blaðið - 08.07.2006, Side 2
2IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðið
BlaÖiÖ/Frikki
Heilsar og kveður Tilkynnt var um að Sigurjón M. Egilsson tæki við starfi ritstjóra Blaðsins í gær. Sigurjón starfaði áður sem frétta-
stjóri Fréttablaðsins um árabil og lét hann af störfum þar í vikunni. Ásgeir Sverrisson, sem starfað hefur sem ritstjóri Blaðsins frá því í febrúar,
kvaddi starfsfólk Blaðsins i gær.„Ég skýrði stjórn Blaðsins frá þvi i byrjun maímánaðar að ég hefði ákveðið að segja upp starfi ritstjóra. Ég vona
að ég Ijúgi engu þegar ég segi að þetta hafi ekki verið stjórninni sérstök gleðifrétt. Ákveðið var að ég myndi
sinna starfi ritstjóra þar til nýr maður hefði verið fundinn. Ég vil leggja áherslu á að ekki var um neina erfiðleika eða leiðindi að ræða í samskipt-
um mínum og eigenda Blaðsins. Öðru nær, þau samskipti hafa verið með miklum ágætum. fg óska Blaðinu og starfsfólki þess velfarnaðar."
Blaðið þakkar Ásgeiri sömuleiðis samstarfið.
Helmingi hærri iðgjöld
Kona missti systur sína úr krabbameini og þarf að borga helmingi
hærri iðgjöld. Forstjóri KB-líf segir verklagsreglur ávallt eins.
blaöiö=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
12 kíló af am-
fetamíni
Tveir menn frá Litháen voru hand-
teknir á Seyðisfirði með tólf kíló
af amfetamíni falið í bifreið sinni
í Norrænu. Mun þetta vera mesta
magn af fíkniefnum sem tollgæslan
hefur lagt hald á, á Seyðisfirði. Fíkni-
efnin fundust fyrir tilstuðlan tollgæsl-
unnar í Reykjavík, á Keflavíkurflug-
velli og á Seyðisfirði. Þetta er í annað
skipti á árinu sem Litháar er teknir
með amfetamín á Seyðisfirði en áður
hafa menn af sama uppruna verið
teknir með talsvert magn af amfet-
amíni í Leifsstöð.
Létust í
mótmælum
Tveir lögreglumenn létu lífið í El
Salvador eftir að lögreglu og stúd-
entum lenti saman í mótmælum
vegna of hás miðaverðs í strætis-
vagna. Minnst ío lögreglumenn
særðust í óeirðunum sem brutust
út þegar lögreglumenn hófu að
nota táragas gegn stúdentunum í
höfuðborginni San Salvador. Mót-
mælendur brugðust við með því að
hefja skothríð á lögreglumenn og
eyðileggja lögreglubíla. Yfir 20 stúd-
entar voru handteknir en ekki bár-
ust fregnir af því hvort dauðsfall
hefði orðið í röðum mótmælenda.
Eftir Val Grettisson
Systir Sigríðar Þormar, verslunarkonu,
þarf að borga helmingi hærra iðgjald
fyrir sjúkdómatryggingu vegna þess
að systir hennar hafði greinst með
krabbamein í ristli. Systir hennar
lést fyrir tveimur árum og þá ákvað
Sigríður að byrgja brunninn og sækja
um sjúkdómatryggingu. Hún segir að
hún hafi fengið bréf þess efnis að hún
yrði að borga þrettán þúsund krónum
meira fyrir trygginguna vegna veik-
inda systur sinnar.
Örn Gústafsson hjá KB-líf, sem var
Alþjóðlega tryggingafélagið, segir að
eldki sé farið í manngreinaálit í svona
málum. Hann segir að allir séu settir
inn í líkindareikni sem baktryggj-
endur útvega þeim og farið er eftir
þeim niðurstöðum sem koma út úr
forritinu.
Hversu langt skal ganga?
„Ég var rosalega reið út af þessu,“ segir
Sigríður en samkvæmt henni mun
krabbamein ekki vera arfgengt í fjöl-
skyldunni og bendir á að báðir for-
eldrar hennar séu langlíf og ekkert
sem bendir til arfgengra sjúkdóma.
Samkvæmt úrskurði Persónu-
verndar á síðasta ári er ekki leyfilegt
að afla upplýsinga um þriðja aðila svo
sem systur eða foreldra. Sigríður gaf
upplýsingarnar af fúsum og frjálsum
vilja og segist ekki hafa viljað leyna
neinu enda bjóst hún ekki við því að
þetta yrði niðurstaðan.
Sigríður var líftryggð áður en systir
hennar veiktist og brá á það ráð að
hækka þá tryggingu vegnaþess að hún
gat ekki fengið sjúkdómatryggingu.
Sigríður segist reið yfir því að
hún geti ekki fengið tryggingu á eðli-
legum forsendum vegna þess að systir
hennar þjáðist af krabbameini og er
hún gáttuð yfir þessu.
