
Yfirleitt erþetta mjög
vel gefið og greint fólk
en það er þessi sálræni
þáttursem truflar.
Margir sem þjást af
flughræðslu eiga mjög
erfitt og fljúga jafnvel
ekki svo árum skiptir.
Fyrir þá sem þiást af flughræðslu geta ferðalög reynst sérstaklega flókin, ekki síst vegna þeirrar staðreyndar að (sland er eyja.
eTrex
Vista Cx
Láttu ekki stærðina
blekkja þig, þessi er
með rafeinda-
áttavita og hæðar-
tölvu ásamt
32Mb Micro SD
minniskubbi.
í'r \\m
litts tKllllt
imisi 111111
Garmin
GPS60Cx
Sama tæki og 60CSx
en án rafeindaátta-
vitans og hæðar-
tölvunnar en er
með 64Mb Micro
SD minniskubbi og
SiRF GPS móttakara.
eTrex
Legend Cx
Smár en knár, fer
vel í hendi og tekur
lítið pláss í vasa
með 32Mb Micro
SD minniskubbi.
Garmin GPSmap 60CSx
Leiðsögutæki fyrir veiði- og útivistarfólk
Ótrúlega öflugt staðsetningartæki fyrir útivistarfólk. Tækiö er með rafeinda-
áttavita, hæðartölvu, 64Mb Micro SD minniskubbi og SiRF GPS móttakara.
Fjölhæft tæki í bílinn, veiðina eða á fjallið. Vinsælasta GPS tækið í dag.
Nýtt GPS kort fyrir Garmin tæki, með götum,
heimilisföngum og hæðarlínum
GPS kort er vektor kort af Islandi fyrir Garmin GPS
tæki með leiðsöguhæfum vegagögnum um allt
Land. Einnig götukort af höfuðborgarsvæðinu með
heimilisföngum, 20 metra hæðarlínum úr ISV-50,
40.000 örnefni og áhugaverðirstaðir, vatnafar,
þjóðvegir, fjallaslóðar og skálaskrá. í fyrsta sinn
á íslandi fæst nú vegakort með leiðsöguhæfum gögnum fyrir PC tölvur,
Windows Mobile handtölvur og Garmin GPS tæki. Láttu ekki afvegaleiða
þig - veldu Garmin.
GARMIN KEMUR
ÞÉRÁSPORIÐ
MEÐ NÝJU X-TREME
TÆKJUNUM
Komdu í glæsilega verstun okkar við Fiskislóð 16 úti á Granda og kynntu þér gott úrval GPS stað-
setningartækja frá Garmin. Við eigum allar stærðir og gerðir af tækjum sem henta fyrir hvers konar
veiði, útivist og jafnvel skokkið, innanbæjar sem utan.
R.SIGMUNDSSON
FISKISLÓÐ 16 I 101 REYKJAVÍK I SÍMI 520 0000 | www.rs.is I www.garmin.is
Umboðsmenn I Akureyri: Haftækni • Blönduós: Krákur Egilsstaðir: Bílanaust Grundarfjörður: Mareind • ísafjörður: Bensínstöðin • Reyðarfjörður: Veiðiflugan • Selfoss:
Hársnyrtistofa Leifs • Vestmannaeyjar: Geisli • Reykjavík: Arctic Trucks, Bílanaust, Elko, Everest, Gísli Jónsson, Hlað, Intersport, Stormur, Toyota aukahlutir,
Útilíf, Vesturröst, Yamaha • Fríhöfnin
GflRMIN
svanhvit@bladid.net