blaðið - 12.04.2006, Qupperneq 18
18 I BÖRN
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaöiö
Lœrðu að lesa hraðar
Hagnýt og skemmtileg námskeið
fyrír þá sem vilja auka afköstin
Hraði þjóðfélagsins er mikill í dag
og sjaldan hefur þörf fyrir tækni
tií þess að komast hraðar yfir upp-
lýsingar verið jafnmikil og nú. Að-
gangur okkar að upplýsingum
hefur aukist mikið og það upplýs-
ingaflæði sem okkur berst hefur að
sama skapi aukist til muna frá því
sem áður var. Þetta gerir það óneit-
anlega að verkum að lestrarhæfni
skiptir sköpum og hraðlestur getur
gert gæfumuninn - námsmönnum
og öllum öðrum til hagsbóta.
í 25 ár hefur Hraðlestrarskólinn
haldið hraðlestrarnámskeið og mik-
ill fjöldi Islendinga hefur leitað á
þeirra náðir með það fyrir augum
að auka afköst sín og spara þannig
tíma. Námskeiðin hafa reynst afar
árangursrík og mikill fjöldi hefur
aukið við lestrarhraða sinn og bætt
þannig styrk í námi, atvinnu eða
einkalífi. Hér eru börn engin und-
antekning, en sífellt fleiri börn og
unglingar sækja námskeiðin og auð-
velda sér þannig vinnubrögð í skóla.
Jón Vigfús Bjarnason, skólastjóri
Hraðlestrarskólans, segir námið
afar hagnýtt fyrir ungt fólk sem
er að byrja sín fyrstu skref í lífinu.
„Við erum að fá til okkar krakka frá
15 ára aldri, þó svo að sumir komi
yngri ásamt foreldrum sínum. Skóla-
fólk er auðvitað fljótara að hlaupa
yfir námsefnið eftir að hafa sótt
námskeðin og þar fyrir utan er þetta
mjög góður grunnur fyrir framtíð
krakkanna.“
Að sögn Jóns hafa allir gott af því
Það getur hjálpað krökkum mikið að auka afköst sín í lestri, auk þess sem meiri tími gefst til annarra hluta fyrir vikið.
að spara sér tíma og geta þannig
stundað íþróttir eða annað sem
hugurinn stefnir á. „Fólk fer að lesa
mun hraðar og meðallestur hvers
dags verður minni en áður. Þá gefst
auðvitað meiri tími í allskyns tóm-
stunda eða það sem fólk vill og er
þetta sérstaklega gott fyrir krakka,
sem margir stunda t.d. íþróttir af
99...................................
Með þessu móti er fólk í rauninni að búa til
klukkustundirnar og það er alls ekki slæmt
þegar tíminn er afeins skornum skammti
og reynist vera hjá mörgum í dag.
einstðk tvöföld virkni
Fjarlægir ey
hreinsar og leysir upp
‘einfalt í notkun.
*öruggt og áhrifaríkt
fyrir alla fjölskylduna.
*staðfest með rannsóknum.
Frekari upplýsingar Ýmus ehf
Fæst í lyfjaverslunum um land allt
lewb6 \
OeanEai \
Mt'tpray |
'irfarwa* t
-4 ' I
HJÁ OKKUR FÁIÐ ÞIÐ MIKIÐ ÚRVAL AF
KERRUM OG VÖGNUM FYRIR BÖRNIN
am
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
kappi,“ segir Jón og bætir við að í
lok námskeiðsins hafi nemendur
öll þau tól sem þau þarfnast til að
viðhalda þeim árangri sem hefur
myndast á námskeiðinu. „Það er
ekkert því til fyrirstöðu að fólk
haldi áfram að tileinka sér tæknina
og haldi sér við í lestrinum. Hvað
framtíðina varðar þá getur það að
sjálfsögðu skipt miklu máli að við-
halda árangrinum svo hann tapist
ekki niður.“
Kostnaðurinn borgar
sig fljótt til baka
Námskeið Hraðlestarskólans eru
ýmist 6 vikur eða 3 vikur í senn,
ef fólk sækist eftir hraðari yfir-
ferð. Það er ekki hægt að segja að
námið sé dýrt, en hvert námskeið
kostar 29.500 krónur, og fylgir því
æviábyrgð. Með æviábyrgð er átt
við það að ef nemandi, sem setið
hefur námskeið, telur sig hafa misst
eitthvað niður getur hann hvenær
sem er setið upprifjunarnámskeið,
honum að kostnaðarlausu.
