blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 blaðið tilveran tilveran@bladid.net Halldóra hugsar upphátt “Viö auðvitað þóttumst geta rakið öli ósköp- in rakleiðis til karlanna og fríað okkur alfarið af samansafni sorpsins.” Þrasað um þrifin á heimilinu Eg sat á dögunum með tveimur samstarfskonum mínum í eldhúsi vinnustaðarins þegar upp hófust samræður um um- gengni og meintan subbuskap karl- þjóðarinnar. Við auðvitað þóttumst geta rakið öll ósköpin rakleiðis til karl- anna og fríað okkur alfarið af sam- ansafni sorpsins, þess fullvissar að við værum náttúrulega miklu penni og snyrtilegri en þeir. Nema hvað... talið barst að karlmönnum almennt og þær fóru báðar að beina spjótum að sínum mönnum, reyndar fyrrver- andi einnar, en núverandi hinnar. Sú einhleypa sagðist hafa fengið nóg af berserksgangi fyrrverandi á heim- ilinu og hefði fyrir rest sýnt honum reisupassann. Hann hafði verið algjör- lega ófær um að skúra, hvað þá heldur vinda tusku, og hefði ómögulega getað tekið til hendinni á heimilinu, henni til mikils ama. Eftir að hafa séð ein um þrifin ákvað hún að snúa vörn í sókn og steinhætta allri tiltekt með von um viðbrögð mannsins. Ekkert gerðist og á endanum var subbugang- urinn orðinn þvílíkur að Sorpa hefði fengið ansi margt fyrir sinn snúð hefðu fulltrúar þaðan mætt á svæðið. Þegar hann fékk loksins tiltektarflug- una í hausinn og tók á rás með Ajax- ið gerði hann það svo hryllilega illa að mín var komin á fremsta hlunn með að biðja hann vinsamlegast um að sniðganga tiltektina algjörlega. Og ekki var verkið bara illa unnið heldur var allt þvottaefni uppurið eftir þvotta- daginn. Maðurinn náttúrulega hélt að það væri í himnalagi að nota heilu lítrana af efninu svo að ilmurinn yrði sem mestur og mátti prísa sig sælan með að falla hreinlega ekki í yfirlið í sápukúlulandinu eftir allt erfiðið. En jæja, eftir að hafa sammælst um ákveðna „fötlun" karla þegar kemur að tiltekt bætti sú sem er í föstu sam- bandi við að hún hefði nú bara gert sér lítið fyrir og bent manninum á að hér væri sko ekkert elsku mamma! Ef hann ekki gæti sinnt heimilis- verkunum hefði hún akkúrat engan áhuga á að búa með honum og setti það sem skilyrði fyrir samvistum að hann skyldi leita að heimilishjálp sem kæmi einu sinni í viku til þess að þrífa. Og hann skyldi borga! Hún var ekkert að tvínóna við hlutina og sagðist stolt myndu halda þessu til streitu. Ef hann keypti ekki út heim- ilishjálp, eða skrúbbaði allt sjálfur, myndi hún pakka niður og fara. Það rann allt í einu upp fyrir mér að við höfðum setið þarna í dágóðan tíma og vælt yfir einhverju sem við fáum ekki breytt. Karlar eru frá mars - konur frá venus. Þannig er það bara og það þýðir ekki að væla endalaust yfir því. I þessum tilvikum alla vega var það nú bara svoleiðis að þegar mennirnir höfðu loksins lagt hönd á plóg voru þær ekki par hrifnar og svimuðu sveittar um gólfin í umferð tvö vegna illa unna verka mannsins. Það hefði kannski bara mátt spara tíma, rifrildi og þessi líka ógrynni hreinsiefnis ef þær hefðu bara látið þá lönd og leið í tiltektarliðinu og leyft þeim. aá glápa á imbann............ halldora@bladid. net HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ Hvernig gildismat hefurðu? Það er mikilvægt að vera með heilbrigt gildismat, sérstaklega þegar þú átt í samskiptum við annað fólk. Gildismatið segir til um hvernig þú kemur fram við annað fólk, hvað þú leyfir þér og hvernig þú hegðar þér. Kemurðu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig? Hagar þú þér kannski nákvæmlega eins og þú vilt, sama hverjar afleiðingarnar verða? Hvernig gildismat hefur þú? Taktu þetta próf og athugaðu hvort þú lærir eitthvað um sjálfa/n þig! Nágranni þinn biður þig um að vökva blómin þeirra á meðan þau eru í fríi. Hvað gerir þú þegar þú ferð heim til þeirra? a) Slaka á í heita pottinum, borða matinn í ísskápnum, athuga hvort ég finn eitthvað persónulegt og reyni svo að muna eftir blómunum. b) Lít aðeins í kringum mig en fæ samviskubit og vökva blómin. c) Vökva blómin reglulega. Rétt áður en þau koma þríf ég íbúðina laus- lega og fylli ísskápinn af mat. d) Leita út um allt hús af dag- bókum þeirra eða öðru persónulegu. Ef ekkert finnst þá vökva ég blómin. 2Þú ferð út að borða á róm- antískum en afskekktum veitingastað. Á staðnum sérðu maka vinkonu þinnar og hann snæðir með gullfallegri konu. Hvernig bregstu við? a) Ég læt hann vita að ég hafi séð hann og hringi beint í vinkonu mfna. Kannski vill hún sjá hann með eigin augum. b) Læt sem ég sjái hann ekki og hugsa aldrei aftur um atvikið. Þetta kemur mér ekki við. c) Hugsa málið en sennilegast hringi ég í vinkonuna um kvöldið og segi henni hvað ég sá. d) Hlæ innra með mér enda er þetta gott á hana. Teldu saman stigin: 1. a) 4 b) 2 c) 1 d)3 2. a)1 b) 3 02 d)4 3. a) 3 b)1 c) 4 d) 2 4. a) 2 b)4 01 d) 3 5. a) 1 b) 2 03 d)4 6. a) 3 b) 1 02 d) 4 7. a)4 b) 3 02 d) 1 8. a) 2 b) 4 0 3 d) 1 Þú ert í heimsókn hjá vinafólki þínu og brýtur óvart fjarstýrða bílskúrs- opnarann. Hvað gerirðu? a) Reyniaðsmyglamérinníhúsið aftur, án þess að nokkur taki eftir því að ég hafi verið í bílskúrnum. b) Fer samstundis, segi frá því hvað kom fyrir og biðst afsökunar. Síðan tek ég ekki annað í mál en að kaupa nýjan opnara og kaupi þá tæki sem er mikið dýrara og tæknilegra. c) Segi vinafólki mínu að ég hafi séð son þeirra eyðileggja tækið með skóflu. Ég veit að strákurinn er oft til vandræða og þau munu því hiklaust trúa mér. d) Ég kaupi vitanlega nýjan opnara. 4Þú eyðir óvart skjölum úr tölvu vinnufélaga þíns. Hann gæti aldrei komist að því hver það var sem eyddi skjalinu. Hvað gerir þú? a) Efhannspyrþásegiéghonum að það hafi verið ég, annars ekki. S) Ég þykist ekkert kannast við þetta næst þegar ég hitti hann. Saman ræðum við um hvað sumir geta verið ósvífnir að láta ekki vita þegar svona lagað gerist. c) Leita hann samstundis uppi, segi honum hvað gerðist og biðst margfaldlega afsökunar. d) Forðast vinnufélagann þar til þetta er gleymt. 0-9 stig: Það er ekki annað hægt að segja en að þú sért meö mjög gott gildísmat. Þú kemur vel fram við alla og vilt láta koma vel fram við þig. Ef einhver þarfnast aðstoðar þá leggur þú hiklaust fram hjálparhönd og gott betur. Vmir þinir og ættingjar eiga góðan vin I þér og þeir koma fram við þig af viröingu. Haltu áfram á sömu braut! 