blaðið - 24.08.2006, Side 14
14 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 blaöiö
Lögreglan:
Tíð innbrot en
ekki faraldur
Nokkuð hefur verið um inn-
brot i Vesturbæ Reykjavíkur á
síðustu vikum og dæmi um að
þjófur hafi brotist inn í hús um
hábjartan dag á meðan húsráð-
endur voru heima.
Að sögn Ómars Smára
Ármannssonar, aðstoðaryfir-
lögregluþjóns hjá lögreglunni
í Reykjavík, bendir þó ekkert
til þess að um innbrotsfaraldur
sé að ræða. „Innbrotum hefur
ekki fjölgað í Vesturbænum.
Þegar þjófar fara af stað þá
fara þeir oft inn í nokkur hús á
Iitlu svæði. Menn fá því oft á til-
finninguna að innbrotsfaraldur
sé í gangi.“
Leiðrétting
Sigurvegarinn i Hlaupi skrif-
stofumannsins á Menningarnótt
var rangnefndur í frétt Blaðsins
í gær. Hann heitir Matthew
Schexnyder.
Lögregla beitti táragasi og háþrýsti-
dælum til þess að dreifa mótmæl-
endum í höfuðborg Indlands, Nýju-
Delí, í fyrradag.
Mannfjöldin var að mótmæla fyrir-
hugaðri löggjöf sem mun fjölga tæki-
færum nemenda úr lægri stéttum til
þess að komast að í háskólum lands-
ins. Samkvæmt löggjöfinni mun
fjöldi háskólanema úr lægri stéttum
aukast úr 22,5 prósentum i 49,5 pró-
sent. Verði lögin samþykkt munu
þau ná til allra háskóla sem frumvarpið fyrir þingið.
þiggja fjármagn frá ind- SRSl Mótmælendurnir segja að
versíca ríkinu. Tæplega átta- (&) frumvarpið dragi úr mögu-
tíu prósent af íbúum Ind- ví' leikum góðra námsmanna
lands telst til lægri stétta til þess að fá háskólavist. Þeir
og þrátt fyrir að réttarstaða ' hafa hótað að standa fyrir alls-
þeirra hafi verið bætt að nafn- herjarverkfalli í landinu á næstu
inu til búa margir þeirra við félags- dögum taki þingið málið til með-
legt misrétti. ferðar en búist er við að það gerist í
Mannfjöldinn safnaðist saman vikunni.
í miðborg Nýju-Delí eftir að ríkis- Mótmæli brutust einnig út i land-
stjórn landsins samþykkti að leggja inuþegarhugmyndirumfrumvarpið
var fyrst kastað fram fyrir fjórum
mánuðum. Snemma á tíunda áratug
síðustu aldar brutust út sambærileg
mótmæli þegar ákveðið var að eyrna-
merkja hinum lægri stéttum ákveðið
hlutfall starfa í hinum opinbera geira.
Hið rígbundna stéttarkerfi Indlands
á sér langa sögu og djúpar rætur í
menningu hindúa. Fjöldi stétta er í
kerfinu og efst í pýramídanum eru
svokallaðir brahmanar og neðstir
eru hinir útskúfuðu dalítar.
Sumarferð
/^-^Samfylkingarinnar
augardaginn 2. september
Fjölbreytt skemmtiferð fyrir alla fjölskylduna
um Reykjanes.
Heimsóknir í Garðskagavita, Duushús í
Reykjanesbæ, Svartsengi og Bláa lónið.
Ferðin endar á grillveislu í Höfðaskógi
við Hafnarfjörð.
Miðasala er hafin á skrifstofu
Samfylkingarinnar, Hallveigarstíg 1.
Tekið á móti pöntunum í sfma 414 2200 eða
samfylking@samfylking.is fram til 25. ágúst.
Allar nánari upplýsingar á vef
Samfylkingarinnar: www.samfylkingin.is
Allir með!
#! Samfylkingin
Bandarikin:
Almenningsálitið
á móti Bush
Samkvæmtnýrriskoðanakönnun
telur meirihluti Bandaríkjamanna
að innrásin í írak hafi ekkert haft
með hið svokallaða „stríð gegn
alþjóðlegum hryðjuverkahópum”
að gera eins og George Bush, for-
seti, hefur þráfaldlega lýst yfir. I
könnuninni, sem var gerð fyrir
dagblaðið New York Times og sjón-
varpsstöðina CBS, kemur fram að
51 prósent Bandaríkjamanna telur
að engin tengsl séu á milli innrás-
arinnar í írak og baráttunnar gegn
hryðjuverkum.
I könnuninni kemur fram að 53
prósent Bandaríkjamanna telja
að stjórnvöld hafi gert mistök
með því að ráðast inn í Irak, en í
sambærilegri könnun frá síðasta
mánuði voru 48 prósent á þeirri
skoðun. Einnig kemur fram að 62
prósent aðspurðra telja að tilraunir
Bandaríkjamanna til þess að koma
böndum á ástandið í frak gangi illa
og 65 prósent lýstu yfir vonbrigðum
sínum með hvernig forsetinn hefur
staðið sig í málinu.
Þrátt fyrir að könnunin bendi til
þess að almenningur sé andvígur
stefnu repúblikana 1 utanrlkis-
málum breyttist stuðningur við
George Bush ekki á milli mánaða.
Um 36 prósent eru ánægð með
störf forsetans. Aðeins 29 prósent
aðspurðra töldu að innanríkismál
Bandaríkjanna væru á réttri leið en
67 prósent telja stjórnvöld á rangri
braut.
Um 55 prósent telja að George
Bush hafi staðið sig vel í baráttunni
gegn hryðjuverkaógninni á meðan
óánægja með forsetann í öðrum
málaflokkum, eins og í efnahags-
málum og utanríkismálum, er í
kringum 60 prósent. Þrátt fyrir að
Bush með búðing George Bush
bregst við andstreyminu meö því að
gæða sér á búðingi
vopnahlé hafi komist á í Líbanon
telja 70 prósent Bandaríkjamanna
að viðvarandi friður muni aldrei
ríkja á milli fsraelsmanna og Ar-
aba. Samkvæmt könnuninni telur
meirihluti Bandaríkjamanna, eða
um 56 prósent, að Bandaríkjamenn
eigi ekki að beita sér fyrir friðarum-
leitunum í Miðausturlöndum.