blaðið - 24.08.2006, Síða 4
4IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 blaAið
Brúðaraiafir
OpiS laugardaga,
í Kringlunni 10-18, Rauðarárstíg 11-14
Sjáumst í Galleríi Fold
Rauðarárstíg 14-16, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400 ■ www.myndlist.is
Ekki hlustað á Jóhannes
Starfsmaður varnarliðsins
segir ad ekkert hafi þýtt
að gera athugasemdir við
mengunina.
Áratugalangur yfirmokstur varnarliðsms á mengunarvöldum:
Akranes:
Köttum úthýst
Lítið getur komið í veg fyrir
að kattahald verði framvegis
bannað á Akranesi að mati
Gísla S. Einarssonar, bæjarstjóra.
Bæjarráð Akraness lagði i síð-
ustu viku fram drög að hertum
reglum um káttahald og fór fyrri
umræða um málið fram í bæjar-
stjórn síðastliðinn þriðjudag.
Að sögn Gísla er það nánast
formsatriði að ljúka því. „Allir
bæjarfulltrúar samþykktu að
vísa málinu áfram eftiriákvæða
umræðu í bæjarstjórn. Eg á því
ekki von á öðru en að þetta fari
friðsamlega í gegn og með sam-
þykki allra.“
Þjónusta dagforeldra:
Flestir sáttir
Mikill meirihluti foreldra
er ánægður með þjónustu
dagforeldra samkvæmt nýlegri
könnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Islands.
Tæplega sex hundruð for-
eldrar tóku þátt og ríflega níutíu
prósent sögðust ánægðir með
þjónustuna. Á móti taldi meiri-
hluti svarenda ekki hafa verið úr
nógu mörgum dagforeldrum að
velja og rúmur þriðjungur þurfti
að leita út fyrir hverfi sitt.
Umferðarslys:
Líðan óbreytt
Líðan mannsins sem lenti í
árekstri á laugardagsnóttinni er
óbreytt. Hann er enn í öndunar-
vél og á gjörgæslu.
Maðurinn lenti í árekstri við
aðra bifreið þegar ökumaður
hennar keyrði á hest og kastað-
ist á bifreið hans. 1 þeirri bifreið
lést maður.
Nýr nytjastofn við Island:
Efast um veiði
rækjunnar
„Það er spurning hvort sandrækjan
nái því magni að það borgi sig að veiða
hana,” segir Árni Halldórsson, rekstr-
arstjóri FISK Seafood á Grundarfirði.
Sérfræðingar Hafrannsóknastofn-
unar rannsaka nú nýja tegund rækju,
sandrækju, sem greindist í fyrsta
sinn hér við land í fyrra. Stofninn
hefur vaxið hratt og náð töluverðri út-
breiðslu við Vesturland og suðurströnd-
ina. Rannsóknir eru á byrjunarstigi og
ekki eru hafnar stofnmælingar hjá
stofnuninni. „Þetta er smárækja og
lítið verð sem fæst fyrir hana. Stofn-
inn þarf að verða ansi stór því töluvert
Nýjar tegundir nema land
ðlVa
'r'f,-:
•m
I Blaðið í gær.
Engin rækja Aðilar íraekjuvinnslu
hafa áhyggjur af rækjustofninum.
magn þarf að veiðast svo þetta borgi
sig. Olían á skipin er orðin svo dýr og
smárækja gefur ekki hátt meðalverð,”
segir Árni.
Óttar Ingvarsson, stjórnarformaður
rækjuvinnslunnar Dögunar á Sauð-
árkróki, segir að hér sé á ferðinni svo-
kölluð norðursjávarrækja og að hann
þekki vel til vinnslu hennar í Evrópu.
„Miðað við útbreiðslu hennar á
íslandi þá hef ég ekki trú á veiðum
norðursjávarrækjunnar hér enda eru
veiðarnar mest á Vestfjörðunum og
á Norðurlandi. Reyndar er það svo
að rækjan hefur verið lengst allra teg-
unda skömmtuð með kvóta og í dag er
staðan sú að rækjan er horfin. Öll inn-
fjarðarmið eru lokuð og úthafsrækjan
er nánast horfin,” segir Óttar.
Kalifornía:
Arnie hækkar
lágmarkslaun
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri Kaliforníu, hefur komist
að samkomulagi við löggjafar-
þingið í ríkinu um að hækka
lægstu laun í átta dollara á
tímann, eða upp í 560 íslenskar
krónur. Hingað til mátti ekki
borga verkamönnum í ríkinu
minna en 472 krónur á tímann.
Schwarzenegger, sem er
repúblikani, hefur átt í deilum
við þingið, þar sem demókratar
eru í meirihluta, um frumvarp
um lágmarkslaun. Hann beitti
neitunvarvaldi á dögunum gegn
frumvarpi sem hefði hækkað
launin í 543 krónur. Samkomu-
lag ríkisstjórans og þingsins
felst í því að demókratar fengu
í gegn að launin yrðu hækkuð
meir en þeir óskuðu í fyrstu
gegn.því að þeir féllu frá þeirri
kröfu að lágmarkslaunin myndi
hækka í takt við verðbólgu.
■ Mengunin látin liggja ■ Þýddi ekkert að gera athugasemdir ■ Hreinsun of kostnaðarsöm
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Það er mengun þarna víða. Ég hef
sjálfur mokað ofan á mengunar-
svæði,” segir Jóhannes B. Halldórs-
son, þungavélamaður hjá varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli.
Eftir að Bandaríkjaher tilkynnti
snögglega brottför sína hafa raddir
orðið háværari um að herinn beri
ábyrgð á því svæði sem þarna er á Suð-
urnesjum. Ósk um að svæðið verði
rannsakað sérstaklega með tilliti til
mengunar hefur verið lögð fram og
Jóhannes telur ríka ástæðu vera til að
hreinsa svæðið.
„Það er efnismengun þarna, það er
alveg ljóst. Ég hef grafið niður á olíu,
stál, steypu og önnur efni. Þarna
hefur mikið járn verið grafið og
spennar hafa lekið. Frá mínum bæjar-
dyrum séð eiga Bandaríkjamenn að
.hreinsa upp allt svæðið eins og það
leggur sig. Þetta svæði er ónýtt og
þeir eiga að brjóta þetta niður,” segir
Jóhannes.
Mengun á Suðurnesjum
Islenskir verktakar hafa ver-
iö fengnir til að moka yfir
mengunarvalda fyrir varnar-
liöið á Keflavíkurflugvelli.
„Það hefur ekkert verið gert í þessu
þrátt fyrir að ég hafi oft bent á þetta
við umhverfisdeild varnarliðsins.
Það þýddi ekkert að gera athuga-
semdir útaf þessu því það var ekkert
hlustað. Þetta á eftir að koma upp úr
jarðveginum með tímanum.”
Mengunin látin liggja
„Ég vil að það komi skýrt fram að
herinn hefur verið góður vinnuveit-
andi enda hef ég verið þarna í þrjátíu
ár,” segir Jóhannes.
Aðspurður segir hann reglurnar
hjá hernum skýrar en telur jafn-
framt að þessu hafi ekki verið sinnt
þar sem engir peningar fengust til
framkvæmdarinnar.
„Fyrir tíu árum var stofnuð um-
hverfisdeild hjá hernum og þá tóku
þeir aðeins til hjá sér. Deildin veit af
öllum mengunarsvæðunum þarna.
Þar sem herir hafa verið hefur alltaf
fylgt mengun. Ef það er hins vegar
ekki til peningur fyrir verkefninu
þá er ekkert framkvæmt, þá virðist
þetta vera allt í lagi í þeirra huga.
Mengunin var því bara látin liggja,”
segir Jóhannes.
„Það hafa verið fengnir íslenskir
verktakar til að grafa þarna yfir
stór svæði, viðkomandi hafa meira
að segja hlotið viðurkenningar frá
hernum fyrir vikið. Auðvitað á að
moka þetta upp og setja þetta í við-
urkennt urðunarferli. Keflvíkingar
sjálfir drekka ekki vatnið sem er
undir, það er sótt til Grindavíkur.”
Svona var þetta bara í þá daga
Áþeimtíuárumsemumhverf- JL
isdeildin hefur starfað hefur ÆÉ'
ástandið lagast á svæðinu og
segir Jóhannes til dæmis PCB
verið fjarlægt af geymum
hersins.
„Ég er búinn að vinna
þarna í þrjátíu ár og áður en
umhverfisdeildin fór í þessi
mál þá var PCB i öllum geym-
unum þarna. Það er búið að
fjarlægja þá flesta ef ekki alla.
Mitt starf fólst meðal annars
í því að fjarlægja þessa geyma
sem láku PCB ofan í jarðveginn. Ef
að geymirinn lak þá tók ég hann
bara í burtu en ekki var mokað upp
efnunum sem þar fóru í jarðveginn.
Svona var þetta bara í þá daga.”
Jóhannes segir svæðin mörg þar
sem mokað hefur verið yfir mengun-
arvalda og yfirborð sléttað. Þannig
hafi verið fyllt yfir með efnum og
malbikað þar ofan á.
„Undir nýju flugstöðinni
er olíupyttur og
« - - , . slíkt er að finna
á fleiri stöðum
þarna. Á leið-
inni suður
í Hafnir er
nýræktað
svæði sem
búið er að
slétta út,
þar undir
er fullt af
allskonar
d r a s 1 i, ”
s e g i r
Jóhannes.
Mokaði yfir olíupytti og
PCB mengaðan jarðveg