blaðið - 12.04.2006, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaöið
28 I
Konur klœðast jakkafötum
Buxur, vesti, brók og brjóstahaldari...ég er hœtt að ganga ípilsi.
Þegar Coco Chanel hún tók upp
á því að ganga í buxum og tweed
jökkum af elskhuga sínum, her-
toganum af Westminister, var
hún fyrsta konan (svo vitað sé)
sem braut upp þá ævagömlu
hefð að konur gengju einungis í
pilsum.
Með tímanum fór Chanel að hanna
buxur sem hentuðu konum betur
(rennulásinn við mjöðmina og
grennra mitti) og í kjölfarið varð
hún ábyrg fyrir því að klæðskera-
sniðin jakkaföt fyrir kvenfólk bár-
ust inn í tískuheim Parísar og þaðan
til Hollywood.
Fataskápar í Hollywood
Upp úr 1930 voru buxur komnar í
fataskápa og skúffur fjölmargra
kvenna um hinn vestræna heim.
Það hjálpaði líka til að heimsfrægar
fegurðardísir á borð við Marlene Di-
etrich, Katherine Hepburn og Gretu
Garbo voru duglegar að boða þetta
nýja „fagnaðarerindf með því að
klæðast buxnadrögtum við hvert
tækifæri, hvort sem var á blaðaljós-
myndum eða í kvikmyndum.
Sjálfstæður jafningi karla
Katherine Hepburn skipaði sér
fljótlega sess sem einn helsti boð-
beri kven-jakkafatatískunnar. Hún
þótti gefa mynd af bandarísku
konunni sem sjálfstæðum einstak-
lingi sem vílaði það ekki fyrir sér
að keppa á sviðum karla og standa
••••••••••••••••••••••
Kona í jakkafötum þótti
bera með sér sterkan
og ferskan kynþokka
- Þrátt fyrir að fötin
væru upprunalega karl-
mannsföt voru þau á
sama tíma kvenleg, líkt
og þegar kona klæðist
stórum náttfötum.
þeim jafnfætis. Kona í jakkafötum
þótti einnig bera með sér sterkan og
ferskan kynþokka - þrátt fyrir að
fötin væru upprunalega karlmanns-
föt voru þau á sama tíma kvenleg,
líkt og þegar kona klæðist stórum
náttfötum af karlmanni, (en senur
þar sem fegurðardísir spígspor-
uðu um á stórum náttfötum voru
nokkuð vinsælar í kvikmyndum
þess tíma).
margret@bladid.net
Hin íðilfagra Greta Garbo var í hópi þeirra Hoillywood stjarna sem hafði óbreytanleg
áhrif á kvenfatatísku nútímans.
Katherine Hepburn sást varla íkædd öðru en buxum þegar frægarsól hennar skein sem
skærast. Á sama tíma var hún talin holdgerfingur hinnar sjáfstæðu konu.
vidur.is
Harðviðurtil húsbygginga. Vatnsklæðning,panill,
pallaefni, parket o.fl.o.fl.Gæði á góðu verði
Uppl. hjá Magnúsi í síma 660 0230 og 561 1122
Sími: 587 1000 & 577 2800 >-
W! JT
isa
Hyundai Galloper 2.5
TDI, 4/2000, ek. 146þús,
beinskiptur, 33” breyttur, Ál-
felgur, Dráttarkúla, Intercool-
er, Kastargrind, Pluss áklæði,
Rafm. í rúðum og speglum,
samlæsingar o.fl.
Asett verð 940.000.-
Subaru Legacy G1 2,0L
STW árg 8/2000 ekinn
208 þús km, sjálfskiptur,
sumardekk á álfelgum og
vertardekk á stálfelgum,
geisla-spilari, rafmagn í öllu,
1 eigandi.
Verð aðeins 790,000.-
Isuzu Trooper 3,0 TDI árg
8/2000 ekin 123þús km, sjálf-
skiptur, 32” dekk, abs, álfel-
gur, armpúðar í sætum, drát-
tarbeisli, filmur, fjarstýrðar
samlæsingar, geislaspilari, og
m/fl 1 eignandi frá upphafi.
Verð 1,890,000.-
Toyota Hiace Langur Dí-
sel, KÆLIBÍLL. Árg 7/2003
ekinn 155þúskm sjálfskiptur
5 hurðirabs bremsur,geislasp
ilari,nýtt í bremsum og fl.top
þjónustaður.
Verð: 1,590,000.-
Pierre Lannier
Opiðídag 10-18 & laugardag 11-14
MMMMMWM
PASKATILBOD
Ljósblá ullarnærföt, (síðar
buxur og síðerma bolur),
fyrir börn.
Bleik ullarnæriöt, (síðar
buxur og síðerma bolur),
fyrir konur.
Græn og Royal blá
ullarnærföt, (síðar buxur
og síðerma bolur), fyrir
menn.
Barónsstíg 3 Sími: 552 7499
Lokað Skírdag og Föstudaginn langa
•MNVJS Opið laugardaginn 15. apríl ffá 10 -16
Vbff og þurrt
Clarins markaðsseturflottan
púðurfarða sem má nota
bceði blautan ogþurran
Express Compact
Foundation er
skemmtileg nýjung
frá Clarins en þessi
farði er bæði blautur
og þurr í senn. Þurr
er hann sérlega hent-
ugur fyrir þær sem
hafa olíukennda
húð, en hinar sem
eru með eðlilega
húð kjósa heldur að
bleyta svampinn og
þá kemur farðinn
náttúrulega út, án þess að þurrka
húðina. Áferðin af þessum púður-
farða er silkimjúk og kemur mjög vel
út eftir að búið er að setja hann á and-
litið. Húðliturinn helst líka sá sami,
burtséð frá lýsingu í umhverfinu
en margar kvarta stundum undan
því að andlitið komi undarlega út á
myndum þegar flassi er beint að því.
Púðurfarðinn verndar líka húðina
fyrir óæskilegum áhrifum frá um-
hverfinu. Umbúðirnar eru fallegar
og þær koma með svampi og spegli
og fara mjög vel í veski, buddu eða
rassvasa.