„Það er alveg hroðalegt að þetta
skuli vera svona,“ segir hún og spyr
hversu langt þetta eigi að ganga.
Hvort barnið hennar þurfi þá einnig
að borga hærra iðgjald vegna þess að
systir mömmu hennar veiktist?
Skilur tilfinningaþrungann
Til þess að finna út hvort fólk sé
tryggingahæft þarf að renna öllum
upplýsingum í gegnum ákveðið lík-
indareikniforrit samkvæmt Erni
Gústafssyni, forstjóra KB-líf. Hann
segir að forritið sé komið frá Swiss Re
sem er eitt stærsta tryggingafélag í ver-
öldinni. Það félag endurtryggir KB-lif.
Örn getur ekki tjáð sig um einstök til-
felli en segir að erfitt sé að svara mál-
inu. Aðspurður hvort nákomnir ætt-
ingjar eigi erfiðara með að tryggja sig
heldur en næsti maður segir Örn að
stundum sé svo en þá er um að ræða
arfgenga sjúkdóma.
Að sögn Arnar fara þeir eftir
settum reglum sem flest öll trygginga-
félög veraldar fara eftir. Hann segir
þessar reglur afar sambærilegar hvert
sem litið er.
Hann tekur fram að þetta sé nötur-
legur veruleiki og skilur tilfinninga-
þrunga fólks sem lendir í aðstæðum
þar sem þau geta ekki tryggt sig af
einhverjum ástæðum.
Eins reglur í allri veröldinni
Örn tekur fram að ef einstaklingum
er hafnað um tryggingu þá beri trygg-
ingafélaginu að upplýsa viðkomandi
um ástæðuna. Hann segir að það
sé að sjálfsögðu dæmi fyrir því að
fólk verði afar tilfinningalegt vegna
þeirra mála og er þeim þá undan-
tekningalaust bent á að þau geti beint
málum sínum til úrskurðarnefndar
vátryggingamála og fengið úr skorið
hvort um réttmætt mat var að ræða
eða ekki.
Örn ítrekar að þeir fari eftir settum
reglum og stöðluðum verklagsreglum
sem gildi út um allan heim og að Is-
land sé ekki öðruvísi í því tilliti.
valur@bladid.net
Gæsluvarðhald
vegna skotárásar
Tveir menn voru úrskurðaðir í
áframhaldandi gæsluvarðhald
í gær en einum var sleppt í
tengslum við rannsókn á skot-
árás í Hafnarfirði í lok júní.
Annar mannanna er grunaður
um að hafa hent eldsprengju
að sama húsnæði sólarhring
síðar. Forsaga málsins er sú að
tveimur skotum var hleypt af
inni í íbúðarhverfi í Hafnarfirði
að morgni 21. júní. Tildrög árás-
arinnar eru talin mega rekja til
ósættis þriggja manna sem voru
innandyra þegar skotárásin var
gerð. Það ósætti endaði í fyrr-
nefndri skotárás.
Átta handteknir
I kjölfar árásarinnar hefur lög-
reglan leitað á heimilum viðkom-
andi auk þess sem leitað var í bif-
reiðum. Við leitina hafa fundist
ýmisleg vopn, til dæmis kylfur,
hnúajárn og skotfæri, sem voru
haldlögð af lögreglu. Innan við
sólarhring eftir skotárásina voru
átta einstaklingar handteknir,
þrjár konur og fimm karlmenn.
Fimm hinna handteknu var
sleppt að skýrslutökum loknum
en þrír úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald. Mennirnir tveir sem voru
úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald munu sitja inni
til 29. ágúst 2006. Rannsókn
málsins stendur enn yfir.
Skelkáður í
læknisskoðun
Tígrisdýraungi gengst undir
læknisskoðun hjá dýralæknum
í Smithsonian-dýragarðinum í
Washington í gær. Ekki er að
sjá að unganum lítist nokkuð
á blikuna, enda þykir yngri
kynslóðinni sjaldnast skemmti-
legt að gangast undir læknis
hendur. Þrír tígrisdýraungar
fæddust í dýragarðinum í lok
maímánaðar og eru þeir því
orðnir sex vikna gamlir.
Údýr sumarblóm
20% afsláttur af trjám og runnum
50% afsláttur af gjafavöru
Betrí plöntur á góðu verði
Tilboð alla daga
0 HdðskM0 Léttskýjaðj^At'Skýjað Alskýjað'^^ Rignlng,lltilsháttar4^Rigning-^Súld •- SnJókoma<tfpK SlyddaífeisSnjúél s
iinjjjlj'
Algarve 24
Amsterdam 21
Barcelona 28
Berlín 22
Chicago 20
Dublin 17
Frankfurt 20
Glasgow 14
Hamborg 22
Helsinki 27
Kaupmannahöfn 22
London 20
Madrid 32
Mallorka 30
Montreai 22
NewYork 22
Orlando 22
Osló 19
París 23
Stokkhólmur 29
Vín 23
Þórshöfn 12
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu