blaðið - 12.04.2006, Side 25
blaðið MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006
ÝMISLEGT I 25
Verðmerking-
um ábótavant
Verðmerkingar eru mun lakari
nú en fyrir ári samkvæmt nýrri
könnun Neytendastofu á verð-
merkingum á samtals 3950 vörum
í 79 matvöruverslunum.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Neytendastofu. Könnunin sýndi að
ósamræmi var í verðmerkingum
eða hreinlega að engin verðmerk-
ing var til staðar í alls 12,2% tilfella
en í sambærilegri könnun fyrir ári
var þessi tala 5,2%. Tilgangur þess-
ara kannana er að athuga hvort
samræmi sé á milli verðmerkinga
í hillu og verðs í afgreiðslukassa.
I könnuninni kom i ljós að í
5,6% tilvika var varan óverðmerkt
í hillu og í 3,3% tilfella þurfti að
greiða hærra verð á kassa en verð-
merking á hillu sagði til um. I 3,2%
tilvika var varan hinsvegar á lægra
verði á kassa en í hillu.
Óviðunandi niðurstöður
Að mati Neytendastofu eru þessar
niðurstöður óviðunandi og er Neyt-
endastofu heimilt samkvæmt lögum
að beita stjórnvaldssektum vegna
brota sem þessum. Niðurstöðurnar
hafa verið kynntar verslunum en
Neytendastofa mun kanna ástandið
fljótlega aftur og verði það ekki bætt
verður sektarúrræðum beitt.
Bónusvídeó
óttast ekki
samkeppnina
DVD-diskar sem ekki þarf
að skila komnir á markað.
1 byrjun mars komu á markað svo-
kallaðir 48 tíma DVD diskar sem
eru þannig útbúnir að innihald
disksins eyðist á 48 tímum og
þar með hverfur sú kvöð að skila
diskinum.
Hjá Hagkaupum eru 18 titlar í
boði af þessum diskum og eiga
myndgæði að vera þau sömu og
á öðrum DVD diskum. Kristinn
Hall aðstoðarmaður innkaupa-
manns hjá Hagkaup segir diskinn
renna út á 48-72 tímum. „Verð
disksins er 500 krónur og ég á von
á að þessi tækni gæti orðið sam-
keppnishæf við vídeóleigurnar ef
efnið á þeim væri nýrra." Kristinn
segir að fyrsta mánuðinn eftir að
salan hófst hafi 300 diskar af 48
tíma diskunum verið seldir.
VHS spólur á útleið
Þorvaldur Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri Bónusvídeós segist
ekki óttast samkeppni svokallaðra
48 tíma diska þar sem efnið á þeim
sé eldra en það sem vídeóleigurnar
hafa upp á að bjóða. Hann segir að
vissulega sé alltaf eitthvað um van-
skil en meirihluti viðskiptavina
Bónusvídeós skili þeim spólum
sem teknar séu á leigu og því ekki
ástæða til að taka upp 48 tíma
diska sökum þess.
„Það er hinsvegar staðreynd
að DVD diskar eru að taka við
af gömlu VHS spólunum á mark-
aðnum. Myndir koma nánast ekki
út á VHS spólum lengur og um síð-
ustu mánaðamót voru 95% útlána í
DVD diskum.“
hugrun@bladid.net
■ 2. TBL.. APRÍL 2006. VERÐ 990 KR
D/L)liJ JJJHJJJJJJD TJ llJli
!J\I 03 BjÍÚDÍÍAUP
Á HJi'JO 'UIiETÍ.
UísJU;U3J3JjVJji\íí
fÍÁitiik)
t v&s&irh&amjn
/
Tjq & < i; i
r oSl\ailSS\ol
Meðfíöngujóáa
jff f|ir| r 9 1* v M % 1
furir [1 ri § 1 fn iii11 mJlk |t J || |Lj| k || || 1 ILJI
1 I K