blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 23

blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 23
blaðið LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 23 matur@bladid.net Sveppir í umslagi Ég held að sveppir séu með því vinsælasta sem menn hafa með grill- uðum mat. Algengustu aðferðirnar eru að þræða þá upp á grillspjótin eða að kaupa nógu stóra sveppi svo hægt sé að grilla þá án þess að þeir detti niður á milli grindarinnar á grillinu. Þá þarf að nota stóra flúða- sveppi eða Portobellosveppi sem eru reyndar alveg meiriháttar á grillið. Portobellosveppir eru stærstu svepp- irnir sem hægt er að kaupa í versl- unum í dag og því alveg tilvaldir í þetta. Það er hægt að marinera þá í hvítlauk, olíu og ferskum krydd- jurtum og grilla þá síðan eins og steikur. Ef menn vilja nota öðruvísi sveppi, eins og ostrusveppi, shiitake- sveppi eða aðra sveppi þá er þessi að- ferð sem ég ætla að fjalla um í dag algjörlega meiriháttar og það er að grilla sveppi í umslagi úr álpappír. Þessi aðferð er einnig tilvalin í útileg- una því maður er búinn að blanda öllu saman í álpappírinn áður en lagt er af stað. Síðan er þessu bara fleygt á grillið í ca ío mín, fer eftir hve stórt grillið er. Sveppirnir eru tilbúnir þegar umslagið hefur blásið vel út og það heyrist krauma vel inní. Þá er bara skorið gat á umslagið og allt er tilbúið. Það þarf bara að passa sig á að þegar gert er gat þá brýst gufan út og getur verið mjög heit. Einnig er mikilvægt að passa að loka umslaginu afar vel með því að snúa upp á allan hringinn því við viljum alls ekki að umslagið opnist í miðri eldun. Þegar verið er að raða í umslagið þá er um að gera að nota hugmyndaflugið því að það er enda- laust hægt að setja í þetta. Svepp- irnir eru sneiddir gróft niður. Síðan er til dæmis hægt að setja fínt sax- aðan lauk, hvítlauk, timiangreinar eða rósmaríngrein í umslagið. Þá er mjög gott að setja ólífur, sólþurrk- aða tómata, paprikustrimla og litla kokkteiltómata svo eitthvað sé nefnt. Síðan er að sjálfsögðu skylda að setja smá ólífuolíu eða smjör með ásamt salti og pipar, allt klárt! Ég læt fylgja með eina hugmynd af svona umslagi. GOÐA SKAPIÐ B6-vítamín, C-vitamín, fólínsýra og sink eru allt næringarefni sem eru ómissandi fyrir góða skapið. Þessi næringarefni eru nauðsynleg til að búa til serótónín úr trýptófan sem má finna í matvælum eins og kjöti, fiski, baunum og linsubaunir. Serótónin er efnið sem stjórnar skapi, svefni og matarlyst. . m . •aw Fyrir tvo sem meðlæti með kjöti eða fiski. Allt blar f eina hí á álpapi endar lc an, sett pönnu < mín. Hrí lega á r 4-6 stk flúðasveppir 4-6 stk shiitakesveppir Vz laukur skorin i fína strimla Vs rauð paprika skorin í strimla 1 stk hvítiauksgeiri, fínt sax- 'í vkJS'/lL'í.. . tan Japönsk matseld ■Mg Jafnvægi Sushi er senniiega þekktasti japanski rétturinn en jap- önsk eldamennska snýst að miklu leyti um jafnvægi. Japönsk matarmenning vekur forvitni margra enda er japanskur matur einkar bragðgóður. Matur eins og tempura, sushi og sukiyaki eru oft borðaðir á veitingastöðum en færri kunna að útbúa þessa ljúf- fengu rétti heima fyrir. Auk þess eru ekki margir sem eiga fullan isskáp af japönskum vörum sem eru notaðar i eldamennsku. Margir hefðbundnir japanskir réttir endurspegla holl- ustu sem vestrænir neytendur kalla eftir. Það er sífellt auðveldara að fá hráefni í japanska matargerð hér á landi enda hefur úrval aukist töluvert, bæði í sérverslunum sem og hefðbundnum matarverslunum. Litaval skiptir máli Samkvæmt Elizabeth Andoh, höf- undi bókarinnar Washoku: Recipes from the Japanese Home Kitchen, er japanskur matur einfaldur matur sem er í næringarlegu jafnvægi. Eins segir hún að það séu 15 atriði sem eru nauðsynleg þegar elda skal jap- anska rétti. Fyrir Japana liggja þessi atriðið ljós fyrir, rétt eins og vestur- landabúar borða sterkju, grænmeti og kjöt í eina máltíð. Fimm af atrið- unum mikilvægu snúast um litaval. Ef allt er á best kosið ætti hver jap- önsk máltíð að innihalda fimm liti; rauðan, gulan, grænan, svartan og hvítan. Dökk matvæli flokkast undir svört, eins og eggaldin, vínber og shii- take sveppir. Blöndun eldunaraðferða Næstu fimm atriði lúta að bragð- laukunum en máltíðin verður að vera í jafnvægi og vera allt í senn; sölt, súr, sæt, beisk og sterk. Að sögn Elizabeth er þetta ekki eins flókið og þetta lítur út fyrir að vera. Sam- loka með túnfiski mun bæði bragðast betur og líta betur út ef tómatur er sett ofan á hana. Nokkur sæt vínber á disknum myndu svo koma jafnvægi á mál- tíðina. Síðustu fimm atriðin snúa að eldunar- aðferðum en japanskur matur er látinn krauma, er grillaður, steiktur, gufusoðinn og hrár, hvort sem það eru ávextir, grænmeti eða fiskur. Með því að blanda saman eldunaraðferðum er auðveldara að takmarka magn salts, sykurs og olíu auk þess sem matseldin verður miklu skemmtilegri. Besta leiðin til að prófa japanska matseld er að finna spennandi uppskrift og skella sér út í búð með innkaupalista. Aukþess má fjárfesta í bók Elizabeth sem fæst á Amazon.co.uk en hún hefur að geyma fjölmargar japanskar uppskriftir. Bragðbætt gufusoð Að elda með gufu og að elda með kryddjurtum eru tvær frábærar matreiðsluaðferðir sem eru ekki einasta bragðgóðar heldur einnig dásamlega næringarríkar og fullar af hollustu. En af hverju ekki að slá þessum tveimur aðferðum saman? Það er ósköp lítið annað að gera en að taka uppáhalds kryddjurtirnar eða bragðmikla ávexti og skella því í vatnssoðið undir gufusigtinu. Það er dásamlegt að blanda rósmarín og sí- trónu í soðið á kjúklingnum, myntu og appelsínu með fisknum og kú- meni þegar hrísgrjónin eru soðin. Setjið jurtirnar ekki út í vatnið fyrr en það fer að sjóða, eða á sama tíma og maturinn er settur yfir gufuna. Þannig fer mest af bragðgæðum jurt- anna í kjötið, fiskinn eða grjónin. Frábærar matreiðsluaðferðir Það er tilvalið að slá saman eldun með gufu og eldun með kryddjurtum enda eru það næringaríkar og hollar matreiðsluaðferðir.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.