blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 27

blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 27
blaðið LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 27 Hefðbundið og breskt / tískusýningu sinni árið 1988 paraði Vivienne saman hefðbundna vefnaðar- vöru við gróft ullarefni. Stiihreint / jStiihreinn jakki i I sem tekur mið ! af sögunni en er með nýstárlegri hönnun. Dúkkutíska Hönnuðir sem voru uppi í kringum 1500 sýndu hönnun sína á dúkkum i stað fyrir- sætna, eins og viðgengst í dag. „Það er tilgangslaust að reyna að sanna að fyrirsæt- ur sé meö heíla og hví þá að leggja það á sig? Eg vil frekar spara orkuna fyrir eitthvað þýðingarmeira." Helena Christensen í PANDÓRUKASSANUM ERNA KAABER LEITAR AÐ EINHVERJU SEM VIRKAR! Grimmur tískuritstjóri Ritstjóri Vogue í kvikmynd? Þegar snyrtivara sem keypt hefur verið, eftir allan undirbúningsferil- inn, virkar með jafngóðum ef ekki bara betri hætti en auglýsingarnar og söluræðan lofaði, er það eins og að vinna í happdrætti. Fullur skápur af rándýru dóti sem aldrei hefur skilað almennilegum árangri er eins og blaut tuska í andlitið á hverjum morgni - tuska sem minnir mann á hversu auðtrúa og gagnrýnislaus maður getur verið þegar hégóminn tekur völdin. Það skiptir þess vegna miklu máli fyrir sjálfstraustið að varningurinn sem maður lætur freistast að kaupa sé í flestum tilfellum brúklegur. Dagkremahringurinn Oft getur verið ágætt að vera bara íhaldssamur á vör- urnar sem notaðar eru og halda sig við það sama ár eftir ár. Það gengur þó alls ekki alltaf því til að mynda eru dagkrem oft þeirrar gerðar að eftir reglulega notkun virðast þau ekki gera neitt fyrir húð- ina lengur. Ef rakakrem skilar sér ekki strax í aukinni mýkt og raka þá er ólíklegt að ég haldi áfram að nota það. Ég er með þurra húð og get alls ekki verið án krems. Það er því oftar en ekki nauðsynlegt að skipta kremum út fyrir nýja gerð. Ef dag- kremið reynist hins vegar virkilega rakagefandi og ljómandi er gott að ánægð með í sumar er Biotherm Aguateinté litað 24 tíma krem. Ég nota venjulega ólituð dagkrem en ákvað að gefa þessu tækifæri um daginn og það gerði bara nokkuð gott gagn. Kremið er ilmefnalaust og ofnæm isprófað, sem eru lykilatriði, og það gefur góða og jafna áferð sem er mjög náttúru- MAGIQUE MATTE skella því inn í hinn reglulega dag- kremahring, þ.e. gera það að föstum kosti ásamt fleiri góðum kremum. Eitt slíkt sem ég hef notað nú í nokkrar vikur, C-Force frá Helenu Rubenstein, mun að líkindum eiga afturkvæmt í baðskápinn minn í framtíðinni. Kremið hefur frísk- andi sumarkeim og er létt og raka- gefandi á sama tíma og það heldur húðinni góðri allan daginn. Það hentar greinilega sumrinu og ég er nánast viss um að ég skipti því út strax í lok ágúst. Það má vera að ég láti nafn kremsins hafa of mikil áhrif á mig en mér finnst á köflum eins og ég sé að bera á mig sumarið og sólargeisl- ana sem tilfinnanlega hefur skort hér á landi síðustu mánuði og það getur verið ótrúlega góð tilfinning að eiga aukaskammt af C-i í bað- skápnum þegar rnaður býr á norðlægum slóðum. Biotherm Aguateinté leg. Ég þoli það ekki þegar krem verða of þétt þannig að það er eins og aukalag utan á húðinni og þegar húðin er ekki lengur lýtalaus og lifandi eins og á unglingsstúlku er það einnig pirrandi ef kremið er ekki nægilega þekjandi. Biotherm Aguateinté fer þennan fullkomna milliveg. Mér skilst að það sé vegna