blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 35
blaöiö LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006
35
deiglan
deiglan@bladid.net
Alþjóðlegt orgelsumar
Bine Katrine Bryndorf, prófessor i orgelleik viö Konunglega
konservatoríið i Kaupmannahöfn, leikur á hádegistónleik-
um i Hallgrímskirkju í dag kl. 12. Á efniskránni eru verk
eftir J.S. Bach, Purcell og Buxtehude.
■■
BORN
Þriðjudaginn 1. ágúst
blaöió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Magnús Gauti Hauksson • Sinu 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@ybLis
Kaoin L. Rún'arsdóttir • Sími 610 3727 • Gsm 856 4250 • Kata@bladid.n9r
Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju
Fimmtu og síðustu Sumartón-
leikar í Akureyrarkirkju þetta
sumarið verða haldnir á morgun
klukkan 17:00. Þessir tónleikar eru
þeir eitt hundruðustu í tónleikaröð-
inni í Akureyrarkirkju frá upphafi
tónleikahaldsins frá árinu 1987.
Flytjendur verða upphafsmenn
tónleikanna, Margrét Bóasdóttir
sópran og Björn Steinar Sólbergs-
son orgelleikari en auk þeirra leikur
Nicole Vala Cariglia á selló. Á efn-
iskrá verða verk eftir J.S. Bach og
tónverk eftir íslensk tónskáld svo
sem Þorkel Sigurbjörnsson, Jón
Hlöðver Áskelsson, Smára Ólason,
Elínu Gunnlaugsdóttur, Hildigunni
Rúnarsdóttur og Pál ísólfsson en
iau verk verða gefin út á geisladiski
iegar líða tekur á haustið.
Tónleikarnir standa í klukku-
stund án hlés og er aðgangur
ókeypis.
ðdýrar plöntur fyrir
sumarbústaðinn
50% afsláttur!!!
Rýmingasala á gjafavörum úr blómabúð
Betri plöntur á góðu verði
Tilboð alla daga
F
Idag opnar sýning í Hafnarborg
í Hafnarfirði sem nefnist Kim-
onóar. Það eru listakonurnar Els-
beth Nusser-Lampe, Gerður Guð-
mundsdóttir og Pascale Goldenberg
sem standa fyrir sýningunni en þær
sýna einnig í Ráðhúsi Reykjavíkur.
„Út frá áhrifum frá kímonóum
gerðum við svona platkímonóa en
við vinnum þetta hver á sinn hátt.
Pascale er náttúrulega búin að borða
svo mikið af ostrum og hún notar
skeljar eða hrúðurkarla í verkið sitt.
Hún er líka alltaf að nýta sér afganga
sem aðrir hafa hent,“ segir Gerður
Guðmundsdóttir, textíllistakona.
I verkinu, sem Pascale sýnir i
Hafnarborg, leitar hún þannig til
hafsins og mótar munstur með hrúð-
urkörlum, sem leika hljómfagra sjáv-
artónlist við minnstu hreyfingu.
„Ég er meira sjálf í ullinni, íslensku
ullinni. Alveg siðan mér var boðið
að halda mína fyrstu sýningu í
Þýskalandi þá hef ég haldið mig við
ullina. Ég fékk svona kamba hjá lang-
ömmu mannsins míns sem ég nota
en þeir eru orðnir mjög viðkvæmir.
Ég er því farin að vinna hægt og ró-
lega. Ég bý til voðir og síðan þrykki
ég þetta, sauma og sauma í marga
mánuði og hengi upp,“ segir Gerður.
Fyrir utan sýningarnar í Ráðhús-
inu og Hafnarborg hafa listakon-
urnar tekið höndum saman og halda
nokkur námskeið. „Ég ætlaði alltaf
að halda námskeið og ég fékk þær til
þess. Þær ætla þá allar að kenna eitt-
hvað nýtt og spennandi sem hefur
ekki verið kennt hérna heima, ég
plataði þær til þess,“ segir Gerður.
