blaðið - 23.08.2006, Side 18
26
4
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 blaöið
heimili
heimili@b!adid.net
góði liirðirinn
Skreytingar fyrir
barnaafmæli
Ef þú ert að fara að halda
barnaafmæli bráðlega þá er um
að gera að hafa það ofarlega
í hug hver stjarna dagsins er,
sjálft afmælisbarnið. Til að gera
hana/hann eins ánægða með
veisluna og völ er á, gæti verið
tilvalið að velja uppáhalds litinn
hans/hennar og upphafsstafinn í
nafninu og nota svo þetta tvennt
til þess að skreyta það sem
tilheyrir í góðri veislu, t.a.m kök-
una, boðskortin og veisluborðið
sjálft.
Til að gera gott betra skaltu leyfa
litlu stjörnunni þinni að taka
þátt í undirbúningnum og hafa
áhrif á útkomuna. Leyfðu henni
að koma með hugmyndir og
prófaðu að vinna úr þeim eins
vel og hægt er. Þemu sem hægt
er að vinna út frá í barnaafmæli
eru t.a.m. árstíðir, uppáhaldsdýr,
uppáhaldslitur og nafn.
Veiðiferð til
Köben
Ertu á leið til Kaupmannahafnar?
Þá gæti svo farið að þú kæmir
þar auga á einhver falleg hús-
gögn sem þig langaði að taka
með heim.
í Kaupmannahöfn er mikið úrval
af antikverslunum og svoköll-
uðum skranbúðum sem oft selja
fallega muni á mjög góðu verði.
Á vefsíðunni www.aok.dk (alt om
Kobenhavn) er hægt að fræðast
um allt sem er að gerast í Kaup-
mannahöfn. Þar er m.a að finna
ítarlegan lista yfir margs konar
verslanir en á síðuna eru skráðar
a.m.k. 144 antikverslanir sem eru
víða um borgina. Það ætti því
enginn að lenda í vandræðum
með að finna gamla muni þegar
farið er til Köben í antikveiðiferð.
Rifsber
Nú er berjatímlnn kominn en i okkar fábrotnu berjaflóru eru
rifsberin einna algengust. Prófið að setja nokkur rifsber i
i könnu af köldu vatni, notið þau til að sk
rétti eða gerið úr þeim dýrindis sultu sp>«
með uillibráð.
Tugir bíða þegar opnað er
Mikil ásókn í Góða hirðinn
gossinu. miii _
að fimmtiu manns bíða
stundum fyrir utan Góða
hirðinn á hádegi og hlaupa \
svo inn þegar opnar.
iHMMil Imll —1 ii ii iii
Myndir/Eggert
Anna Kristín Jakobsdóttir hefur ver-
ið verslunarstýra í Góða hirðinum í
þrjú ár. Hún segir fjörutíu til fimm-
tíu manns, bíða fyrir utan verslun-
ina dag hvern áður en opnar.
Tekurðu eftirþví að þiðfáið meira
af vörum í góðceri og minna þegar
það er samdráttur?
„Við erum alltaf að fá mikið af nýj-
um og nýlegum húsgögnum og það
er jafnt yfir árin, hvort sem það er
góðæri eða ekki. Við erum að taka
hérna inn upp undir sjö og átta
feta gáma yfir vikuna og þeir eru
yfirfullir af bæði nýjum og gömlum
hlutum. Einu breytingarnar sem
við sjáum þessa dagana eru kannski
þær að á meðan stóru húsgagnaversl-
anirnar halda útsölur, þá eru margir
sem fara í það að endurnýja heima
hjá sér og við það kemur mikið af
góðum vörum hingað inn til okkar.“
Manstu eftir því að hafa tekið eitt-
hvað upp sem þér þótti ótrúlegt að
fólk vildi losa sig við?
„Já, við erum alltaf að fá einhverja
hluti hingað inn sem við verðum
steinhissa á að fá. Til dæmis höfum
við fengið hingað mjög falleg mat-
arstell frá Bing og Gröndahl, alla
Studio línuna frá Rosenthal eins og
hún leggur sig, við höfum verið að fá
Lazy-boy stóla úr leðri sem sér ekki
á, sófasett sem sér ekki á... kannski
ekki einu sinni orðin hálfs árs göm-
ul. Uppþvottavélar... ég gæti í raun
haldið endalaust áfram. Það er svo
mikið sem við erum að taka inn
hérna og oft erum við steinhissa."
Seljast þessir munir ekki tuttugu
mínútum eftir að búðin opnar?
„Jú, jú. Það er alltaf röð af fólld sem
bíður hér fyrir utan búðina áður en
hún opnar í hádeginu. Þetta eru
svona fjörutíu til fimmtíu manns
sem standa á hverjum degi og bíða.
Það er eins og Elko sé með útsölu.