„Það skiptir okkur miklu máli að
geta tekið við fólki aftur síðar ef
viðkomandi kýs að gera það,“ segir
Jón. „Fólk virðist nýta sér þennan
kost mikið og margir koma aftur til
okkar, þó svo að mörg ár líði á milli.
Fólk klárar kannski háskólanám, fer
út á vinnumarkaðinn í nokkur ár og
síðan í meistaranám. Þá getur verið
sniðugt að koma til okkar og rifja að-
eins upp svo að námið verði auðveld-
ara og þægilegra yfirferðar. “
Jón segir peninginn ansi fljótan
að borga sig, ef tekið er mið af þeim
kostum sem fylgja auknum lestr-
arhraða. „Með þessu móti er fólk
í rauninni að búa til klukkustund-
irnar og það er alls ekki slæmt þegar
tíminn er af eins skornum skammti
og reynist vera hjá mörgum í dag.
Við erum flest í þeirri stöðu að við
þurfum að lesa mikið dagsdaglega
og þetta getur sparað mikinn tíma
og auðveldað fólki.“
PÁSKAR Á AKUREYRI
...skíöasnjórinn er á Akureyri í ár!
0^ ■' wsr S* vTá , MMI WM 1 •mt> . £
ttll-ðQlfÍOll Verib velkomin! Akureyri www.hlidarfjall.is
Það læra börn-
in sem fyrir
þeim er haft
Börn fylgjast stöðugt með for-
eldrum sínum og taka gjarnan
mið af þeirra gjörðum þegar
þau framkvæma sjálf. Börnin
endurtaka það sem foreldarnir
segja og hegðun foreldra getur
eins endurspeglast hjá barn-
inu. Þess vegna er mikilvægt
að foreldrarnir leggi línurnar
varðandi gott og næringarríkt
mataræði hjá sjálfu sér, sem og
börnunum, og reyni þannig að
temja þeim hollan lífsmáta. Ef
foreldrar dreypa á gosdrykkjum
og borða sælgæti í gríð og erg
fyrir framan börnin getur verið
erfiðara en ella að banna þeim
slíkt hið sama!
Ávextir og
grænmeti
alla daga!
Holl næring er öllum börnum
nauðsynleg og því er mikilvægt
að hugað sé vel að mataræði
barna sem eru að taka út þroska.
Auðvitað má stundum bregða
útaf vananum á nammidögum,
eða við önnur tilefni, en best er
að reyna eftir fremsta megni að
gefa börnum holla og næringar-
ríka fæðu.
Það er engum blöðum um
það að fletta að börn í dag borða
ekki nógu mikið af ávöxtum og
grænmeti. En þessu geta allir
foreldrar og aðrir umsjónar-
menn barnanna breytt. Gott er
að setja ákveðnar reglur sem
börnin venjast, t.d. að alltaf
þurfi að borða einn ávöxt með
morgunmatnum og síðan há-
degismatnum, auk þess sem
ávextir og grænmeti séu í boði
á milli mála. Með því að venja
börn á grænmetis- og ávaxta-
neyslu dag hvern eru mun
meiri líkur á auknu heilbrigði
og hressileika barnanna. Svo
má ekki gleyma lýsinu eða öðru
D-vítamíni, sem taka skal inn á
hverjum morgni, að ógleymdu
vatninu sem er öllum börnum
nauðsynlegt í miklum mæli.