blaðið - 24.08.2006, Qupperneq 1
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
■ GOÐSOGN
Joan Crawford var kvik-
myndastjarna fram í fingur-
góma og vissi hvað hún vildi
| SfÐA 24 OG 25
■ IPROTTIR
íslandsmótið er betra en
áður segir Logi Ólafsson en
vill fjölga liöum í tólf
| SlÐA 30
189. tölublaó 2. árgangur
fimmtudagur
24. ágúst 2006
Beðið eftir strætó á Hlemmi
Þrátt fyrir óánægju einhverra strætóbílstjóra með aðbúnaðinn hjá Strætó gefast ekki allir upp á að bíða. Þessi tvö virðast öllu vön og kvíða engu
bs., erfiðleika fyrirtækisins að ráða vagnstjóra og kvartanir á þjónustunni þrátt fyrir óánægju einstakra bílstjóra.
Áratugalangur yfirmokstur hersins á mengunarvöldum á Suðurnesjum:
Herinn urðaði eitrið
■ Leifsstöð byggð á olíupytti ■ Svæðið mikið mengað ■ Herinn hreinsi eftir sig
íslendingar í fangelsi:
Með tvö kíló
af kókaíni
Hlynur Sigurðarson var hand-
tekinn 9. júní í Brasilíu. Hann
var með tvö kíló af kókaíni
sem hann segist hafa fengið hjá
ókunnum manni.
Á sunnudag var annar íslend-
ingur, Ingólfur R. Sigurz, hand-
tekinn í Brasilíu, sá var með tólf
kíló af hassi falin í hátalaraboxi.
| SfÐA 6
Ómar Ragnarsson:
Rukka ekki
fyrir flugið
„Ég rukka bara fyrir kostnaði
og tek ekkert fyrir flugtíma,“
segir Ómar Ragnarsson, sjón-
varpsmaður. Ómar hefur í sumar
boðið fólki upp á útsýnisferðir í
lofti og á láði yfir það svæði sem
fer undir vatn þegar Kárahnjúka-
stífla verður tekin í notkun.
Þá hefur hann einnig boðið
ráðherrum og fjölmiðlamönnum
upp á svipaðar ferðir.
I tilkynningu Flugmála-
stjórnar kemur fram að aðeins
þeir sem hafi flugrekstrarleyfi
megi flytja farþega og vörur gegn
gjaldi. Samkvæmt sömu tilkynn-
ingu hefur Ómar ekki slíkt leyfi.
„Það getur vel verið að þeim
finnist þetta lykta af einhverju en
það er allt byggt á misskilningi.
Eg er með fimm bíla á svæðinu.
Ég keyri með fólk og flyt hingað
vistir og búnað. Ég tek ekkert
fyrir flugið, eingöngu fyrir
kostnaði. í raun er tap hjá mér,
ég er búinn að eyða 800 þúsund
krónum í þetta.“
I SlÐA 8
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
„Ég hef mokað ofan á mengunarsvæði,” segir
Jóhannes B. Halldórsson, þungavélamaður hjá
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Eftir að Bandaríkjaher tilkynnti brottför sína
hafa raddir orðið háværari um að herinn beri
ábyrgð á því svæði sem hann hefur haft á Suð-
urnesjum. Ósk um að svæðið verði rannsakað
sérstaklega með tilliti til mengunar hefur verið
lögð fram og Jóhannes telur ríka ástæðu vera til
að hreinsa svæðið.
„Það er efnismengun þarna, það er alveg ljóst.
Ég hef grafið niður á olíu, stál, steypu og önnur
efni. Járn hefur verið grafið og spennar hafa
lekið. Frá mínum bæjardyrum séð eiga |
Bandaríkjamenn að hreinsa upp allt Æ
svæðið eins og það leggur sig. Þetta
svæði er ónýtt og þeir eiga að brjóta
þetta niður,” segir Jóhannes.
„Það hefur ekkert verið gert í þessu
þrátt fyrir að ég hafi oft bent á þetta
við umhverfisdeild varnarliðsins. Það
þýddi ekkert að gera athugasemdir útaf
þessu því það var ekkert hlustað. Þetta
á eftir að koma upp úr jarðveginum
með tímanum.”
„Ég er búinn að vinna þarna í þrjátíu ár og
áður en umhverfisdeildin fór í þessi mál þá
var PCB í öllum geymunum. Það er búið að fjar-
Jóhannes B.
Halldórsson
lægja þá flesta ef ekki alla. Mitt starf
fólst meðal annars í því að fjarlægja
þessa geyma sem láku PCB ofan í jarð-
veginn. Éf geymirinn lak þá tók ég hann
bara í burtu en ekki var mokað upp efn-
unum sem þar fóru í jarðveginn. Svona
var þetta bara í þá daga.”
„Undir nýju flugstöðinni er olíupyttur
og slíkt er að finna á fleiri stöðum þarna.
Á leiðinni suður í Hafnir er nýræktað
svæði sem búið er að slétta út, þar
undir er fullt af allskonar drasli,” segir
Jóhannes B. Halldórsson.
Sjá einnig síðu 4
Rússar:
Greiddu skuldir
Sovétríkjanna
Rússnesk stjórnvöld hafa lokið
við að greiða upp erlendar skuldir
Sovétríkjanna sálugu. Á mánu-
dag millifærðu þau tæplega 28
milljarða bandaríkjadala, 1.960
ísienska milljarða, inn á reikning
„Parísarklúbbsins“ svokallaða, en
það er óformlegur hópur nítján
ríkustu iðnríkja heims.
■ FÓLK
Hörð andspyrna
Sigurður Harðarson, Siggi pönk,
segir nýjan kafla hafinn í and-
spyrnusögu (slendinga og sendir
frá sér bók.
| SfÐA 38
SfÐATO
■ VEÐUR
Skýjað
Úrkoma víða um land, helst
þurrt á Vestfjörðum og norð-
austanlands. Hæg breytileg
átt. Hiti á bilinu 10-17 stig.
| SlÐA 2
■ VÍSINDI
Óríon til tunglsins
Geimfarið sem flytur menn til
tunglsins í fyrsta sinn frá tímum
Apollóáætlunarinnar ber nafnið
Óríon.
| SlÐA 32