blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 17
blaðiö LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006
SÖNN SAKAMÁL I 17
HÓTEL BORQ
Hef ur þú kj ark
til að drepa mie?
iinnTTA ■ p#»t mnnn í nrui/ mvfítr JL
HROTTALEGT MORÐ I REYKJAVIK
Aðfaranótt 1. apríl árið 1979 kom Hilmar
Jónsson heim til sín ásamt vinkonu sinni
Ásdísi Sigurðardóttur eftir að þau höfðu
verið á dansleik á Hótel Borg. Þau voru
bæði við skál. Hjónin Sigurður Sigurðsson
og Ólöf Gunnarsdóttir bjuggu á sömu hæð
og Hilmar að Hverfisgötu í Reykjavík en
þau höfðu verið að skemmta sér á Hótel
Esju sama kvöld. Ólöf brá sér á sameigin-
lega snyrtingu sem var í húsinu. Hún hitti
Hilmar á ganginum og þau tóku tal saman.
Þá kom Sigurður fram og ásakaði þau um
að hafa átt stefnumót á snyrtingunni. Eftir
nokkur orðaskipti fór Ólöf inn í búð þeirra
hjóna og tók á sig náðir. Hið sama gerði Sig-
urður skömmu síðar.
Hilmar og Ásdís sváfu ekki um nóttina.
Um morguninn settist Hilmar að drykkju
með Sigurði og þegar búið var að tæma eina
vermóðsflösku fór Hilmar og sótti aðra.
Þegar hér var komið sögu voru Hilmar og
Sigurður orðnir vel drukknir og Ólöf sem
hafði slegist í hópinn var talsvert ölvuð. Sig-
urður bar á konu sína að hún héldi fram hjá
honum. Ólöf sagðist seinna svo frá að í rifr-
ildi hefði hún sagt að hún gæti drepið Sig-
urð. Sigurður ýtti þá að henni hníf sem lá á
sófaborðinu og sagði: „Gerðu það þá!“ Hún
svaraði að það gæti hún aldrei gert. Hún
gekk síðan út og fór til Ásdísar sem var í
íbúð Hilmars.
„Gakktu alveg frá mér"
Eftir brottför hennar gekk Sigurður inn
í eldhús en kom aftur, beindi orðum sínum
að Hilmari, meðan hann horfði á hann ein-
kennilegu augnaráði, og sagði: „En þú, ungi
maður, hefur þú kjark til að drepa mig?“
Hilmar sagði seinna að hann hefði ekki
vitað fyrr en hann stóð í eldhúsinu með
hnífinn í hendinni. Hann stakk hnífnum
í kvið Sigurðar og risti upp úr. Sigurður
laut fram og féll síðan á gólfið. Þar
sem hann lá í sárum sínum sagði
hann: „Þetta er búið, gakktu alveg
frá mér“. Við þessi orð beygði
Hilmar sig niður og skar Sigurð
á háls.
Þegar Hilmar hafði áttað sig
á því hvað hann hafði gert var
„Hann stakk hnífnum í kvið
Sigurðar og risti upp úr *
fyrsta verk hans að þvo sér um hendurnar.
Að því loknu gekk hann yfir í íbúð sína og
sagði Ásdísi og Ólöfu frá verknaðinum. Þær
gengu með honum yfir í íbúð Sigurðar og
sáu líkið á eldhúsgólfinu. Hilmar og Ólöf
ræddu um það að koma líkinu í bíl Hilm-
ars og losa sig þannig við það. Ásdís taldi
hins vegar best að segja sannleikann. Nið-
urstaðan varð sú að Hilmar fór yfir í næsta
hús og hringdi þaðan því enginn sími var
í húsinu. Hann hringdi í þrjá einstaklinga
sér nákomna og sagði þeim hvað hann
hefði gert. Skömmu síðar hringdi hann
aftur í tvo vini sína. Annar þeirra lét
lögreglu vita. Hún fór þegar á vett-
vang og Hilmar viðurkenndi að
hafa orðið Sigurði að bana.
Geðrannsókn og dómur
Hilmar var sendur í geðrann-
sókn. í niðurstöðum hennar
sagði meðal annars að Hilmar væri ekki
haldinn geðveiki heldur persónuleika-
truflun sem mætti meðal annars rekja
til rótleysis í bernsku sem hafði leitt til lé-
legs námsárangurs: „Síðan hefur Hilmar
alið með sér stöðuga minnimáttarkennd
gagnvart öllu námi en í eðli sínu er hann
framagjarn og hefur vissa þörf fyrir að
skara fram úr... Viðbrögð Hilmars hinn 1.
apríl síðastliðinn verða að mörgu leyti skilj-
anleg ef haft er í huga hversu mikið hann
þarf að sýnast, duga og þora að gera hluti
til þess að bæla niður minnimáttarkennd
sína. Dómgreind hans var ennfremur skert
af svefnleysi og drykkju. Setning sú, sem
samkvæmt málsskjölum virðist hafa orðið
kveikjan að viðbrögðum hans, fól í sér
ásökun um ódugnað og heigulshátt. Inni-
hald ræðunnar var áskorun, hann varð að
sýnast og geta. Ætla má að viðbrögð hans
hefðu orðið önnur ef skipun eða beiðni
hefði falist í innihaldi ræðunnar“.
í sakadómi Reykjavíkur var Hilmar
dæmdur í sextán ára fangelsi og staðfesti
Hæstiréttur dóminn.
NÖFNUM I GREININNI HEFUR VERIÐ BREYTT.
Gleðskapur á Borginni hafði afdrikaríkar afleiðingar.