blaðið - 24.08.2006, Síða 29
Kjarni málsins
r-M
Þreytandi
flugþreyta
Margir fTnna fyrir flugþreytu
þegar þeir hafa ferðast mikið.
Sem betur fer er hægt að gera
ýmsilegt til að koma í veg fyrir
hana. Fyrst ber að nefna að
það er sérstaklega mikilvægt
að sofa vel áður en ferðalagið
hefst. Eins er best að forðast
áfengi, bæði í ferðinni sjálfri
og fyrir hana. Gott er að borða
hollar máltíðir sem eru næring-
arlega vel samsettar og það
er um að gera að borða ekki
yfir sig. Svo má vitanlega ekki
gleyma hreyfingunni en það
er nauðsynlegt að hreyfa sig í
ferðinni sjálfri. Eins er gott að
aðlagast nýjum tíma og borða
og sofa á svipuðum tíma og
heimamennirnir.
Heilsa og hollur matur Það
er vel hægt aö koma í veg fyrir
flugþreytu meö þvíaö huga vel aö
heilsu og hollu mataræöi.
Miðað við aö 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift í 30 skipti.
blaðið FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006
Það er löngu komið úr tisku að reykja. Það er ekki bara dýrt
og óhollt heldur er líka verið að skaða náungann með óbeinum
reykingum. Hvi ekki að nota haustið til að hætta, það eru til
ótal aðferðir og hjálpartæki til þess. En fyrst og fremst er það
viljastyrkurinn sem ræður för.
Góð heilsa er ekki eínungis að vera laus við sjúk-
dóma heldur er það lífsstíll. Hvort sem það er að fá
nægan svefn, slökun eftir erfiðan dag eða að
eiga áhugamál til að nostra við. Umfram allt
þurfa allir að vera góðir við sjálfa sig.
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð
víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Algengt Flest börn pissa undir
áöur en þau ná sex ára aldri en
þetta er algengt vandamál.
Pissaó undir
Tugir ef ekki þúsundir barna
undir sex ára aldri pissa undir
á næturnar og vandamálið
er því mjög algengt. Læknar
hafa hins vegar aldrei náð að
útskýra af hverju börn pissa
undir og af hverju þau hætta
því á ákveðnum aldri. En það
er talið vera eðlilegur hlutur
I þroska barna og flest börn
vaxa upp úr því eftir ákveðinn
tíma. Að pissa undir er því
sjaldnast hluti af stærra tilfinn-
ingalegu vandamáli þó það
geti vissulega verið raunin.
Þrátt fyrir að þetta vandamál
sé algengt getur þetta verið
álag á fjölskylduna. Börnin
skammast sín jafnan og finna
fyrir samviskubiti og eins finna
foreldrar fyrir vonleysi því þeir
geta ekki hjálpað barninu. Það
er því um að gera að reyna að
gera lítið úr þessu og muna að
þetta líður hjá.
Hættan ekki bara x flugt
Aukin hætta á blóðkekki
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 30.915 kr. á mánuði fyrir
klukkustundar langan hressandi göngutúr.* Ti! viðbótar kemur
þungaáiag og greiðslur fyrir aidreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
Það er möguleiki á að fá blóðkökk
í alls kyns farartækjum, ekki bara
flugvél, samkvæmt nýlegri rann-
sókn sem birtist á Timesonline.
co.uk. Ef ferðast er í meira en fjór-
ar klukkustundir í flugvél, bíl, lest
eða rútu eykst hættan á að fá blóð-
kökk. Þær líkur eru ekkert meiri ef
ferðast er í flugvél heldur en öðrum
farartækjum. Hópur vísindamanna
rannsakaði 2000 manns sem voru
með blóðkökk í æð og fundu út að
233 þeirra höfðu ferðast í meira en
fjóra klukkutíma í einu. Ferðalög í
farartæki tvöfaldaði því hættuna á
að fá blóðkökk í æð.
Sumir hópar í meiri hættu
Hættan var mest fyrstu vikurnar
eftir ferðalagið og einstaka hópar, til
dæmis konur sem voru á pillunni,
voru í meiri hættu en aðrir. Hættan
á að fá blóðkökk var tífalt meiri hjá
of feitu fólki og fjórum sinnum meiri
hjá einstaklingum sem voru hærri
en 1.90 metrar. Þeir sem voru lægri
en 1.60 metrar voru í fimm sinnum
meiri hættu á að fá blóðkökk heldur
en aðrir.
Skortur á hreyfingu
Suzanne Cannegieter, ein af rann-
sakendunum, sagði að af þessum nið-
urstöðum mætti draga þær ályktanir
að hættan við að fá blóðkökk í æð tvö-
faldist hjá ferðalöngum, sama í hvaða
farartæki þeir ferðast. Einstakling-
um sem eru óvenjulega háir, lágir eða
þéttir er hættara við að fá blóðkökk
en öðrum. í niðurstöðum rannsókn-
arinnar kom ekki fram hvers vegna
ferðalangarnir fengu blóðkökk en
gert var ráð fyrir að skortur á hreyf-
ingu væri sennilega ástæðan.
11
!4H