blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 t>la6ið
Samgönguráðherra telur brýnt að lausn fáist í deilu flugumferðarstjóra:
Kvartað undan íslendingum
■ Raskanir á flugþjónustu ■ Fyrirspurn frá Alþjóðasamtökum flugfélaga ■ Gríðarlegur tekjumissir
Eftir Höskuld Kára Schram
Allar truflanir á þjónustu vegna
flugumferðaryfir íslenskt flugstjórn-
arsvæði geta haft alvarlegar afleið-
ingarfyrirlslendinga aðsögnSturlu
Böðvarssonar, samgönguráðherra.
Hann segir mik-
ilvægt að lausn
finnist í deilu
flugumferða-
stjóra og Flug-
málastjórnar
sem fyrst. Tugir
þúsunda flug-
véla fara um ís-
lenskt flugstjórn-
arsvæði á hverju
ári sem skapar
tekjur upp á
rúma tvo milljarða fyrir þjóðarbúið.
Islendingar geta misst hluta af þessu
haldi raskanir á flugþjónustu áfram.
Truflanir illa séðar
„Það hafa komið upp áhyggjur af
okkar hálfu. Ef okkur tekst ekki að
sinna þessari þjónustu eins og kröfur
eru um þá er við því að búast að það
veiki okkar stöðu,“ segir Sturla Böðv-
arsson, samgönguráðherra.
Um 86 þúsund flugvélar fóru
um úthafssvæði íslenska flugstjórn-
arsvæðisins í fyrra en íslendingar
sjá um flugstjórn á því svæði sam-
kvæmt samningum við Alþjóða flug-
málastofnun. I ár er gert ráð fyrir að
um íoo þúsund vélar fari um svæðið
og nema tekjur vegna þessa rúmum
tveimur milljörðum.
Að sögn Sturlu eru hvers konar
truflanir og tafir illa séðar af al-
þjóða flugmálayfirvöldum og mikil-
vægt að lslendingar standi við sinn
hluta samningsins. „Ég má ekki til
þess hugsa að missa þennan samn-
ing. Það skiptir mjög miklu máli að
Sturla
Böðvarsson
Flugumferðarstjórar
óánægðir Hafa mótmælt
kröftulega hinu nýja vakta
fyrirkomulagi.
við getum staðið við þær skyldur og
skuldbindingar sem samningurinn
leggur okkur á herðar. Allar tafir og
truflanir eru afskaplega illa séðar af
flugfélögum.“
Eins fram kom í fréttum í vikunni
jukust skyndiforföll flugumferðar-
stjóra um 65% í júnímánuði miðað
við sama mánuð í fyrra. Dæmi eru
um að mannekla hjá flugstjórnarmið-
stöð hafi valdið töfum og röskunum
á flugumferð yfir íslenskt flugstjórn-
arsvæði. Nú þegar hafa kvartanir
borist frá erlendum flugfélögum og
þá hefur Flugmálastjórn borist fyrir-
spurn frá Alþjóðasamtökum Flugfé-
laga (IATA) vegna málsins.
Deila flugumferðarstjóra og Flug-
málastjórnar vegna vaktafyrirkomu-
lags hefur nú staðið yfir í tæp sex
ár. I mars síðastliðnum ákvað Flug-
málastjórn einhliða að taka upp
nýtt vaktakerfi þrátt mikil mótmæli
flugumferðarstjóra.
Skapar fjölmörg störf
Sturla segir samninginn við Al-
Aukin veikindi valda
töfum á millilandaflugi
....1 . i9l,linnH‘"nIlftlf1t,v?fflh,tlffflllflt
Blaðið síðastliðinn þriðjudag
þjóða flugmálastofnun vera íslend-
ingum afar hagstæður og skapa
fjölmörg störf hér innanlands. „Flug-
málastjórar eiga mikið undir því
að ekki verði breytingar á þessum
samningi. Hann skiptir okkur
miklu máli og styrkir alla flug-
þjónstu innanlands.“
Samgönguráðuneytinu hefur
ekki borist kvartanir vegna málsins
og vonar Sturla að til þess komi ekki.
Hann segir mikilvægt að Flugmála-
stjórn og flugumferðarstjórar leysi
úr sínum deilumálum sjálfir og
segir ráðuneytið ekki muni skipta
sér að deilunum. „Þetta er í þessum
farvegi. Við höfum ekkert með
starfsmannahald einstakra stofn-
ana að gera. Flugumferðarstjórar og
Flugmálastjórn verða að koma sér
saman um næstu skref í þessu.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn hefur flugumferðar-
stjórn gengið eðlilega fyrir sig í vik-
unni og ekki orðið neinar tafir frá
því á sunnudaginn.
hoskuldur@bladid.net
Stríðinu mótmælt
BlaWFMki
Samtök herstöövaandstæöinga efndu til mótmæla ígær fyrir framan bandaríska sendiráöiö í Reykjavík. Tilefni mót-
mælanna var stuöningur Bandaríkjanna viö Israel vegna þeirra átaka sem nú eiga sérstað ÍLÍbanon. Um tvö hundruð
manns tóku sér stööu fyrir framan sendiráðið og héldu mótmælaspjöldum á loft. Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri-grænna var þeirra á meðal og flutti ræöu þar sem hann mótmælti hernaöinum í Líbanon..
Utanríkisráðherra: j
Hvetur til vopna-
hlés nú þegar
Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra hvetur til þess að vopnahléi
verði þegar komið á í Líbanon í
bréfi sem hún skrifaði Tzipi Livni,
utanríkisráðherra Israels. I bréfinu
lýsir Valgerður jafnframt yfir
mikilli furðu sinni og áhyggjum af
því að Israelar skutu á eftirlitsstöð
Sameinuðu þjóðanna {Líbanon.
Valgerður segir að Islendingar
skilji hversu flókið ástandið fyrir
botni Miðjarðarhafs sé, ekki síst
vegna þess að íslendingar séu
vinaþjóð Israela og hafi tekið þátt í
að vinna ísraelum viðurkenningu
á alþjóðlegum vettvangi. Það
breyti því þó ekki að hún hafi
miklar áhyggjur af stöðu mála í
Líbanon. Eyðileggingunni þar og
hörmungum þeim sem óbreyttir
borgarar hafa mátt þola verður að
ljúka, segir Valgerður.
Kalifornía:
Skaðræðishitar
Um hundrað manns hafa látist
vegna gríðarlegrar hitabylgju sem
gengið hefur yfir Kaliforníu-ríki í
Bandaríkjunum síðustu vikunar.
Á sumum svæðum í ríkinu hefur
hitastigið náð 46 gráðum. Víðs-
vegar hafa líkhús ekki undan við
að taka við fórnarlömbum hita-
bylgjunnar. Veðrið hefur einnig
haft mikil áhrif á fjórfætlinga en
um 25 þúsund kýr hafa drepist í
hitunum, eða sem nemur einu pró-
senti af öllum mjólkurkúm ríkis-
ins. Um sjöhundruð þúsund svín
hafa einnig drepist. Lýst hefur
verið yfir neyðarástandi víðsvegar
um rikið og þrátt fyrir að veður-
Hitabylgja Hátt hitastig bitnarjafnt
á mönnum og málleysingjum
fræðingar spái minni hita á næst-
unni er talið að hitastig verði víðs-
vegar um fjörutíu gráður.