Við teljum þetta oft að gamni okkar
og þetta eru eins og ég segi... fjöru-
tíu til fimmtíu manns. Alls konar
fólk. Uppúr og niðrúr, þjóðfélags-
stiginn eins og hann leggur sig. Líka
fólk sem er í Kolaportinu, fólk sem
er að leita inn í gömul stell... náms-
menninirnir koma mikið, sérstak-
lega fólk utan af landi sem er að leita
sér að leiguíbúð og vantar húsgögn.
Ástæðan fyrir þessu er sú að fólk-
ið veit að við erum að fylla á úr nýj-
um gámi frá átta á morgnana og þar
til við opnum á hádegi."
Hvernig er verðlagningin þarna
hjá ykkur? Hvað myndirðu t.d. setja
á hálfs árs gamla uppþvottavél?
Anna Kristín Jakobsdóttir „ tg held að hæsta verð sem ég hefséð hérna
var fimmtíuþúsundkall. Það var sett á gamlan handknúinn grammófón sem
kom hingað ífullkomnu ástandi með lúðri og öllu.“
„Hún færi á tíuþúsundkall. Einu
vörurnar sem við erum að setja ein-
hver verð á eru antikmunir sem við
sjáum að eru orðnir verulega gaml-
ir. Ég held að hæsta verð sem ég hef
séð hérna var fimmtíuþúsundkall.
Það var sett á gamlan handknúinn
grammófón sem kom hingað í full-
komnu ástandi með lúðri og öllu.
Hann fór bara eins og skot. Svo eru
þetta bara tíkallar, fimmtíukall-
ar, hundraðkallar. Húsgögn eru
kannski svolítið dýrari. Borðstofu-
stólar fara á svona fimmtánhundr-
uð og upp í tvöþúsund. Sófasett eru
á svona átta til tíu til fimmtán eftir
því i hvernig ástandi þau eru og
hvernig þau líta út,“ segir góði hirð-
irinn Anna Kristin Jakobsdóttir að
lokum.
margret@bladid.net
Sænsk einingahús frá Willa Nordic
- hönnun og gæði
Enginn veit betur en þú hvernig hús hentar þér og þinni fjölskyldu.
Pess vegna er góður kostur aö fá hús frá WiHa Nordic. Par er húsið þitt hannað í
samvinnu við arkitekta og unnið samkvæmt þínum kostnaöarhugmyndum. Við hjá Nordic
hús sjáum um að allt verkiö gangi eftir áætlun. Iki
Kíktu á heimasíðu okkar www.nordichus.is og Willa Nordic www.willanordic.se
• 203 Kópavogi • a: 660 14
Heitur pottur
í kuldanum
Eitt af því góða við að búa á íslandi
er sú staðreynd að hér er nóg af heitu
vatni. Og ef ekki væri fyrir þetta heita
vatn, þá gæfist okkur ekki kostur á
að fara í sund allan ársins hring, úti
um allt land.
Annar kostur við heita vatnið er að
hér þykir það enginn yfirgengilegur
lúxus að eiga heitan pott. Við flesta
sumarbústaði eru slíkir pottar og
margir hafa þá í garðinum hjá sér.
Flestir tengja pottana við sumarsælu
en hvernig nýtast þeir á veturna?
„Heita potta má nota jafnmikið yfir
veturinn og suinarið,“ segir Lilja Guð-
mundsdóttir, annar eigenda Atlason
ehf sem sérhæfir sig í innflutningi og
sölu á m.a. heitum pottum.
„Það eina sem þarf að passa er að
Heitir pottar Notalegir igarðinn,
allan ársins hring.
potturinn sé vel einangraður og lok-
ið sömuleiðis. Ef fólk er með pottinn
í sumarbústað þá þarf að gæta þess
að rafmagnið sé í lagi. Ef rafmagn fer
af og það líður langur tími á milli, þá
gæti farið svo að það frysi í dælunni
°g það getur verið mjög slæmt. Ef
bústaðurinn er yfirleitt eitthvað not-
aður á veturna þá á alls ekki að tæma
pottinn, en sé bústaðurinn einvörð-
ungu notaður yfir sumartimann þá á
að losa allar slöngnr frá dælunni og
skrúfa í sundur til að tappa alveg af
öUu.“
Eru pottar mikið notaðir við heim-
ilifólks yfir vetrartímann?
„Já, ef ekki meira en á sumrin. Fólk
er alltaf úti um hvippinn og hvappinn
á sumrin og í raun fær maður meiri
not fyrir hann á köldum vetrarkvöld-
um en heitum sumardögum. Síðasta
sumar notaði ég t.d. pottinn minn
mjög mikið. Mér fannst fátt betra
en að Iiggja í hlýjunni og horfa upp
í stjörnurnar og norðurljósin," segir
Lilja að lokum.