Sýningin í Hafnarborg stendur til
15. ágúst á opnunartíma listasafns-
ins, klukkan 11-17 alla daga nema
þriðjudaga, en á fimmtudögum er
það opið til klukkan 21:00.
Hvað
að geras
LAUGARDAGURINN 29. JÚLÍ
KL. 12:00 TÓNLIST
Friðrik Vignir Stefánsson organisti
heldur tónleika i Grundarfjarðar-
kirkju laugardaginn 29. júli kl. 12.
Friðrik spilar verk eftir J.S. Bach,
Bruhns og Madsen. Kveðjutónleikar
eftir 17 ár sem organisti og kórstjóri
í Grundarfirði.
KL. 20:00 TÓNLIST
Reykholthshátíð 2006. Trio Polskie
flytja verk eftir Haydn, Beethoven,
Brahms og Shostakovich. Trióið
skipa Tomasz Bartoszek, Sebastian
Gugala og Arkadiusz Dobrowoloski.
KL. 20:30 TÓNUST
Tónleikar með Bela. Bela gaf nýverið
út plötuna Hole and Corner og heldur
af þvi tilefni tónleika i Ketilhúsinu á
Akureyri. Dúettinn Red Cup (Konni úr
Tenderfoot) sér um upphitun.
KL. 21:00TÓNUST
Belle and Sebastian og Emilíana Torr-
ini spila á tónleikum í Bræðslunni i
Borgarfirði Eystri.
KL. 00:00 TÓNUST
Dúettinn Sessý og Sjonni ætlar að
halda uppi stuðinu á Paddy’s Reykja-
nesbæ í kvöld. Stuðtónlist úr öllum
áttum enda eru Sessý og Sjonni
annálaðir stuðboltar.
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ
KL. 15:00 - SÝNING
Out of Office. Sýning Steinunnar
Knútsdóttur og llmar Stefánsdóttur i
sýningarsal Norræna hússins.
KL. 16:30 TÓNLIST '
Lokatónleikar Reykholtshátíðar.
Hljómsveitin Virtuosi di Praga flytur
meðal annars verk eftir Dvorák,
Jancék og Samuel Barber. Stjórnandi
er Oldrich Vlcek.
KL. 20:45 TÓNLIST
Sigur Rós leikur á útitónleikum á
Klambratúni f Reykjavik, en á þeim
tónleikum hitar hljómsveitin Amiina
upp.
KL. 21:00 TÓNLIST
Tónleikar með Blue brasil og Hróifi
Vagnssyni á Kringlukránni.
Sumartónleikar
á Sólheimum
Sólheimar Ellen Kristjánsdóttir
og Eyþór Gunnarsson flytja mörg
af þekktustu lögum Ellenar á
Sólheimum
{ dag fara fram níundu og næst-
síðustu sumartónleikarnir á Sól-
heimum í ár. Að þessu sinni er það
söngkonan Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson sem flytja mörg
af jiekktustu lögum Ellenar.
„Við byrjuðum með svona menn-
ingarveislu á Sólheimum núna í
sumar og það hefur verið dagskrá í
allan júní og allan júlí. Þetta hefur
gefist rosalega vei og stefnt er að því
að endurtaka leikinn að ári,“ segir
Þóra Marteinsdóttir, umsjónar-
maður sumartónleikanna.
Þóra segir að tónleikaröðin hafi
farið rólega af stað en áheyrendum
hafi fjölgað með hverjum tónleikum.
Það hefur mátt heyra margvíslegan
sambræðing á sumartónleikum
á Sólheimum og má þar nefna
djass, klassík, slagverkstónleika og
spunatónleika.
Ellen og Eyþór þarf varla að
kynna. Hún hefur verið ein ástsæl-
asta söngkona íslands um margra
ára skeið og Eyþór hefur starfað sem
hljóðfæraleikari í langan tíma.
Tónleikarnir hefjast klukkan 13:30
og er aðgangur ókeypis.