blaðið - 12.04.2006, Blaðsíða 17
m—p
Lærðu að lesa hraðar í
Hraðlestrarskólanum
| SÍÐA18
Alvarlegar afleiðingar
eineltis hjá börnum
| SfÐA 20
Falleg
og
litrík
barna-
föt fyrir alla krakka
| SlÐA 21
• »***#• *.•••••••••
Góð ráð við svefn-
vandamálum barna í
bókinni Draumaland
| SÍÐA 23
Veröld barnsins
- hlutir og leiktæki
fyriröll börn
| SÍÐA 23
Unglingar berjast
gegn stóriðju
| SÍÐA 24
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Notalegur morgunn með börnunum
Morgunstund gefur gull í mund
Á þeim heimilum þar sem báðir for-
eldar vinna úti og börn ganga í leik-
skóla eða skóla gefst sjaldan tími til
samverustunda á morgnana. Þvert
á móti ganga morgnarnir iðulega
þannig fyrir sig að eftir að haninn
galar og fjölskyldumeðlimir rísa úr
rekkju er morgunmaturinn borð-
aður í snarhasti og heimilismenn
skunda út. Eins og gefur að skilja
gefst ekki mikill tími til samræðna
eða skemmtilegra stunda þegar
annríki er mikið og þurfa þá slíkar
stundir að bíða betri tíma. Hins
vegar er að sjálfsögðu um að gera
fyrir fjölskyldur að njóta þeirra
morgna saman þegar allir eru í fríi
og þar eru helgarnar væntanlega
hentugastar fyrir flesta. Þá getur
verið ansi skemmtilegt að leyfa
börnunum að koma upp í rúm til
mömmu og pabba og spjalla við
þau um það sem á daga þeirra hefur
drifið, spyrja foreldrana spjörunum
úr, nú eða skiptast á skemmtilegum
bröndurum. Oll börn hafa þörf fyrir
góðar stundir með foreldrum og það
er að sjálfsögðu gagnkvæmt.
Vitið til! Það er ákveðinn sjarmi
yfirþægilegum morgunstundum fjöl-
skyldunnar á góðum morgni. Þá eiga
yfirleitt allir það sameiginlegt að vera
úthvíldir, nývaknaðir og hálfmygl-
aðir og stemningin getur orðið afar
sérstök. Samverustundir geta verið
afar innihaldsríkar og gefandi, auk
þess sem varla er hægt að hugsa sér
betri aðstæður til að byrja daginn!
halldora@bladid.net
Er barnið þitt með létt
og góð gleraugu?
Gleraugnaverslunin í Mjódd
Álfabakka 14 • 109 Reykjavík • Sími: 587 2123
www.gleraugnaverslun.is