BIOFIT litar- efna sem eru í kreminu en þau eiga víst að aðlaga sig að náttúrulegum lit húðarinnar og jafna áferð- ina, sama hver húðgerðin er. Hvað er að baki þeirri aðferð veit ég ekki en hún skilar sér fyrir þurru húð- gerðina mína. Fullkomin froða Aðalkremið í sumar er þó Magique matte frá Lancðme, Það er varla hægt að kalla þetta krem því froða eða mús væri nær lagi. Þó ekkert í lík- ingu við hárvörur heldur meira eins og fullkomin súkkulaðimús frá þriggja stjörnu veitingahúsi. Lokaáferð á húðinni er mitt á milli þess að vera raki og púður, nánast eins og húðin geti ekki gert upp við sig hvor áferðin en betri. Áferðin er líka fullkomlega mött sem er vafa- laust ákaflega hentugt þar sem hit- inn er mikill. Liturinn dreifist full- komlega jafnt yfir andlitið og gefur sérlega frísklegt útlit. Þetta krem fær fullt hús, jafnvel þó það sé alls ekki ætlað þurri húð. Þetta krem eitt og sér bjargar andliti mínu á morgn- ana, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu þess hugtaks. HELENA RLIBINSTEIK C-GENIUS temo-aerautotot cream to- 'icriTKi-irtimutntois r ■Wtt' viUrmn C / a la vttomim* Engin unglings- stúlka lengur Annað krem sem ég hef verið C-Force frá Helenu Rubenstein Datt í skónum Ofurmódelið Naomi Campell datt þeg- ar hún var í þessum glæsilegu skóm á tískusýningu árið 1993. Nýtt hlutverk Hér má sjá hvernig Vivienne notar korsilettu en sú flík hlaut nýtt hlutverk í meöförum Vivienne. Verið er að sýna kvikmyndina The Devil Wears Prada í Banda- ríkjunum en myndin hefur fengið mikla athygli. Myndin fjallar um Miröndu Priestley sem er grimmur og kaldur ritstjóri tískublaðs. Tísku- heimurinn þykist þar kannast við Anna Wintour sem er ritstjóri tísku- blaðsins Vogue og er talið að hún sé fyrirmynd persónunnar. Vann með höfundinum Kvikmyndin er unnin eftir bók með sama heiti en höfundur bók- arinnar, Lauren Weisberger, vann eitt sinn sem persónulegur ráðgjafi Anna Wintour. Spekingar hið vestra taka því sem ótvíræðri sönnun að Miranda Priestley sé í raun Anna Wintour. f The Devil Wears Prada er Miranda tískuritstjóri sem gerir líf allra að helvíti. Hún kemur illa fram við starfsfólk sitt og lætur það hafa ósanngjörn verkefni. Myndin fjallar þó mestmegnis um aðstoðarkonu hennar sem hefur lítið vit á tísku en leggur sig í lima við að þóknast yfir- manni sínum. Djöfulinn sjálfan eða Miröndu tískuritstjóra leikur Meryl Streep en í öðrum hlutverkum eru minna þekktir leikarar eins og Anne Hathaway, Stanley Tucci og Emily Blunt. Djöfullinn sjálfur Meryl Streep leikur grimman tísku- ritstjóra en margir álíta að fyrirmynd persónunnar sé ritstjóri tískublaðsins Vogue. svanhvit@bladid.net árið 2005 gekk hún til liðs við hóp sem barðist fyrir breskum borgara- réttindum og setti á markaðinn tak- markað magn af stuttermabolum og barnabolum. Á bolunum stóð: „Ég er ekki hryðjuverkamaður, vinsam- legast handtakið mig ekki.“ Enda má segja að sjálfstæði og einfald- leiki séu helstu einkenni Vivienne og hafi alltaf verið. Hún hefur búið í Suður-London í mörg ár, hún hjólar hvert sem hún fer og hefur aldrei gefið eftir stjórnina á fyrirtæki sínu. Frumkvöðull pönksins Vivienne Westwood er einn þekktasti hönnuður heims en hún er meðal ann- ars frumkvöðull pönktískunnar. Laus klæði / hönnunar- linu Vivienne fyrir21. öld- ina setti hún söguna til hliðar en ein- blíndi frekará laus klæði.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.