10-17 stig: Gildismat þitt er heilbrigt enda kemurðu vei fram við aðra. Þú berð virðingu fyrir samferðarfölki þinu og kýst því að gera það sem rétt er, oftast nær. Þú átt yfirleitt ekki (erfiðleikum með að ákveða hvað skal gera í tilteknum aðstæðum og færð sjaldan samviskubit. 5Þú sérð par rífast harkalega í Kringlunni og maðurinn virðist líklegur til að beita ofbeldi. Hvað gerir þú? a) Fylgist með þeim í dágóða stund og skerst í leikinn ef maður- inn fer að beita ofbeldi. b) Fylgist með þeim og læt lög- reglu vita ef eitthvað gerist. c) Ég skipti mér ekki af þessu, þetta er þeirra einkamál. d) Ég skipti mér ekki af þessu, konan á þetta sennilega skilið hvort sem er. 6Á rölti þínum um Laugaveg- inn hittirðu hóp útlendinga sem þurfa á leiðbeiningum að halda. Hvað gerir þú? a) Vísa þeim leiðina og forða mér hið fyrsta áður en fleiri spurningar vakna. b) Rölti með þeim þangað sem þau eru að fara, þannig að þau vill- ist ekki. c) Gef þeim nákvæmar leiðbein- ingar sem auðvelt er að rata eftir. d) Þykist ekki tala ensku eða skilja það sem þau segja. Þú missir nýju fartölvuna þína í gólfið og hún eyði- leggst. Ábyrgðin gildir ekki ef þú segist hafa misst hana í gólfið. Hvað gerir þú? a) Eg fer í búðina þar sem tölvan 18-25 stig: Gildismat þitt virðist helst snúast um sjálfa/n þig og hvað kemur þér best. Þú vilt komast I gegnum llfið á sem auðveldastan hátt og það skiptir ekki máli jjótt þú stlgir á nokkra hausa á leiðinni. Þér finnst sjálfsagt að aðrir sýni þér virðingu og aðstoði þig þegar þú þarft á að halda en þú kýst aö sýna ekki sömu kurteisi. Kannski er kominn tfmi til þess að þú hugsir þinn gang og komir betur fram við samferðamenn þína. 25-32 stig: Fæstir myndu segja að gildismat þitt sé gott enda virðist þú ekki flnna til samkenndar við náunga þinn. Það er gott og blessað að lifa (slnum eigin heimi en allir hinir búa I samfélagi og samfélag sam- anstendur af einstaklingum. Kannski að þú hefðir gott af því að kynnast nokkrum einstaklingum sem láta sig llf annarra varða. Prófaðu að vinna sjálf- boðaliðavinnu með heimilislausum, geðsjúkum eða öðrum minnihlutahópum og hver veit nema viðhorf þitt breytist. Þú hefðir án efa gott af þvl! var keypt, segi að hún hafi ekki virkað frá byrjun og heimta nýja tölvu, helmingi dýrari. b) Ég bý til skothelda sögu og fæ tölvuna borgaða. c) Ég segi sannleikann en reyni samt sem áður að fá einhverjar bætur. d) Ég tek fulla ábyrgð enda algjör- lega mér að kenna. Kaupi nýja tölvu án þess að blanda tryggingarfélag- inu í málið. 8Þú verslar alltaf í sömu hverfisversluninni og þekkir flesta viðskiptavinina. Dag einn sérðu einstæðu W'V' móðirina úr næsta húsi, sem á fimm börn, stela brauðstykki og mjólk. Hvernig bregstu við? a) Ég ákveð að skipta mér ekkert afþessu. b) Hringi tafarlaust í lögregluna enda á hún engan rétt á að stela frekar en annar. c) Læt verslunarstjórann vita og leyfi honum að ákvarða hvað skal gera. d) Égkannekkiviðaðskiptamér af þessu. Framvegis set ég fullan inn- kaupapoka með nauðsynjar fyrir framan dyrnar hennar vikulega.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.